Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1909, Qupperneq 33

Eimreiðin - 01.05.1909, Qupperneq 33
”3 miðað niður, hvar fljótandi sprengivélar og aðrar tálmanir eiga að hefta för Englendinga. En til þess að koma öllu þessu í kring, þegar á liggur, geta þeir ekki látið sér nægja með að rjúfa land- helgi Dana á sjó. Þeir verða líka að lenda á Sjálandi sjálfu. Og ef Danir meina þeim það ekki með valdi, þá telja Englendingar Dani, samkvæmt þjóðarréttinum, í fjandaflokki sínum. Englend- ingar mundu þá óðar ráðast á Khöfn. Ef Danir veittu Pjóðverj- um mótstöðu, er þeir vildu lenda, væri í sama óefni komið. Danir hafa lengi setið við þann keip, að vera með hvorugum, bíða þess að annarhvor hefði betur og vera þá méð honum. Hér verður því ekki við komið. Hvernig á að verja Sjáland, þegar Pjóðverjar geta flutt her manns yfrum Eystrasalt á einni nótt og lent við Kköfn morguninn eftir í býtið. Sumir Danir halda, að bezt sé að víggirða Khöfn og verja hana, þangað til Englending- ar — eða Pjóðverjar — koma og skakka leikinn. Sumir vilja víggirða Khöfn eingöngu sjávarmegin. Sumir vilja ekki víggirða hana. En þegar maður gætir að, að einn heljardreki, Dread- nought, kostar 34 til 36 miljónir króna, nærri tvisvar sinnum eins mikið og öll ársútgjöld Dana til hers og flota, þá sést, að stór- veldunum mun standa á sama hvað Danir gera. Pegar Pjóðverjar hafa búið svo um hnútana, að Eystrasalt er lokað fyrir Englendingum, þá geta þeir í næði flutt flota sinn um Kílaskurðinn og sameinað hann allan í Norðursjónum — á næstu grösum við England. Lord Roberts, sem frægastur er af núlifandi herforingjum Englendinga, hefir kveðið upp úr með það í ræðu í efri málstofunni, að mesti voði vofi yfir Englandi, nema Englend- ingar hafi óvígan her til að mæta Pjóðverjum, efþeir lenda. Ber að þeim brunni, að England verði að koma á almennri varnar- skyldu, eins og öll önnur lönd í Evrópu. Pessar tvær öndvegisþjóðir, sem ganga í broddi mentunarinn- ar, eru farnar að fá glímuskjálfta, enda eru þær harla ólíkar. Pjóðverjar vilja vinna sem mest með sverðseggjum. Peir trúa því, sem Moltke sagði einu sinni á fundi: »Ófriður, hernaður er heilagur, stofnaður af guði. Hann er eitt af æðstu lögmálum heims- ins. Hann styrkir hjá mönnunum allar stórar, göfugar tilfinningar, frægðargirnd, ósérplægni, hreysti; hann heldur mannkyninu frá að sökkva niður í svart trúleysi.« Petta er talað úr hjarta Pjóð- verja. Ólíkt er það, sem Maupassant, er var í stríðinu 1870—71, 8
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.