Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Qupperneq 27

Eimreiðin - 01.05.1915, Qupperneq 27
103 vinnukonurnar að mæla eftir mér og sögðu, að það væri ekki von, að ég gæti það, og mamma dálítið líka. En hann bað þær að skifta sér ekkert af því. Ja, hvað átti ég að gera? Það var vani, að hlýða pabba, og ég þorði ekki að segja, að ég gæti það ekki. Hann var ekki byrstur, en alvarlegur, og sagði mér að ganga hægt, gæta að því. Ég fór á stað, og hugsaði mér að gera eins og hann sagði. Ég hafði aldrei gengið ein í myrkri fyr. Þá segir hann: »Vittu nú einu sinni til.« Ég gerði þetta, en þegar ég kem að eldhúsborð- inu, sýnist mér mannsandlit við hinn endann á borðinu. Tunglsbirta var dauf, og lagði birtuna skáhalt inn um gluggann. Nú lá mér við að hljóða hátt, — nei, pabbi hlustar, hugsaði ég. Gríp ég svo hlut- inn, sem ég átti að sækja (það var hamar), og ætla nú að hlaupa. En þá kom mér pabbi í hug, og ég reyni að ganga hægt, en pipr- ingur var í mér, er ég kom inn. Þakkaði pabbi mér fyrir, og gaf mér rúsínur. Þetta var á vökunni, og alt fólkið sat við vinnu sína og starði á mig, þegar ég kom, því það vissi, hvað ég var myrk- fælin. Nóg var af draugasögum á hvers manns vörum, og huldufólk var í hveijum hól, já, í steinunum líka. Ef einhver saga, sem Stefán bróð- ir minn las, entist ekki alla kvöldvökuna, var undir eins byrjað að segja þessar vitlausu sögur, sem faðir minn kallaði þær; en mömmu þótti gaman að þeim. Fór þá pabbi að segja sögur í gagnstæða átt, að hann hefði oft heyrt og séð ýmislegt undarlegt, en undireins og hann hefði rannsakað það, hefði alt orðið náttúrlegt, og svona væri það ætíð. En seinna, er ég var orðin fullorðin, fann ég, að hann var þó ekki laus við að trúa sumu. En vegna barna sinna þóttist hann engu trúa. Mikið var í þá daga af þessum svo kölluðu fáráðlingum, sem ekk- ert vissu annað en það, að guð hefði skapað þá. Man ég eftir kerl- ingu, sem hét Katrín. Maður hennar hét Asmundur. Þau bjuggu und- ir Kirkjufelli, á bænum Hlein. Kerling sú kunni að prjóna, og annað ekki. En hún kunni að ganga í kletta. Á Kirkjufelli eru klettabelti mörg, og sumstaðar breiðir stallar, grasi vaxnir, á milli beltanna. Og þangað sóttu kindur á haustin. Nú vantaði Árna sýslumann í Kross- nesi sauð mikinn, og þóttust menn sjá hann á einum stallanum. Hlein er skamt frá Krossnesi. Sendi sýslumaður eftir kerlingu og spyr hana, hvort hún vilji reyna að ná í sauðinn; en fyrir hvern mun megi hún ekki hætta lífi sínu. »Af þessum stalli er mér hægt að ná kind,« seg- ir kerling. fer á stað og heim. Snjóhrafl var á jörðu og dáh'tið frost. Kerling kemst á stallann, og ýtir kindinni niður á annan stall. Kemur þá örn og hremmir klónum í föt kerlingar, svo hún hrapar ofan fyrir, og þar fljúgast þau á, unz kerling hrapar alla leið niður á jafnsléttu. Enginn sá þetta, nema bóndi hennar, og heldur, hún sé steindauð. En svo var þó ekki. En meðvitundarlaus var hún litla stund. Samt getur hún staulast heim. En örninn var dauður, og varð karl að skera fataleppana utan af klónum. Kerling lá í 3 daga, en var þá batnað, og hvergi beinbrotin. Sauðurinn hafði, meðan áflogin stóðu milli arnar og kerlingar, hrapað, og var dauður. En eigi að síður sendi Árni sýslumaður kerlingu 4 rd. (= 8 kr.), blessaður höfðinginn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.