Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Side 31

Eimreiðin - 01.05.1915, Side 31
107 hún fer á eftir honum. Lítið sund var á tni!li skemmu og smiðju, og ætlar hún þar að ná honum. En þar var enginn. Annað sund var milli smiðju og fjóss, og hleypur hún þangað. En þar var heldur enginn. Nú verður hún hissa, gengur með hægð til barnanna, sem eru öll að leika sér, og spyr, hvort Jónas hafi farið nokkuð frá, eða yfir að skemmunni. f’ví neita þau öll og segja, að ekkert þeirra hafi farið út fyrir markið, því það séu lög hjá þeim. Tunglskin var á, og voru börnin fjarska ánægð þarna, en segja við hana öll: »Sástu hann Móra?« — »Hvaða vitleysa,« segir hún; »hver segir, að ég hafi séð nokkuð ?« Svo fer móðir mín inn, en öll börnin koma á hæla henni og inn í stofu. Hún verður hissa og spyr, því þau leiki sér ekki, þangað til þau fái kaffi. — Nei, þau geti það ómögulega vegna hans Móra. Pá segir móðir mín: »Sáuð þið hann?« — »Nei, við vissum af honum í kringum okkur.« — Eitt af börnum þessum var Málm- fríður Möller, kona um sextugt hér í Stykkishólmi; segist hún aldrei verða svo gömul, að hún gleymi hræðslunni, sem hljóp í börnin þetta kveld. Það var kölluð Móra-hræðsla. Margar kynjasögur fleiri en þetta gengu um sveitina. Marta, dótt- ir séra Jóns á Setbergi, giftist bónda, og bjuggu þau í Kirkjufeíli. f’á var Móri að taka rjómann ofan af trogunum hjá henni; og honum var það að kenna, að þau urðu fátæk. Satt var það, að þau voru allajafna fátæk, þau hjón, og hygg ég, að orsakir þess hafi ekki allar stafað af Móra. Margar fleiri sögur hefi ég til af Setbergs-Móra, en ekki hefi ég nenningu til að segja þær í þetta sinn. Einnig hefi ég margar skrítnar sögur um f’orgarð, er geta komið seinna, fýsi nokkurn að heyra. Brynhildur. Með gildragi fór ég á göngumannsleið, og girntist þó veglendi betra. — En utan við gilið, á andnesi fremst, var útburður, mörg huttdruð vetra. í liolurð, sem er fyrir handan það gil, ’ann hrein, svo að við kvað í bæjum, er óskaparigning í aðsigi var og önugur stormur á gægjum.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.