Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Síða 5

Eimreiðin - 01.05.1915, Síða 5
8i fótað um jörðina fyrir þeim, ef þeir á annað borð gætu lifað. I raun og veru mundi gerlamergðin aldrei verða eins mikil og reikn- ingsdæmið sýnir, því að samkepnin um matinn yrði svo mikil og grimm, að æðimikið mundi saxast á hópinn. Misjöfn kjör og sam- kepni dregur mikið úr fjölgun gerlanna; en óhemjulega mikil mergð getur þrátt fyrir það orðið til á skömmum tíma, þegar vel lætur. Æxlunargró eru ekki kunn meðal hinna eiginlegu gerla. Pau er aðeins að finna meðal slíðurgerlanna; en þeir eru miklu full- komnari en hinir eiginlegu gerlar. En dvalargró finnast yfirleitt meðal gerla, sem eiga við misjöfn kjör að búa. Dvalargróin mynd- ast, þegar lífskjörin verða svo þungbær, að lífi gerilsins er hætta búin. Geril- frymið dregst þá saman, og dvalar- gróið myndast úr því öllu, eða nokkr- um hluta þess, og utan um það myndast vatnshelt hýði. Dvalargróin eru svo vel úr garði gjörð, að þau þola vel þurk, eitur og hita, og eru, að kalla má, ódrepandi. Pau sakar ekki vitund, þótt þau sé soðin við 100 stiga hita. Eigi þeim að ríða að fullu, verður að sjóða þau hvað eftir annað við ioo stiga hita, eða í lok- uðu íláti, þar sem hitinn getur orðið meira en ioo0. Dvalargró eru algeng meðal jarð- gerla, og er það eðlilegt, því að kjörin eru þar mjög svo breyti- leg. En meðal vatnsgerla eru ekki dvalargró, og stendur það eflaust í sambandi við, að kjörin eru ekki eins breytileg í vatni. Að minsta kosti er engin hætta á, að gerlar í vatni þorni upp. Gerlar eru mjög óbrotnar og ófullkomnar smáverur, eins og ráða má af því, er sagt hefir verið. Peir teljast til jurtaríkisins, og skipa þar lægsta sætið. Eeim má skifta í tvo aðalflokka: eiginlega gerla (hnattgerlaœtt, stafgerlaœtt, vinduætt, brennisteinsgerla- ætt o. fl.) og þráðgerla (slíburgerlaœtt). Práðgerlaflokkurinn eða þráðgerlarnir er miklu fullkomnari. Gerlar eru enn þá lítt þektir að ýmsu leyti. Stærðin er afarmismunandi. Sumir eru örsmáir, svo að þeir verða ekki eygðir nema í venjulegri smásjá. En í 7. Smjörsýrugerill (Bacillus amylobacter), 10*0/,. a og b grólausar frumur; c—e frumur með dvalar- gróum.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.