Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Blaðsíða 68

Eimreiðin - 01.05.1915, Blaðsíða 68
144 sem láta selja sig — fyrir auð og metorð, eða fyrir hagsmuni ætt- ingja sinna.« f’etta voru fullkomin uppreistarorð á þeirri öld, en samkvæmt þeim breytir hún. Hún kemur upp rausnarbúi á Stóruborg og birtir í hvívetna frábæran skörungsskap. Og þegar hún er orðin fullkom- lega sjálfstæð að áliti og efnum, tekur hún að sér ungan og um- komulausan smaladreng. sem heillað hefir hjarta hennar, stofnar til sambúðar við hann og á með honum hvert barnið á fætur öðru, án þess að láta sér detta nokkra blygðun í hug fyrir það, eða gera minstu tilraun til að fara í neina launkofa með þetta framferði sitt. En þá hefst auðvitað áköf barátta milli hennar og Páls lögmanns bróður hennar, sem ekki vill vita af smalablóði í ætt sinni, og vill þröngva henni til að skilja við unnusta sinn og giftast öðrum. Og um þá baráttu hljóðar sagan, sem lýkur svo, að hún vinnur að lok- um sigur og fær að giftast þeim manni, sem hún hefir sjálf valið sér; en lögmaðurinn verður, þó voldugur væri, að lúta í lægra haldi og gefa samþykki sitt til ráðahagsins. Jóni Trausta hefir hér víða tekist vel, sem oftar, og eru margar ágætar lýsingar í bókinni. f’að er nú reyndar ekkert nýtt hjá honum, því þær hafa líka verið margar góðar í hinum fyrri sögum hans. En hann hefir hér verið sérstaklega heppinn í efnisvali sínu, og því kom- ist betur hjá að steyta á ýmsum steinum, sem honum hefir stundum orðið hált á. f’að. sem hér hefir hjálpað honum, frekar en áður. er það, að hann hefir valið sér efni. sem hefir gefið sköpunar- og hug- sjónaafli hans langtum fijálsari hendur, með því hann hefir ekki verið um of bundinn af sannsögulegum frásögnum. Að vísu eru höfuð- atburðimir sögulega sannir, en þó í svo mikilli þoku, að meira hefir orðið að byggja á þjóðsögum og munnmælum, en reglulegum sögu- legum heimildum. Og einmitt þetta hefir gefið hinni frábærlegu hug- sjónagáfu Jóns Trausta vind í seglin og gert sögu hans fullkomnari sem skáldsögu. Því þeim verður skáldið jafnan að haga sam- kvæmt kröfum listar sinnar, en e k k i eftir því, hvort alt, sem frá er sagt, er sögulega satt. Það er reyndar algeng krafa á íslandi, að alt eigi að vera sögulega rétt eða satt, sem frá er sagt í skáldsögum bygðum á sögulegum grundvelli, og því hafa Islendingar aldrei getað felt sig við meðferð stórskáldanna Oehlenschlægers og William Morris á ástasögu þeirra Guðrúnar Ósvífrsdóttur og Kjartans í Laxdælu. En þetta er herfilegasti misskilningur. Skáldið er að semja 1 i s t a v e r k , en ekki alment sagnarit, og verður að haga sér eftir því. Og óhætt er að segja, að margar af fornsögunum okkar hefðu aldrei orðið önn- ur eins listaverk og þær eru, ef ekkert væri í þeim nema sannsögu- legir viðburðir. Einmitt af því, að í þeim er líka svo mikið af skáldskap, eins og í þeim er, þá eru þær þeir gimsteinar, sem þær eru. Veikasta atriðið í þessari sögu Jóns Trausta er lýsing hans á Hjalta, unnusta Önnu frá Stóruborg. Honum hefir ekki tekist, að gera lesandanum það fyllilega skiljanlegt, hvers vegna Anna einmitt velur sér þennan umkomulausa smaladreng. Því þó hann hafi falleg augu og verði með tímanum nokkur íþróttamaður (skurðhagur og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.