Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1897, Síða 2

Eimreiðin - 01.09.1897, Síða 2
162 Konráð sonur hans var nýútskrifaður úr prestaskólanum með góð- um vitnisburði; nývígður til Asaþinga, dágóðs prestakalls og ný- giptur elskuverðri stúlku, sem ekkert var út á að setja. Ungu hjónin ætluðu nú samt að fara frá honunr að fullu og öllu eptir tvo daga til fyrirheitna brauðsins. Það var ekki nema von, þó garnli presturinn væri hjartanlega ánægður með hag sonar sins. Ungu hjónin voru náttúrlega í sjöunda himni sælunnar; já svo al- sæl og ung! Allt ljek í lyndi: auður, metorð, góð staða, ástúð- legt hjónaband og draumbliðar framtíðar vonir. — — Pósturinn var nýkominn með brjef og frjettablöð. Ungu hjón- in fengu rnikið af brjefum frá vinum og kunningjum. En þau voru svo sæl, að þau komust tæplega til að lesa þau nema í hjá- verkum. Þau höfðu svo afarmikið að segja hvort öðru,. og raða öllu svo nákvæmlega niður fyrir framtiðina. Þeim kom saman um alla skapaða hluti, nema hvort fyrsti litli strákurinn ætti að heita Höskuldur eða Gísii. — — Síra Höskuldur háfði fengið brjef og blöð. En brjefin voru bara embættisbrjef, sem honum lá ekkert á að lesa svo hann byrj- aði á frjettablöðunum. Þá var »Skallagrímur« stærsta blaðið í höf- uðstaðnum. Og hann byrjaði presturinn auðvitað að lesa. Strax rak hann augun í frjettapistil úr sókninni sinni, sem hljóðaði á þessa leið: »Langadalshr. 12. ágúst 18 . . —--------------. Hjeðan er allt bærilegt að frjetta. Vorið var kalt og umhleypingasamt. Skæðar norðan hrynur gjörði um Fardagana, en hey máttu heita nóg. Fjárhöld urðu því þolandi eptir því sem hjer er venja til. Siðan um Jónsmessu hefir verið blessuð og hagstæð sumartíð. Grasvöxtur í góðu meðallagi, einkum á túnum. Og nýting góð. — Heil- brigði almennt og enginn nafnkunnur hefir dáið. — I gær gaf sóknar- presturinn okkar saman i hjónaband Konráð son sinn og jungfrú Ásgerði Gísladóttur. Sira Konráð er nýútskrifaður af prestaskólanum, og vígð- ur til Ásaþinga. Húsfrú Ásgerður er ættuð af Austurlandi, (af hinni svo nefndu »Hlíðarætt« þar). Allir hjer í sókn óska þessum ungu heiðurs- hjónum allra heilla og blessunar í bráð og lengd.« •—-------- Prestinum varð eins og hálfórótt. En þetta hlaut að vera villa, en slæm villa hjá brjefhöfundinum. Asgerður gat ómögulega verið af »Hlíðarættinni«. Þetta var samt eitthvað óþægilegt og ertandi. Hann var að rjála við blaðið án þess að lesa. Hann fletti því hugsunarlaust við. Innan í því rak hann strax augun í

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.