Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Blaðsíða 18

Eimreiðin - 01.05.1915, Blaðsíða 18
94 sem kvikað gat. Ljósmóðir okkar barnanna sagðist samt reifa lausara en aðrar konur. Svo var látin húfa á höfuðið, eða »kappi«, þó oftar húfa, og framan á henni var baldíruð bust, en sjálf var hún úr lérefti, fíngerðum ullardúk eða silki. Ég á skírnarhúfu mína enn, úr hvítu silki með rauðgrænum rósum. Síðan var lagður klútur úr mjög smá- gerðu lérefti yfir höfuðið, og náði hann langt niður eftir reifastrangan- um. Aldrei var hann bundinn, heldur hékk hann laus niður, en mað- ur átti sífelt að gæta þess, að hann færi ekki ofan af höfðinu. Mér gleymdist áður að geta þess, að áður en farið var að reifa barnið, var látinn hvítur ullarflóki utan um fæturna, svo því yrði ekki kalt á fótum; því það sagði ljósmóðir mín, að væri svo óholt. Nú var bamið látið í vögguna og stungið upp í það dúsumii, sem aldrei mátti gleyma. Var hún svo gerð, að tekin var fíngerð léreftspjatla, hvít og hrein, tuggið eða blandað saman hveitibrauði og sykri og látið í miðjuna á þessari pjötlu, og svo bundið um fyrir neð- an dúsuna með tvinna, og stungið upp í barnið, meðan það svaf. Lítil var dúsan fyrst, en látin smástækka, eftir því sem barnið 'óx. Vaknaði nú barnið og færi að hljóða, þá var það tekið upp og því gefið að drekka. Það var enginn hægðarleikur, að mér fanst, að komast eftir, hvort barnið væri búið að væta sig. Mér var oft sagt að gæta að því. I’á varð fyrst að leysa lindann, annars gat maður ekki komist að því að neðan. Nú var maður loks kominn svo langt, að náð varð í duluna instu. Sat þar alt kirfilega, og dulan dregin butt, en látin í staðinn önnur hrein og þur. Síðán var aftur reifað saman og barninu gefið að drekka úr pela. Hreinum svampi úr lyfjabúð var stungið í stútinn á pelanum, og bundið ofan yfir hvítt léreft, hjá ljósmóður minni, en allavega litt sá ég það vera á bæjun- um í sveitinni, og meira að segja sá ég konur vöðla togi, hreinu lík- lega, og binda bláum eða rauðröndóttum tuskum yfir. Eins var með dúsuna, að allavega litt léreft sá ég haft í hana, og konur tugðu köku og smjör í hana, og oft skófir. Börn gengu með dúsur 2—3 ára, það man ég. Éá var og siður, að tyggja matinn í börnin, unz þau voru búin að taka tennur. En skelfing bauð mér við, að sjá það. Það var ekki verið að bleyta matinn ofan í tannlaus börnin, — nei, heldur voru tennur fullorðna fólksins hafðar til þess. Ég var oft uppi hjá ljósmóður minni, og altaf var eitthvert ung- barn hjá henni, því hún tók þau öll heim í viku; nema Jónas, hann var kyr, þangað til ljósmóðir mín dó, og var hann þá 4 ára. • í’á fór hann til foreldranna, er bjuggu á móti foreldrum mínum, áður en þau fluttu að Hömrum. Já, í reifunum voru börn höfð í 4 mánuði, en þó stundum skem- ur, væru þau hraust. Kjóll var hafður utan yfir reifunum, úr því þau voru mánaðargömul, og skift um föt á þeim annanhvern dag. Ætíð voru þau skírð í kjól, ekki hvítum þó, heldur rauðrósóttum. Læknar héldu þá hollara, að hafa þessa reifa, heldur en að láta súginn leggja inn á hol á þeim, því altaf eru þau magaveik nú orðið. Fyrrum var ekki siður, að standa eða sitja með börnin í fanginu, eins og nú gerist, að minsta kosti hjá fávísum mæðrum, sem nóg er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.