Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1909, Side 32

Eimreiðin - 01.05.1909, Side 32
I 12 fær um 2,000 miljónir króna í ársvexti af fé, sem það hefir lagt í lendur sínar út um hnöttinn. England geymir lyklana að flestum stórhöfum (Gibraltar, Malta, Suez (Egiptaland), Aden, Perim, Singa- pore o. s. frv.), og 45 flotastöðvar með kolabirgðum hingað og þangað á hnettinum. Herskip og gufuskip annarra þjóða eru því komin upp á stöðvar Englendinga, þegar þau fara langt, kolalaus að öðrum kosti. Pað er engin skömm að því fyrir England, að það er ekki eins langt á undan Pýzkalandi og það var fyrir einum mannsaldri. Pjóðverjar hafa gengið í skóla hjá og lært af Englendingum. Vil- hjálmur keisari, sem er enskur í aðra ætt, sagði í ræðu í Ham- borg fyrir 10 árum: »Framtíð Pýzkalands er á hafinu«. Pessi orð voru letruð yfir inngang þýzku deildarinnar á heimssýningunni í París. Pjóðverjar þykjast sjá ellimörk á Englandi og búa sig í óða önn undir að taka við heimsveldinu af þeim. Kringum þessa tvo jötna, sem eru að hervæðast til að keppa um völdin, hnappast og flokkast öll ríki í Evrópu. Frakkland og Rússland hafa gert samkomulag (entente) við England um að vera samtaka gegn ofurvaldi Pýzkalands á meginlandi Evrópu. Pýzka- land hefir bundizt bandalagi við Austurríki og Italíu, en treystir þó lítt Ítalíu. Nú er því svo varið, að ef — eða þegar — þeim lendir sam- an, Énglendingum og Pjóðverjum, þá verður Danmörk milli steins og sleggju. Strandlengja Pýzkalands er mest við Eystrasalt, 927 mílur (enskar), en við Norðursjóinn 293 mílur. Við Eystrasalt er aðalflotastöð Pjóðverja, Kiel, og miklar verzlunarborgir t. d. Stettin og Dantzig. Englendingum ríður lífið á að verða svo fljótir til, í ófriði, að þeir geti kvíað inni flota Pjóðverja í heimahögum, og um leið tekið fyrir alla verzlun þeirra á sjó. En hér má segja eins og í Pjóðsögunum: Pú nýtur þess að ég næ ekki til þín. Floti Eng- lendinga kemst ekki inn í Eystrasalt, nær ekki í Pjóðverja nema hann fari inn um Eyrarsund, Stórabelti eða Litlabelti. Nú rista heljardrekarnir, Dreadnoughts, og fleiri stórskip svo djúpt, að þau komast ekki gegnum Eyrarsund. Heldur ekki um Litlabelti, af ýmsum ástæðum. Stórabelti er þeim fært, og þó vandi að þræða álinn. Par ætla Pjóðverjar þeim þegjandi þörfina. Peir hafa í mörg ár verið að mæla dýpt og grynningar í Stórabelti og strend- ur þess, rétt eins og þeir ættu það sjálfir, og hafa efalaust hnit-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.