Eimreiðin - 01.05.1909, Blaðsíða 34
segir: »Við, sem höfum séð stríð, við þekkjum það. Ungir menn
leggja út í það og hníga klofnir og sundurslitnir niður úti á víða-
vangi, ungir vinnandi menn, sem voru heiminum til gagns og
gleði. Feður þeirra eru fátækir og gamlir. Mæður þeirra, sem
hafa elskað þá og tilbeðið með ást móður, fá löngu seinna að
vita, að eftirlætisgoðinu þeirra, sem þær hafa alið upp með svo
óþreytandi elju, kostnaði og umönnun, — honum var fleygt oní
gryfju, eins og sjálfdauðum hundskrokk, hræi, með kviðinn rifinn
sundur af kúlu, troðinn og marinn sundur af hestfótum riddara-
liðsins. Pví var mannvænlegi drengurinn hennar drepinn, auga-
steinn hennar og von, stoð og stytta, einkasonurinn? Pví þá?
Við þekkjum stríðið. Að eyðileggja á hálfu ári það, sem
kostaði 20 ár að byggja með þreyju og þoli og dugnaði og hug-
viti. — Petta á að hamla okkur frá að sökkva niður í svart
trúleysi.
Við höfum séð stríð. Við sáum mennina verða að dýrum.
Við sáum þá í ærslum, drepa í gamni eða af hræðslu eða til að
sýna af sér karlmensku. Við sáum þá skjóta veslinga á förnum
vegi, bara af því að þessir aumingjar voru hræddir. Við sáum
þá reyna nýjar byssur á hestum, kúm og hundum. Petta á að
bjarga okkur frá svörtu trúleysi.
Að brjótast inn á land annarra að myrða mann, sem ver
heimili sitt, af því hann er ekki í hermannabúningi (má því ekki
bera vopn), að brenna hús fátæklinga, brjóta og skemma búsgögn,
tæma vínkjallarann, nauðga konum og láta eftir sig hallæri og
kóleru. Petta á að bjarga okkur við svörtu trúleysi«.
Svona fóru hinir hámentuðu Pjóðverjar að ráði sínu 1870—71,
og hvert orð í þessu undirskrifa Englendingar. Peir hata ófrið og
hernað manna mest. Nú borga Bretland og Irland allan flota-
kostnaðinn, því hin ríki Breta borga aðeins 65. part í honum, öll
samanlögð, þó flotinn hlífi þeim. Verður England á þeirri skegg-
öld og skálmöld, sem fer í hönd, að láta öll hin brezku Banda-
ríki leggja sig í líma, leggja fram fé og menn, og sýna sömu
seiglu og þolgæði, sem Englendingar sýndu í viðureigninni við
Napóleon mikla.
Hvort þeirra sem verður ofaná, England eða Pýzkaland, verð-
ur drotnandi yfir Evrópu, Afríku, Ástralíu og hluta af Asíu. Peg-
ar um svo mikið er teflt, þá er von, að taflmennirnir séu lengi