Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1909, Side 66

Eimreiðin - 01.05.1909, Side 66
146 er æfintýri, gullfallegt og efnismikið, þó stutt sé, en af alt annarri teg- und en hinar sögurnar. Þrjár næstu sögurnar »Fyrirgefning«, xþurkur* og »Skilnaður«, eru allar myndir úr daglega lífinu, skýrt dregnar myndir af smáatvikum, sem fæstir gefa gaum. Þar er sagt frá hugsunum stúlkukrakka, niður- setnings, um húsmóður sína, sem er dáin, frá dauða gamals útslitins einyrkja og sorg gamallar konu, sem er að missa son sinn, uppáhalds- barn sitt, frá sér til Vesturheims. Snildarlegust af þessum sögum er »Þurkur«. Þar er fyrst lýsing á slæpingslífi í kauptúni um sumartíma. og fram á þetta leiksvið kem- ur svo skyndilega höfuðpersónan, Þórður gamli í Króki, bláfátækur, út- taugaður ómagamaður, sem er dauðsjúkur, en í óráðinu að hugsa um þurkinn á heyinu sínu, um baráttuna fyrir lífinu, Hann segir æfisögu sína í þessum fáu, ógleymanlegu orðum: »Mér hefir aldrei lagst neitt til». Og svo deyr hann. Það eru hinar tvær andstæðu myndir í þessari sögu, sem mest á- hrif hafa á lesandann. Öðrumegin verzlunarmaðurinn, sem stritast við að liggja reykjandi í legubekknum, þreyttur af iðjuleysinu og rnakræð- inu. Hinumegin útslitni eljumaðurinn, sjúkur á sál og likama, æstur og óhemjandi af hugsuninni urn að geta ekki unnið. Að lesa hana er eins og að ganga úti um sumardag í molluveðri. Allir hlutir eru eitthvað daufir og renna saman, jafnvel sólin sýnist eins og hálflygnt auga. Skyndilega dregur upp kolsvart ský og innan skamms minna þrumur og eldingar, haglél eða húðarrigning á að lífið er hvorki eins mollulegt eða blíðlátt, eins og það stundum í bili getur virzt vera. Hinar framantöldu sögur hafa allar . verið prentaðar áður. En síðasta sagan. »Vitlausa Gunna«, birtist hér í fyrsta skifti. Það er æfisaga almúgastúlku, sem missir alt það, sem hún ann í lífinu. Unn- usti hennar yfirgefúr hana og barnið hennar deyr. Hún heldur aðeins eftir endurminningunni og jafnvel á henni hvílir stöðugt kolsvartur skuggi af eitruðum orðum, sem óvinur hennar hefir varpað inn í sál hennar og hafa læst sig þar föst. Hún lýkur æfi sinni sem vatnskerl- ing í Reykjavík, dullát og skapstygg, grafin niður í endurminningar sínar og sálarkvöl. Svona sögur, sagðar með þeirri óbreyttu einlægni, sem er ein- kenni þess bezta í stíl Einars Hjörleifssonar, hljóta að hafa áhrif. Þær hafa meiri góð áhrif en allar áminningar um mannúð og mannást; Þær víkka sjóndeildarhringinn og dýpka skilninginn á mannlífinu. Og það er svo margt, sem aflaga fer af tómum misskilningi. Læri menn- iinir að skilja, þá læra þeir síðar að fyrirgefa og elska. Skilningurinn er jafn nauðsynlegur fyrir mannssálina, til þess að nokkuð gott geti þróast í henni, eins og plægingin er fyrir akurinn. Og göfugra takmark en þetta, að þýða ísinn og brjóta skelina utan af sálunum, veit ég að Einar Hjörleifsson getur ekki kosið sög- um sínum. Sigurfiur Nordal. MARÍA JÓHANNSDÓTTIR: SYSTURNAR FRÁ GRÆNA- DAL. Rvík, 1908. (Sig. Kristjánsson). Bók þessi líkist miklu meira frumdráttum að sögu, en fullkominni

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.