Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Page 30

Eimreiðin - 01.05.1915, Page 30
io6 Einu sinni á æfinni hefi ég séð fylgju. Jón sál. bróðir minn var suður við Búðir. Ég sat hjá ljósmóður minni í rökkrinu, og sé ég þá ofurlitla stjörnu færast inn að stól, er stóð á gólfinu. Þá seg- ir ljósmóðir mín: »Þarna er fylgjan hans Nonna bróður þíns.« Það stóð heima, því hann kom daginn eftir. Oddur læknir Hjaltalín hafði sagt, að fylgjan sín væri lítill, svart- ur hundur, með hvítan díl í rófunni. Fyrri kcna hans var dönsk hirð- mey, og kyntist hann henni fyrst á þann hátt, að hún var veik í fæti; en bróðir hennar, er var skólabróðir Odds, bað hann að lækna systur sína, er aðrir læknar gætu ekki. Gerði Oddur það, og henni batnaði. Eitt sinn sem oftar kom Oddur til hennar kveld eitt, og segir hún þá: »Mér þykir það skrítið, að ég er tvisvar búin að sjá lítinn hund svart- an, með hvíta stjörnu í rófunni, á undan þér, og það hlýtur að vera fylgjan þfn.« Þessi hefðarmey, fædd Bojesen, varð kona Odds. Hún var af tignum ættum, og merkiskona mikil. Oddur Hjaltalín bjó bæði í Grundarfirði og á Berserkjahrauni í Helgafellssveit, en síðast í Bjarn- arhöfn í sömu sveit, og þar andaðist hann árið 1840. Eins og áður er sagt, var kona Odds bæði mikilhæf og góð, og svo látlaus, að hún skamtaði sjálf í askana, og kastaði út á pottinn, og tjáði sig við öll bú- störf, sem bóndakona væri. Sendingar, er eiga að fylgja ættum í 3. og jafnvel í 9. lið, eru þannig til komnar, að sá, er býr út sendinguna, gerir það af heift við ættina, að vekja upp draug. .Hjón suður í Kjós áttu dóttur gjaf- vaxta. Vinnumaður legst á hugi við hana, en stúlkan vill ekki heyra hann né sjá, og foreldrarnir ekki heldur. Þá reiðist vinnumaður mjög, og sendir henni draug, með þeim ummælum, að hann skyldi fylgja ættinni í 3.—4. lið. Nafn draugsins var Móri, af því hann var í mó- rauðri úlpu. Nú verður dóttirin prestskona á Setbergi í Eyrarsveit, því hún giftist séra Jóni Benediktssyni. Þau áttu mörg börn, Benedikt Ga- bríel, Jón og margar dætur. Jón prestsson var mikill söngmaður, svo mikill, að ég hefi aldrei á æfi minni heyrt eins fagra rödd úr nokkrum mannsbarka, að und- anteknum verzlunarmanni Suhr, er var í Rvfk. En sá var þó munur- inn, að rödd hans var fáguð og prýdd í skólum sönglistarinnar, en Jón kunni engar reglur í söng. En eigi að síður var röddin átakan- lega fögur, og allar þær »trillur«, sem hann gat búið til upp úr sér, það sætti undrum. Því þótt kirkjan væri full af syngjandi fólki, beyrð- ist ekkert til þess, þegar Jón byijaði. Það var á einu hausti, að haldinn var einhver hreppsfundur í Grundarfirði, og voru allir komnir af stað, nema Jón prestsson. Var hann að vanda beðinn að syngja, sem hann líka var fús til. Fáein börn af næstu bæjum höfðu komið til leika. Þau voru öll úti á flöt. Einn af þeim var Jónas frændi, nú í Ameríku. Fór móðir mín út í skemmu, er stóð kippkorn frá húsinu, einungis fáa faðma, til að sækja rjóma í kaffi, er Jón prestsson átti að fá. Þegar hún kemur út úr skemmunni, sér hún strákhnokka á skemmumæninum, er rær bakföll- um svo mjög, að hryggurinn nam við skemmuþakið. Hún kallar og segir: iLáttu ekki svona, strákur, þú getur hryggbrotið þig.« Heldur hún, það sé Jónas. Þá rennir hann sér öfugur ofan og hverfur. En

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.