Eimreiðin - 01.05.1909, Blaðsíða 3
83
En því er nú ver og miður, að þessi hnoss, sjálfstæðin, kem-
ur ekki eins og af sjálfu sér. Hún kemur ekki þvílíkt sem regn-
skúr úr loftinu, sem breiðir sig og drýpur yfir án allra verðleika
þeirra, sem fyrir verða.
Sjálfstæðin er sem sé árangur sáningar, en ekki sán-
ingin sjálf. Hún er afleiðing af góðri orsök, en ekki orsök-
in sjálf.
Mér koma kosningarnar í haust þannig fyrir sjónir, sem al-
menningur hafi haldið, að þá kæmi þjóðarsjálfstæðin af sjálfu sér
á seinni skipunum — eins og vara á vorskipi, ef hann hlypi frá
elju sinni inn í kjörherbergi og krossaði þar við nafn »sjálfstæðis-
manns«, enda þótt sá maður, sem krossinn hlaut, hefði aldrei
komist í þá sjálfsfórnar þraut á æfi sinni að sækja í vatnsfötur
fyrir móður sína, og því síður aðra meiri.
Eg er ekki með þessum orðum að gera gabb að sjálfstæðis-
hug þjóðarinnar — þeim sjálfstæðishug, sem er svo samgróinn
góðum dreng, sem hjartað er brjóstinu, eða augað höfðinu. Sú
sjálfstæðisþrá er mér hjartkær eins og barnið mitt í vöggunni.
En ég vil gera greinarmun á þeirri sjálfstæðisþrá, sem sprett-
ur upp í brjóstinu eins og lind, tárhrein, svo að heiðríkur himin-
inn sést í henni: þeirri sjálfstæðisþrá, sem mennirnir lifa fyrir og
fórna kröftum sínum fyrir, og þeim sjáifstæðis-stormhug, sem
mennirnir kasta á milli sín til meiðsla og mannskemda, eins og
knettinum í höll Goðmundar á Glæsisvöllum. Pau urðu leiks-
lokin þar, að eldur brennandi hljóp upp undan knettinum, þegar
hann var orðinn þeim öllum ofurefli, sem að honum léku, og
sumum að örkumlum.
Pað sem hefir orðið mér mest umhugsunarefni í haust, er þetta:
að þjóðin hefir ekki skilið það, eða þá ekki gætt þess, hver er
aðalgrundvöllur sjálfstæðinnar. Ef þessa er ekki gætt, ef enginn
gaumur eða þá lítill er gefinn þessum grundvelli, þá er alt þetta
veglega hús þjóðarsjálfstæðinnar hégómlegt hrófatildur, bygt á
foksandi. Og vér vitum hvaða forlög bíða þeirra bygginga, sem
þar eru reist. Eær hrynja, þegar á þær reynir.
En hvaða bakhjall þarf þá þjóðarsjálfstæðin að eiga, til þess
að hún verði þjóðinni að gagni og sæmd ?
Til þess þurfa einstaklingarnir að vera sjálfstæðir heima fyrir
á þann hátt, að þeir eigi efnahagsbolmagn til þess að standa
föstum fótum á eigin merg, og hugsunarfestu og dómgreind, til
6*