Eimreiðin - 01.05.1911, Qupperneq 47
123
annar sparisjóður, svo framarlega sem aukin menning og aukin
þekking gerir þjóðirnar færari í lífsbaráttunnni.
En þó vér þannig getum ekki verið herra Bíldfell nema að
hálfu leyti samdóma um efnahagsatriðið, þá erurn vér honum
fyllilega samdóma um, að Tslenzkur landbúnaður sé enn í svo
miklu ólagi og svo langt á eftir tímanum, að svo búið megi ekki
standa. Með því búskaparlagi, sem nú á sér stað, verður oss
hvorki mögulegt að keppa við nágrannalöndin með afurðir vorar
á heimsmarkaðinum, né við aðrar atvinnugreinir í landinu sjálfu.
Eitthvað verður því til bragðs að taka, í einhverju að breyta til.
Herra Bíldfell leggur nú til, að menn hverfi frá ránbúskapn-
um og taki allan heyfeng sinn af ræktuðu landi, er ræktað sé
með plægingum og unnið með sláttu- og rakstrarvélum. Ennfremur
að menn snúi sér aðallega að nautgriparækt og bæti þann gripa-
stofn með nýju kyni, sem betra sé til frálags. Selji svo kjötið og
smjörið á brezka markaðinn, sem liggi svo vel við. Og til þess
að koma þessu búskaparlagi á, vill hann að stjórnin setji á stofn
fyrirmyndarbú, þar sem bændurnir geti séð hina nýju búskapar-
aðferð með eigin augum og hvað framleiða megi með henni úr
íslenzkum jarðvegi.
Allar þessar tillögur álítum vér góðar og gildar, enda eru
þær allar gamlir kunningjar. Pær hafa allar komið fram áður, en
gaman að heilsa upp á þær aftur úr nýrri átt. Aldrei góð vísa
of oft kveðin.
Um að hverfa frá hinni fornu ræktunaraðferð og snúa sér að
plægingum ritaði Björn sálugi Jensson sínar minnisstæðu og ágætu
ritgerðir, en sætti talsverðum andmælum. Um kynbæturnar ritaði
Guðjón sálugi Guðmundsson bezt og vann að þeim ótrauðlega
þau fáu ár, er hans naut við. Um notkun sláttu- og rakstrarvéla
hafa margir ritað, og eins um að efla nautgriparæktina og lifa
aðallega á ræktuðu landi. Meðal annarra hefir ritstjóri Eimr. jafn-
an haldið því fram, að það ætti að vera mark vort og mið, þótt
sauðfjárrækt með mikilli útbeit geti verið arðmeiri, þegar vel
gengur, og eigi betur við í sumum héruðum.
Að þessu hafa líka Búnaðarfélagið, Ræktunarfélag Norður-
lands og ýmsir einstakir menn unnið eigi alllítið á síðustu árum.
Og þó nokkuð hefir líka á unnist, þó smátt gangi Ræktun með
plægingum er byrjuð á ekki allfáum stöðum, notkun sláttuvéla
líka og fleiri annarra vinnuvéla, en rakstrarvélar víst fremur fáar