Eimreiðin - 01.09.1897, Síða 20
i8o
lífinu! — Ó, það var orðið ofþungt þarna inni. — Hún var hrædd,
hrædd við allt, — hrædd við tilveruna, en lang hræddust við sig.
sjálfa. —,--------------------
Iða er næsti bær norðan við Kálíá. Kálfáin fellur ofan í
Langadalsá, á rnilli bæjanna Iðu og Kálfár. Bærinn Kálfá ber
nafn af ánni; en bærinn Iða af fossi sem er í henni og heitir
Iða. Langadalsá er mikið vatnsfall og fellur eptir Langadal og
alla leið til sjávar. Alfaravegurinn liggur eptir vestri bakka ár-
innar, og rjett við túnið á Kálfá og Iðu, og því yfir Kálfána á.
milli þessara bæja. Fyrir ofan vaðið á Kálfá, svo sem fimmtíu
fet, er svonefndur Laxahylur í ánni. Ofan í efri enda Laxahyls
fellur fossinn Iða, fram .af þrjátíu feta háu stuðlabergi. Upp við
fossinn er sarna hæð á berginu, sem myndar hylinn, beggja meg-
in, en fer svo smálækkandi eptir þvi sem neðar dregur.
VIII.
A jaröríki niöri var ndheima kyrö
Nístandí helpögnin rikti;
I fimmföldnm svefni foldin var hyrgö
Fjörvargur gapandi snikti.
Svartgrár þokubakkinn var hnyklaður saman í órjúfanlegan
flóka niður við sjóndeildarhringinn allt umhverfis. Þegar ofar dró
á loptið gluggaði út um hann meir og meir eptir því sem ofar
kom. Skýbólstrarnir riðluðust hver innan um annan, fram og
aptur fyrir ofviðrinu, sem var þar upp í geimnum, alveg eins og
heljarsterk rnóða hefði spyrnt og sprengt af sjer vetrarísinn og
væri að henda jakaröstinni fram og aptur, hossandi og sogandi,,
bálóð og heiptþrungin við þennan son andstjórnarinnar — frostið —
ófrelsis og kúgunar. — Tunglið í fyllingu óð þarna á bak við allt
og gægðist gegnum götin og rifurnar ofan til mannheima, náfölt
og tillitssljótt, — er aldrei bregður sjer við neitt, sem það sjer eða.
heyrir. En stjörnurnar höfðu augun opin, eins og þær eru vanar,.
deplandi og tindrandi ofan til jarðríkistilverunnar, byrgðu þau
stundum fljótlega en opnuðu þau einlægt jafnskjótt aptur; því
að allajafna blöskrar þeim að sjá öll þau ósköp og skelfing,
sem ganga á hjer niðri. — Blygðun manna, fyrir stjörnunum er á
mjög lágu stigi, og sízt á framfaraleið. En stjörnurnar hinar sí-
starandi, blessuðu, dýrðlegu stjörnur, eru í álögum almættisins.
Þær verða, þær hljóta vægðarlaust að sjá og horfa á allt, já hvað