Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1897, Síða 21

Eimreiðin - 01.09.1897, Síða 21
i8i eina, sem skeður á jarðriki á næturþeli. — Á norðurhvelinu sást líka endrum og sinnum til gyðjuhers norðurljósanna; þar ljeku gyðjurnar hringdans uppi í hvirflinum; svo slepptu þær tökum og steyptu sjer kvikar og ljettfættar niður úr honum á báða vegu um rennsljettar gullbrautir, breiddar gimsteinamuli, alla leið ofan undir hafflöt. En samt forðuðu þær eingernings roðasteins-skónum sín- um frá að ryðast af mannheims-leirnum.-------- Á syðri barminum við fossinn Iðu stóð Unnur. Hún tók ekki framar eptir neinu, sem gerðist í mannheimi. Orvinglunin hafði sett öll sin rnerki og stimpla á hana. Dauðinn glennti glott- andi og vægðarlaus greipar á móti henni í fossinum. En fossinn söng ærður og hamslaus ávallt hærra og hærra: Holdsveikin, holds- veikin. Laxarnir hlupu úr hylnum upp í fossinn, til að vita, hvað um væri að vera. En þá komu sumir við litlutána á Dauðanum, og voru þegar örendir. Þeir, sem gátu, forðuðu sjer ofan í hylinn aptur. Þá gægðist máninn fram á milli skýbólstranna, til að sjá, hvað væri þar á ferðum; náglott hans varð napurt og nístandi kalt, þegar hann sletti því yfir Laxahyl. Skugga brá fyrir upp yfir vatninu, er fjell ofan í hylinn. Það skall í öldum hátt upp urn bergið, sem hægðust smámsaman aptur og liðuðust í hring- mynduðum boðum út til allra hliða. — Eptir tvö, þrjú augnablik skaut upp nábleiku andliti, beint á móti hinum glottandi mána, sem brá sjer hvergi, — andliti stöfuðu ógnrúnum kvala og ang- istar. Aptur sáust boðar á yfirborðinu, sem smá minnkuðu og hurfu. En þá skaut einhverju upp á yfirborðið, líkast því sem mannshvirfill væri, og svo. —- ja, og svo varð allt hljótt.----— Dauðinn gekk brosleitur burt úr fossinum. En fossinn skipti um lög og söng, já, söng í makindum: »Dauð, drukknuð, myrt, — hó, hæ, hó! Skoðið líf og dauða, sjáið rúmið auða, hæ, hó hæ!« —Laxarnir fóru að gægjast fram og skoða hvað þetta væri, sem bætzt hefði við í híbýlum þeirra. Og sjá! það var ljómandi fallegur kvennlíkami, sem maraði rjett niður við botninn og þok- aðist ofan eptir Laxahyl. Loks náði líkið botnfestu. Fyrst lypti vatnið því ögn til og frá, en þyngdarlögmálið sagði: dýpra og dýpra, og svo fór það dýpra, seig og seig ofan í leðjukenndan botninn unz hann sje saman og lokaðist yfir líkinu og varð alveg eins og hann var áður. — Engin vegsummerki framar! Ekki örmull eptir ofan jarðar af 19 ára lífi nje líkama, — fegurð, gáfum, anda og mannlofi. -----------

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.