Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1897, Side 7

Eimreiðin - 01.09.1897, Side 7
167 f>essum heiðursmönnúm! Hver silkihúfan upp af annari Það voru þeir tímarnir að Skíðaneshjónin töldu ekki eptir sjer að lofa manni að vera fáeinar nætur, þó allir sjeu búnir að gleyma því nú, þegar barnið þeirra á í hlut. Þið megið allir eins og þið eruð til fara til fjandans með ykkar mannkærleika og mannúðar viku Og hálfan mánuð. Jeg læt Ara fara heirn með rnjer í kvöld, og svo þarf ekkert meira um hann að tala, til næsta vors áð minnsta kosti.. »Fannst yður ekki Tobba gamla hrækja hraustlega.« Sagði prestur við Jón gamla á Heiði, þegar þeir kvöddust. »Ojú, já, það gjörði hún reyndar. Og okkur öllum til skammar.« »Hm, — »til skammar.« Ja, ekki veit jeg nú það, Jónminn!« »JÚ, jeg tek það ekki aptur. Hún hafði ein köllun og kjark til að gjöra kærleiksverkið. Já, sannarlegt og kristilegt kær- leiksverk.« »Og, jæja, skárra er það nú kærleiksverkið, að sýnast. Þor- björg þykist eiga fullerfitt, og á það líka, þó hún bæti ekki þung- um ómaga við hjá sjer. Og hvað svo? — Aumingja blessuð börn- in hennar verða að líða meira en áður, fyrir þennan stórbokka- skap hennar.« »Og nei, prestur minn. Þau hafa aldrei liðið fram úr hófi, börnin hennar Þorbjargar. Henni leggst ætíð eitthvað til. Og ver- ið þjer vissir um að svo verður enn þá. Við — nefndin — vor- um búnir að komast að því, að enginn vildi taka manngarminn. Og það jafnvel, þó boðið væri tvöfalt eða þrefalt með honum. Og svo sýndi það sig, að það ætluðu að verða stökustu vandræði með hann. Þjer þóttust alls ekki geta tekið hann nema eina viku.« »Það er alveg satt. Jeg gat ekki tekið hann nema eina viku fyrir ekki neitt. En sko til, tvö eða þrjú ómagaframfæri með svona manni er sama og ekki neitt. En það segi jeg yður satt, að fyrir sjö eða átta ómagaframfæri skyldi jeg hafa tekið hann. Og það er heimskulegt og skakkt að vera að hlífa opinberu fje, þó hreppsfje sje, og skaða sjálfan sig. Það er ekki vandfarið með svona gemlinga. Það grætur enginn, þó þeir hrökkvi upp af ein- um degi fyrr eða svo. Þá skoðun hefi jeg.« »Fari allir síra Salómonar, sem eins eru gerðir og þjer í op- ið hel.....,« sagði Jón um leið og hann stökk á bak Rauð sín- um og hleypti honum á harða spretti suður tröðina. — Þorbjörg hjelt Ara fram til sumarmála, og var honum sem börn-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.