Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1897, Blaðsíða 5

Eimreiðin - 01.09.1897, Blaðsíða 5
165 og það hefir sínar eðlilegu afleiðingar fyrr eða síðar. Veikin fór að ágerast og verða fljótvirkari eptir sjóróðrana. Svo kom næsta haust. Og aptur fór hann í verið; það dugði nú svo sem ekki annað. En þá stóðst hann ekki mátið, varð að hætta á miðri vertíð, og hafði nauða lítið upp úr því. En nú var heils- an farin. Vorið eptir dó faðir hans. Þá var ekki um annað að gjöra en »sundra« öllu. Elztu börnin fóru í dvöl — á náð og miskun- semi góðra manna. Og hin yngri hreint og beint á hreppinn — sveitarsjóðinn. Ara gekk illa að fá samastað. Hann var orðinn svo einhæfur til vinnunnar; gat helzt rjátlað við kindur og sótt kýr og hesta. En það er nú svo sem ekki mikil vinna af fuli- orðnum manni. Og svona aumingjar þykja ekki til þokka á stáz- heimilum, þó guðhrædd og kærleiksrík heimili sjeu. Þó hafði hann samastað að mestu um sumarið. En svo kom veturinn, ja, þá fór nú að vandast málið. Hann átti nú svo sem ekki meira en fæðið fyrir sumarvinnuna. Það vissu nú bæði guð og menn, sagði Grimur á Gili, sem hann var hjá, á niðurjöfnunarnefndar- fundinum um haustið. Og hann sagðist segja það hreint og beint, þó að hreppsnefndin gerði þá ráðstöfun að láta Ara vera tíma og tíma á bæ þennan vetur, þá áliti hann sig undanþeginn að hafa Ara eina einustu nótt. Oddvitinn ræskti sig, að heldri manna sið, en hinir nefndarmennirnir tóku upp í sig, en sumir i nefið, en enginn svaraði Grími bónda, — það var svo sanngjarnt, sem hann sagði. Og svo var hann efnamaður, og annar stefnuvotturinn í hreppnum. Hreppsnefndin komst ekki að neinni niðurstöðu með Ara á fundinum. En ákvað að gera út um það eptir messu næsta sunnudag. Og þá lofaði Grímur að sjer heilum og Mfandi að skila Ara, þó helzt væri um seinan. Strax eptir messu settist hreppsnefndin í stofu og fór að bjóða Ara upp. Allir bændurnir hristu höfuðin, og nefndin vissi vel, hvað það þýddi, — enginn vildi taka hann. Og svo geispaði odd- vitinn, sáran, þungan, langan geispa, og benti á, að hann gæti látið sýslumanninn dæma Ara niður, ef enginn ætlaði að taka. hann. Eiginlega væri nú vergangur fólks á móti lögum, þó sumir hreppar vikju frá því undir svipuðuðum kringumstæðum og hjer ættu sjer stað, Grími á Gili fannst od^vitinn líta til sin, þegar hann sagðist geta látið sýslumanninn dæma Ara niður, svo hann flýtti sjer að grípa síðari setninguna; hjelt það væti hart að hanga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.