Eimreiðin - 01.05.1909, Blaðsíða 28
io8
binda eina sígræna lyngþúfu »inn við öræfin«. En þó eru þeir
fáir, sem þetta gera, en því síður betur.
Sá maður, sem þetta gerir, vinnur til þess, að um hann sé
kveðið og sungin yfir honum þessi vísuorð skáldsins :
Pví skal þér æ um aldur
ilmur úr grasi.
Öndvegisþjóðir heimsins.
Um langan aldur hefur England skipað öndvegissess heimsins
í öllum fimm heimsálfunum. Bretaveldi er nú nál. 13 miljónir
ferhyrningsmílna á stærð, þ. e. meir en fimtungur alls lands á
hnettinum. Stærð ríkjanna (Balfour og Asquith kalla þau nú
»states« eða ssister states«) í Bretaveldi er mismunandi, sem nú
skal greina.
Kanada Us> cn 8 0 ferh. mílur 6,500,000 íbúa
Ástralía 2,974,000 — — 4,400,000 —
Indland 1,766,000 — — 300,000,000 —
Bandaríki Suður-Afríku . . . 1,238,000 — — 6,400,000 —
Nýlendur í Vestur-Afríku . 486,000 — — 16,500,000 —
Austur-Afríka og Uganda . 398,000 — ■ — 7,500,000 —
Newfoundland og Labrador 162,000 — — 200,000 —
Bretland og írland 121,000 — — 45,000,000 —
New Zealand 104,000 — — 900,000 —
Egiptaland, Súdan, Ceylon,
Vestindisku eyjarnar 0. fl. 1,500,000 — — 27,000,000 —
alls. . 12,494,000 ferh. mílur 414,400,000 íbúa
Pannig býr fjórðungur alls mannkynsins í Bretaveldi. Hefur aldrei
nokkurt ríki verið jafnvíðlent og jafnmannmargt fyr né síðar. Nú
er að því að gæta samt, að af þessum aragrúa er aðeins hver
sjöundi maður hvítur maður, sem nú skal greina.