Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Qupperneq 14

Eimreiðin - 01.05.1915, Qupperneq 14
90 og flytja þá meö sér þá gerla, sem verða á vegi þeirra. Regn- vatn og snjór innihalda því oft talsvert af gerlum, einkum eftir að langvarandi þurkar hafa gengið. Regnið og snjórinn hreinsa þannig loftið. Pegar langvinnar rigningar hafa gengið, er óhætt að fullyrða, að loftið sé gerlalaust. I hagli og dögg er og all- mikið af gerlum. Allur sá aragrúi af gerlum, sem berst frá bústöðum manna og úr gróðrarmoldinni, í læki og ár, á þar skamma æfi, eins og drepið var á. En nokkrar gerlategundir finnast þó venjulega í vatni, og eru sumar þeirra allstórir þráðgerlar. Sumir sóttgerl- ar (taugaveiki, kólera) geta all-lengi lifað í vatni. Loftið er ekki bústaður gerla, þótt þeir séu þar á ferðinni. Gerlarnir eru börn jarðarinnar, eins og aðrar lífsverur, og halda sér dauðahaldi við yfirborð jarðarinnar. En í langvinnum þurk- um þornar jörðin, einkum þar sem enginn gróður skýlir henni. f*á sleppa gerlarnir tökum, og vindurinn þyrlar þeim upp í loftið, og ber þá með sér til fjarlægra staða. Úr yfirborði vatna ber- ast engir gerlar upp í loftið, því að gerlarnir halda sér dauða- haldi við vatnið. En vindköstin líða yfir vatnsflötinn og smáar bárur myndast við bakkana, og smáslettur og skvettir koma á steina og annað í bakkanum. Slettan þornar svo upp, og gerl- arnir, sem í henni voru, eru þá heimilislausir, og vindurinn tekur þá með sér upp í loftið. Pað er auðskilið, að gerlafjöldi í loftinu er mjög misjafn, eft- ir árstíðum og eftir veðrinu. Flestir eru gerlar í loftinu, þegar jörðin skrælnar í langvinnum þurkum og vindar eru tíðir. En fá- ir gerlar eru í loftinu, þar sem það er kyrt og rótt, og logn dög- um og vikum saman; því að gerlarnir falla þá smátt og smátt aftur til jarðarinnar, og komast ekki aftur upp í loftið, fyr en vindurinn hjálpar þeim. í þurkum er mjög mikið af gerlum • í loftinu uppi yfir fjölförnum götum. Götur í borgum eru vökvað- ar í þurkum. Vatnið, sem kemur á götuna, hjálpar gerlunum til þess, að haldast við jörðina, og þá þyrlast minna upp í loftið. En í þuru göturyki eru gerlarnir nauðulega staddir, og fjöldamargir láta þar líf sitt. En vatnsvagninn færir þeim nýtt líf og nýjan þrótt. Götuvökvan er því gerlavökvan. Annað mál væri, ef vatnsstraum væri hleypt á götuna. Hann mundi sópa öllu ryki og öllum gerlum af götunni, og fara með það niður í skolpræsin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.