Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1897, Síða 70

Eimreiðin - 01.09.1897, Síða 70
230 leikann. Oss hefur hann gefið fegurðina, tálið og vonina. Og jeg, heimskur maður, hef afsalað mjer hlutskipti mannsins, ham- ingjunni.« Og hann þreif áhald og rykkti út auganu, sem hneixlaði hann. Og þegar litla, Ijóshærða Magga kom titrandi af kvíða til að spyrja, hvernig honum liði, sagði hann henni að hann hefði feng- ið óttalega bólgu í vinstra augað, og hefði hann því neyðzt til að stinga það út. »Það var ónýtt hvort sem var,« sagði hann. En þegar hann bauð henni að losna við hjúskaparheit sitt, hjúfr- aði hin fagra mær sig enn fastar um háls honum og sagði i hálf- um hljóðum: »En þó að það sje nú farið — áttu satnt eitt eptir, . .« -Og það er betra augað,« sagði læknirinn, »því að það er opið fyrir því, sem fagurt er . . . .« Lauslega þýtt af Guðm. Finnbogasyni. Bókafregn. 1. NÝ DÖNSIÍ ORÐABÓK MEÐ ÍSLENZKUM ÞÝÐINGUM. Aðal- höfundur Jónás Jónasson. Reykjavík 1896. (616 bls. alls tví- dálkaðar). Það var sönn þörf á þessari bók, og þó fyrr hefði verið; það er sómi fyrir aðalhöfundinn að hafa brotizt í að semja hana og jafnmikill sómi fyrir kostnað- armanninn að hafa prentað hana. Og það er vel frá bókinni gengið; prentið er skýrt og aðalorðin prentuð með feitara letri en hitt allt og er því auðgert að finna það orð í fljótu bragði, sem finna þarf í hvert skipti; stendur bókin að þessu leyti jafnfætis öðrum samskyns bókum í útlöndum, ef ekki framar. Það er þeirn, sem þetta ritar, sjerstakleg ánægja að minnast þessarar bókar hjer, og þar með benda á þær framfarir, sem gerast smám og smám á íslandi. Fyrir mörgum árum síðan gerði hann og annar landi hans bandalag til þess, að semja danskíslenzka orðabók, sem átti að vera með líku sniði og þessi, sem nú er fullger. Þeir gerðu upphafið og sendu það sem sýnishorn manni í Rvík, sem þá hafði »for- leggjara«-orð á sjér, en hann treystist ekki til að ráðast í stórvirkið — og fjell svo það mál niður.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.