Lögrétta - 01.01.1936, Síða 92

Lögrétta - 01.01.1936, Síða 92
187 LÖGRJETTA 188 Noregs. Sagt er frá Birni Breiðvíkingakappa sem Indíánahöfðingja í Vesturheimi. Mikil og hroðaleg saga er sögð frá óskilgetinni dótt- ur Eiríks rauða, sem tekur þátt í tveimur Vínlandsferðum frá Grænlandi. Frá öllu þessu er fjörlega og skemtilega sagt, eins og menn kannast við, þar sem Guðmundur Kamban á hlut að máli. Bókin er yfir 300 síður í stóru broti og með smáu letri. Landa- brjef fylgir bókinni, og eru á það dregnar línur, sem sýna Vínlandsferðir Grænlendinga og Islendinga í fornöld. Þýddar sögur. „Gott land“ heitir saga, sem Isafoldar- prentsmiðja hefur gefið út nú í haust. Hún er eftir ameríska konu, Pearl S. Buck, sem hefur alist upp í Kína og lýsir Kínverjum og lífi þeirra. Er þetta góð saga og skemti- leg og er orðin fræg um öll Vesturlönd, þótt hún kæmi fyrst út fyrir fáum árum. Þýð- endur eru Magnús Ásgeirsson skáld og Magnús Magnússon ritstjóri. Urvalssögur eftir Guy de Maupassant hef- ur bókaútgáfan ,,Esja“ gefið hjer út nú í haust. Þar í eru 14 sögur eftir þennan fræga rithöfund, í fallegri útgáfu, og er þetta skemtileg bók. Óðinn. Þetta er aðalinnhald 32. árg. Óðins, sem nýlega er kominn út: Fremst er mynd af Magnúsi Stephensen landshöfðingja og síðar í blaðinu grein um hann eftir V. Þ. Gíslason. Þá er mynd af Sæmundi heitnum Bjarnhjeðinssyni lækni með grein eftir Skúla lækni Guðjónsson. Þrjú minningarkvæði um Einar Helgason garð- yrkjustjóra, eftir Jens Sæmundsson, X. og Elínu Sigurðardóttur. Grein um Ingólf Arn- arson og öndvegissúlur hans, eftir Þorstein J. Jóhannsson. Gullkálfurinn, kvæði eftir Guttorm J. Guttormsson. Árni Guðmundsson í Víkum, mynd og grein, eftir B. F. Magnús- son. Sjera Jón N. Jóhannessen og frú Þuríður Filippusdóttir, myndir og grein eftir sjera Guðmund Einarsson. Kvæði við jarðarför frú Þuríðar, eftir Þ. G. Landnámsmaður, grein um Ólaf Isleifsson í Þjórsártúni og Guðríði konu hans, eftir sjera Ófeig Vigfússon. Trúr þjónn, grein um Pál Jónsson fyrrum vega- gerðamann, eftir sjera Gunnar Árnason. Mynd af Marteini Hólabiskupi og kvæði til hans, eftir S. K. Steindórs. Þrjú önnur kvæði eftir sama: Móðurmál, Sumaróður og ? Köln og brot úr sögu dómkirkjunnar, eftir S. K. Steindórs. Tvö kvæði eftir Þ. G.: Fugl- inn og 17. júní. Lögbrot tungu vorrar, eftir sjera Hallgrím Thorlacíus. Jóhannes Ólafs- son og Helga Samsonsdóttir, myndir og grein, eftir sjera Kristinn Daníelsson. Kvæði um Jóhannes Ólafsson, eftir Dýr- firðing. Anna Pjetursdóttir prófastsfrú á Hálsi í Fnjóskadal, mynd og grein, eftir X, og kvæði eftir sjera Gunnar Árna- son og Þ. G. Starfsárin, eftir sjera Friðrik Friðriksson, langir kaflar, og þar sagt m. a. frá tildrögum til Vesturheimsfarar hans, ferð hans vestur og dvöl hans vestra fyrst fram- an af. Sýnin í Portschack, kvæði eftir sjera Friðrik Friðriksson, þýtt úr ensku af Þ. G. Arfurinn, grein eftir Jón Jónsson Gauta. Mynd og æfiatriði J. J. Gauta. Frú Octavia Smith, mynd og grein. Guðrún á Bálkastöð- um, kvæði eftir Jakob Thorarensen. Jakob Símonarson frá Brekku við Hofsós, mynd og grein eftir Jón Jóhannsson. Marinó Hafstein sýslumaður, mynd og grein. Kvæði um Marinó Hafstein, eftir Þorstein Björnsson frá Bæ. Kvæði til Björgvins sýslumanns Vig- fússonar, á sjötugsafmæli hans, eftir X. Vatneyrarfeðgar, Ól. Jóhannesson konsúll og Kr. Ó. Jóhannesson, myndir og grein, eftir sjera Einar Sturlaugsson. Ættjarðarsöngur, kvæði eftir Þ. G. Frú Kristrún Eyjólfsdóttir í Grafarholti, mynd og grein, eftir I. E. Hóraz á Vúlturf jalli, kvæði eftir sjera Friðrik Frið- riksson. Ljóð, eftir A. J. Meiritungubræður og konur þeirra, myndir og grein, eftir G. Frú Guðrún í Ytra-Vallholti, mynd og grein, eftir Stefán Vagnsson. Til G. Björnson fyrv. landlæknis, kvæði eftir Álfkonu. Guðmundur Loftsson bankafulltrúi og frú Hildur Guð- mundsdóttir, myndir og greinar. Við blaða- lestur, vísur eftir a + b. Elin Ögmundsdóttir Scheving, grein eftir Sig. Júl. Jóhannesson. Líkblæjan, leikur í einum þætti, eftir Gutt- orm J. Guttormsson. Um æfisögu sjera Frið- riks Friðrikssonar, grein eftir próf. R. Beck.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.