Eimreiðin - 01.01.1896, Qupperneq 72
72
Merkileg uppgötvun.
Þegar rafmagn er látið streyma gegnum glerpípu eða glerkúlu
með mátulega þynntu lopti í, verður það lýsandi. Slíkar pípur
eru mjög notaðar við efnafræðislegar rannsóknir (spektralanalysis)
og vanalega kenndar við Geissler nokkurn, þýzkan verkfærasmið.
Ef loptið er þynnt enn þá meira, hættir það aptur að lýsa, en
þar á móti verður glerið sjálft lýsandi, einkum beint á rnóti vír-
enda þeim, sem rafmagnsstraumurinn fer um út úr pípunni; or-
sökin er sú, að frá vírnum leggur geisla, sem ekki lýsa í sjálfu
sjer, en gjöra glerið lýsandi, þar sem þeir falla á það. Geislar
þessir eru nefndir katóðugeislar1, og-eru þeir frábrugðnir ljós- og
hitageislum, einkurn í því, að segul-
magn hefur áhrif á þá, og að þeir
ganga gegnum ýmsa hluti, sem ljós
kemst eigi í gegnum, t. d. þunnar
málmflögur. Hittorf nokkur, þýzkur nátt-
úrufræðingur, tók fyrstur eptir geislum
þessum, en seinna hafa þeir meðal
annars verið rannsakaðir af enskum
náttúrufræðingi, Crookes að nafni, og
eru glerpípur þær eða glerkúlur, sem
þeir myndast í, kenndar við hann.
Nýlega hefur prófessor RÖNTGEN
i Wúrzburg tekið eptir því, að ein-
kennilega geisla leggur út frá Crookes
kúlum, þegar katóðugeislar myndast í
þeim; hvort það eru katóðugeislarnir
sjálfir, sem ganga gegnum glerið, eða
nýir geislar, sem koma frá sjálfu glei'-
inu, þar sem það er lýsandi, er ekki
víst. Þeir líkjast þó katóðugeislum í þvi,
að flestir hlutir eru miklu gagnfærilegri
fyrir þá, en fyrir Ijósgeisla, en ekki lítur út fyrir að segulmagn
hafi nein áhrif á þá; þeir brotna líka miklu minna en ljósgeislar,
en hafa líkar efnafræðislegar verkanir, svo að myndir má taka með
þeim, eins og ljósmyndir að sínu leyti, og það er einmitt þessi
eiginleiki geislanna, sent gjörir uppgötvun þessa svo eptirtektaverða.
Af því að menn hafa ekki enn fundið neitt efni, sem brýtur þessa
Röntgens-geisla að ráði, verða þó ekki teknar vanalegar Ijósmyndir
með þeim, heldur einungis skuggamyndir. Einna rnesta eptirtekt
hefur það vakið, að Röntgens-geislar ganga gegnum líkama manna
og dýra, en þó ekki eins vel gegnum beinin eins og aðra hluta
líkamans; ef geislarnir eru látnir leggja gegnum mann og falla á
glerflögu, sem er undirbúin öldungis eins og við vanalega ljós-
1 Þegar rafmagnsstraumur er látinn renna gegnurn lopt eöa lög, er leiðandi
sá, sem straumurinn fer inn um, nefndur andóa (innleið, inngangur, myndað
af ctvio, inn eða upp á við, og ódo's, leið, vegur), en sá, sem rafmagnið fer út
um, katóda (útleið, útgangur, af y.atá, út eða niður á við, og ödó~).
Prófessor Röntgen.