Eimreiðin - 01.05.1915, Blaðsíða 7
83
•efnið úr ólífrænum samböndum, úr kolsýru loftsins. Kraftinn til
þess, að vinna kolsýruna, fá þeir við efnabreytingar, elding ólíf-
rænna efna. Saltpétursgerlarnir búa þannig til lífræn efni úr ólíf-
rænum efnum, þótt ekki séu þeir grænir, og sólarljósið komi
hvergi nærri. Petta kollvarpar með öllu gömlu kenningunni, að
grænar jurtir einar gætu framleitt lífræn efni af ólífrænum efnum.
Samkvæmt þróunarkenningunni eiga allar lífsverur að vera
komnar af ófullkomnum frumverum. Pessar frumverur hljóta að
hafa breytt ólífrænum efnum í lífræn efni. Álit manna hefir ver-
ið, að frumveran eða frumverurnar hafi verið grænar. En úr því
að saltpétursgerlarnir geta unnið lífræn efni úr líflausri náttúru, án
sólarljóss og græns litar, þá er alveg eins líklegt, að frumverurnar
hafi verið eitthvað svipaðar gerl-
um. Vel getur hugsast, að gerl-
arnir hafi þegar verið farnir að
byggja jörðina, meðan hún var
svo heit, að vatnið var í gufu-
formi kringum hana, í svo þykk-
um mekki, að geislar sólarinnar
gátu ekki brotist í gegnum hann.
Gerlarnir skiftast þá í sjálf-
bjarga og ósjálfbjarga gerla.
Ósjálfbjarga gerlar skiftast í
sníkjugerla og rotgerla.
Sníkjugerlar eru algengir
á lifandi verum. Peir valda veik-
indum á dýrum og jurtum. Margir þeirra eru orðnir svo vanir
sníkjunum, að þeir geta ekki öðruvísi lifað, og er erfitt að rækta
marga þeirra. Margir sníkjugerlar geta og lifað sem rotgerlar, ef
verkast vill.
Sníkjugerlarnir eru kunnastir alþýðu manna. Eigi er það þó
svo að skilja, að þeir séu hverjum manni sýnilegir; því að þeir
eru svo smáir, að þeir sjást ekki nema í góðri smásjá. En af
verkunum skuluð þér dæma þá. Það geta menn gert, þótt gerl-
arnir séu smáir; því að verk þeirra eru oft mikil og ill í lifandi
dýrum. Pessi örlitla gerilögn leggur oft stóran og sterkan mann
að velli á örstuttum tíma. Eeir eru sannkallaðir óvinir þeirra
vera, sem þeir sníkja á; og sökum smæðarinnar er erfitt að var-
ast þessa ósýnilegu fjendur. Til þess að varast þá, verður mað-
9. Berklagerlar (BacUritim tuber-
culosis), litaður hráki; dökku
strikin eru gerlarnir.
10<7