Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1896, Qupperneq 6

Eimreiðin - 01.01.1896, Qupperneq 6
6 og að aðferð sú, sem beitt var við samning laganna, væri næsta óregluleg og kæmi í bága við gefin heit og gildandi rjettarákvæði. Að full ástæða var til slíkra mótmæla sýna líka þær miður heppi- legu hyggjusetningar (Theorier) fyrir sjálfstæði Islands, sem danskir lögfræðingar hafa byggt á þeirri óreglulegu aðferð, sem beitt var við samning laganna. Þessar hyggjusetningar eru þess efnis, að úr því að stöðulögin sjeu gefin af hinu danska löggjafarvaldi, án þess að alþingi ætti þar xrokkurn hlut í, þá geti líka sama löggjaf- arvaldið, án hlutdeildar alþingis, breytt þessum lögum og numið þau úr gildi. Þar sem nú rjettargrundvöllur sá, sem hin íslenzka stjórnarskrá er byggð á, að nokkru leyti er fólgin í þessum lögum, ætti þannig hið sjerstaka löggjafarvald Islands jafnan að vera háð hinu almenna danska löggjafarvaldi. Þannig segir prófessor Matzen í »Den danske Statsforfatnings- ret« (I, 247): »Með lögum þessum hafa þannig konungur og ríkisþingið sem rjettir aðilar hins almenna fullvalda (suverœne) löggjafarvalds skipað afstöðu ríkisins gagnvart hinu einstaka landi, þar á meðal einkum afstöðu hins almenna löggjafarvalds ríkisins gagnvart hinu sjerstaka löggjafarvaldi landsins, þannig að vald hins fyr- nefnda hefur verið takmarkað og nokkuð af því fengið í hendur hinu síðamefnda; en það er þó svo sem sjálfsagt — og því verða menn að halda fastlega fram — að tilverurjettur hins sjerstaka íslenzka löggjafarvalds jafnan er háður hinu al- menna löggjafarvaldi konungsríkisins (til enhver Tid kun fungerer i Afhœngighed af ien alminielige kongerigske Lovgivningsmagt), svo sannarlega sem það vald, sem gefið hefur lögin, getur líka breytt þeim og numið þau úr gildi.« I bók, sem heitir »Grundtræk af den danske Statsi'et«, eptir C. Goos og Henrih Hansen segir svo (bls. 308): »Tilverurjettur hins sjerstaka íslenzka löggjafarvalds er þó háður löggjafar- valdi konungsríkisins. Þar sem þetta síðamefnda vald samkvæmt sínu almenna fullveldi (Suverœnitet) í öllum málefnum ríkisins með lögunum 2. jan. 1871 hefur lagt þann rjettargrundvöll, sem stjórnarskrá íslands er byggð á, þá er það líka, skoðað frá rjettarins sjónarmiði, eitt þess um komið, að breyta þessum grundvelli eða kippa honum burtu.« Rjettmæti þessarar hyggjusetningar mun aldrei verða viður- kennt af neinum Islendingi. Það getur skeð, að hinum háu pró- fessórum geti tekizt, að neyða íslenzka lögfræðinga til þess að viðurkenna þessa skoðun, þegar þeir eru að svara prófspurningum sínum á háskólanum; en þeir geta reitt sig á, að sömu lögfræðing- arnir munu, jafnskjótt og þeir eru sloppnir frá prófborðinu, hik- laust neita því, að hún sje rjett. Svo er nefnilega mál með vexti, að stöðulögin geta ekki haft neina bindandi þýðingu fyrir Island að því leyti, sem þau eru samþykkt af ríkisþinginu, því ríkisþingið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.