Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Page 29

Eimreiðin - 01.05.1915, Page 29
105 að vinnukonan, sem sé að álasa sér, sé bara svín, hún sé fædd á Kothrauni, og hingað og þangað, og flissar nú mjög. Svarar þá hin, að Snjálaug hafi ekkert kunnað, og sé sú mesta b........... ómynd í alla staði. Þá kvað faðir minn: Vinnur Snjálaug verkin sín, Finnur prúða faldalín, vanans gætir, slíkt er man. flan ei hentar við það stjan. l’á segir Snjálaug: »Ó, bless húbbóndi minn, sona er hann altaf góur vi mi.« Börn, sem konur báru út eða fyrirfóru, voru kallaðir útburUr. Og útburðarvæl var oft verið að tala um í æsku minni. þetta út- burðarvæl heyrðist ekki nema á undan illviðrum og mannskaða- veðrum. Eitt sinn á hausti var verið að reiða á völl hjá okkur, og varð að fara yfir tvær litlar ár. þannig var að farið, að í haugnum stóð karlmaður og mokaði í kláfana. Þá fórum við systkinin með sinn hestinn hvert okkar og teymdum upp túnið, öll ríðandi. Kvennmað- ur tók við hesti mínum, og ég tók tóma hestinn hennar, og mætti þá öðrum drengjanna. Það gekk altaf á víxl. Eitt sinn seint um kveld, þegar ég var nýbúin að taka við hesti Stebba bróður, og hann er á heimleið, en ég að fara yfir Austurkvíslina, þá heyri ég ógurlegt vein, eða væl, uppi í hlíðinni fyrir ofan túnið. Tunglsljós var, og það vildi mér til, annars hefði ég orðið trylt af hræðslu. En þegar ég kom upp úr ánni, kemur; kvennmaðurinn hlaupandi á móti mér í ofboði, því hún hafði heyrt þetta, og segir: »Heyrirðu nokk- uð?« — »Já,« segi ég hálfkjökrandi; »hvað er þetta væl?« — »Það er aumingja útburður,« segir hún. Þá varð ég svo hrædd, að ég var nærri dottin af baki. Þá segir hún: »Flýttu þér heim, elskan mín, og komdu ekki aftur.« Ég bið hana að fara ekki með hestana upp túnið. »0g mér er óhætt,« segir hún. »Ég er búin að heyra þetta svo oft áður.« Ég tölti af stað, og komst með hestana að haugnum. Við riðum öðrum hesti en þeim, sem borið var á. Þá var dugurinn þrotinn, og hné ég niður af hestinum, líklega í öngvit, og vissi ekki af mér, fyr en ég var komin upp i rúm og báðir foreldrar mínir stóðu yfir mér. Þá sagði pabbi: »Þetta eru sagnir úr trúgjörnum almúga, því það er sannað, að þetta er fugl.« Ég man það, að alt kveldið var ég svo óstyrk, að ég gat hvorki borðað, né farið ofan á gólf. Og lengi bjó ég að þessari skelfingar hræðslu á eftir. Þá er að minnast á fylgjurnar. Thit Jensen ritar um þær í bók sinni »Sagn og Syner«. En ekki kannast ég við, að það sé alveg rétt, fremur en annað fleira, er hún ritar um ísland. Því hún bland- ar saman fylgjum og sendingum, og segir að fylgjurnar fylgi hverri ætt. En þetta er ekki rétt. Hún veit svo margt, en mér finst það vera uridan og ofan af, en ekki alt sem réttast. Sé fylgjan, sem fylgir hveijum manni, er hann fæðist, brend, þá fylgir honum stjarna eða ljós. En sé hún grafin niður í jörð, þá fylgir honum hundur, költur eða eitthvert annað dýr. Þetta sagði mér ljósmóðir mín, Guðrún sál. Þorvarðsdóttir. Hún sagðist ætíð brenna fylgjurnar, svo ljós yrði fylgjan. Og stjarna væri á undan okkur systkinunum, sagði ljósmóðir mfn.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.