Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Side 64

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.03.1880, Side 64
128 Svo virðist, sem á þessum tíma, þegar siður var að beygja og bijóta hlutina og jarðsetja í ættarhaug- um, hafi sviplegur hnekkir komið á samgöngurnar milli Suður-og Norðurlanda.1 því að peningafundirnir sanna, að alt að miðju þriðju aldar eða jafnvel alt að 300. e. Kr. hafi fjölmargir rómverskir peningar gengið um alla Mið- og Norður-Evrópu; hinir yngstu eru frá ár- unum 220—230, og eru þar á myndir Rómakeisara, eða letur; ná þessir peningar þó eigi tilNoregs, held- ur norður á Danmörku og austur að Vislu-ósum, það- an norður með Eystrasalti Rússlands-megin og yfir á Eyland og Gotland. í Danmörku og Svíaríki finnast þeir þúsundum saman, langoptast í fenjahrúgunum, sjaldan í haugunum, og þá bæði saman við brend bein og óbrend. En í heila öld, frá 250—350, finnastengir eða mjög fáir rómverskir peningar í Norður-Evrópu, og hinir fáu, sem finnast frá öldinni næst þar á eptir (350—450), þykja vera fluttir norður eptir um Vesturlönd (Valland og Bretland), en ekki yfir miðja Evrópu. fetta virðist standa í sambandi við hreifingar hinna slafnesku þjóða, sem urðu þegar eptir Krists burð og voru fyrirboði og orsök falls Rómaveldis. Um þetta leyti og nokkuð seinna komu upp ýmsir merkilegir menn, er stofnuðu dýrðleg og mikil ríki, en svo skamm- vinn, að þau eru eins og leiptur í sögunni. þannig voru ríki Sáms (Samo, j- 662) í Bæheimi og norður að Saxelfi; þiðreks af Bern (Theodorich, Verona), Jör- munreks (Ermenreks, Ermanarich), Atla Húnakonungs (Attila) og ríki Svatóplúks á Rússlandi. J>jóðahreifing- arnar, sem stóðu í sambandi við öll þessi ríki, mynd- uðu breitt belti, sem náði alt í frá Mundíafjöllum og norður að Saxelfi, og yfir þennan ólgusjó þjóðanna gat engin mentun, engin áhrif komizt frá Suðurlöndum 1 Worsaae, í Aarb. 1872, bls. 397.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.