Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1897, Blaðsíða 67

Eimreiðin - 01.09.1897, Blaðsíða 67
227 skálmaði af stað til borgarstjórans; á leiðinni raulaði hann fyrir munni sjer þessi orð franska skáldsins: »Innan undir ekkert utan beinagrind!« ❖ * ❖ Þegar hann gekk inn í salinn, stóð dansinn sem hæst. Menn þyrptust þegar utan um hann, óskuðn honum til hamingju og spurðu hann spjörunum úr, og hann baðaði sig í sólskini ham- ingjunnar. En svo þegar nýr dans var hafinn og þyrpingin um- hverfis hann tvistraðist, settist hann út í horn, lokaði hægra auganu, tók gleraugað frá hinu vinstra og tók nú að virða lífið fyrir sjer. Það, sem fyrir augun bar, var í sannleika einkennilegt og vel þess vert að lærisveinn Schopenhauers kynnti sjer það kostgæfi- lega. Dökkar beinagrindur hneigðu sig, heilsuðust, stóðu hnakka- kertar, trítluðu fram og aptur, tildruðu sjer til, lögðu arminn hver utan um aðra, tvær og tvær, með þvílíkri áfergju, að svo leit út sem þær ætluðu að fljetta rifin saman; það fórst þó fyrir sakir hinnar hlaupkenndu slæðu er á milli lá, líkt og læknirinn hafði sjeð á gömlu bústýrunni sinni, en það var eins og holdið, vaxtarlagið og fegurðin væri horfið í töfraljósi þessara hlífðarlausu geisla. Skrautið og gimsteinarnir var hið eina, er ekki sá í gegnum og hin hvumleiða sjón varð enn ömurlegri af því hinar dansandi beinagrindur báru ljómandi gimsteina um háls- inn og gullna hringi um handleggina. Allt í einu kom nokkuð fyrir, er dró athygli læknisins enn fastar að sjer. Hann hafði komið auga á tvær beinagrindur, er skutust í leyni bak við pálmasvalirnar. Bak við hin gagnsæju blöð sá hann tvo skolta, tvo tanngarða, tvö snubbótt nef og tvær hauskúpur með holum augnatóptum, er þokuðust saman hægt og blíðlega og kysstust löngum rembingskossi! Hin kýmniblandna ró læknisins hvarf með öllu; hann stóðst ekki lengur mátið og læddist burt í þungu skapi. Það kom að litlu haldi, þótt hann reyndi að telja sjer trú um og stagast á því með sjálfum sjer, að vísindin mega ekki þoka fyrir neinu, að sannleikurinn á að sitja í fyrirrúmi fyrir öllu öðru í heiminum. »Ja, en kærleikurinn!« Hann háttaði, svaf illa, var troðinn möru og vaknaði daginn eptir með óþolandi höfuðverk. * * * 15*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.