Eimreiðin - 01.05.1909, Side 78
i58
Alþingi íslendinga og Stúdentafélagið í Reykjavík gera út um sammál
rikisins. Tungumál ríkisins er íslenzka.
3- gr.
Fyrir'að standa undir vernd niðja þeirra Snorra Sturlusonar og
Þorkels lögsögumanns, skulu Danir gera út skipaflota á ári hverju til
þess að vernda íslenzka fiskimenn gegn ágangi ólöglegra — svo sem
danskra — keppinauta.
4- gr-
Danmörk greiðir íslandi D/2 miljón króna í skatt þegar í stað og
framvegis svo mikið árlega, sem íslenzka stjórnin ákveður og þarf á
að halda.
Ráðgjafi íslands er yfirráðgjafi alls ríkisins, og eigi verður neinum
lögum komið á í nokkrum hluta ríkisins án undirskriftar hans, Að-
setur stjórnarinnar er í Reykjavík.
6- gr-
Konunglega leikhúsið, Pjóðbankinn, Tívolí og pálmagarður d’ Angle-
terres flytjist til Reykjavíkur eða Seyðisfjarðar, á kostnað ríkissjóðsins
danska, og ákveður alþingi nánara, hversu rnikla fúlgu Danmörku ber
að láta af hendi rakna árlega til viðhalds stofnunum þessum.
7- gr-
Danmörk lætur víggirða Reykjavík á sinn kostnað og heldur úti
herliði til varnar bænum.
8' gr’ . ■ r,
íslenzkur fáni verði löggiltur fáni alls ríkisins. Pó er ekkert því
til fyrirstöðu, að nota megi Danabrók innan landamerkja dönsku ný-
lendunnar, til þess að veifa á sérstökum héraðshátíðum.