Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Side 41

Eimreiðin - 01.05.1915, Side 41
af skyldfólki ætlaði til kirkjunnar, þegar hún roðnaði út undir eyru, af því hann Sveinbjörn Gunnarsson tók ofan fyrir henni hinumegin á götunni. Henni sárnaði það nú samt, því það hefði þó varla getað komið til af öðru, en að hún hefði rekið augun í, að stígvél fermingarsystur hennar voru götótt og slitin, og treyj- an snjáð og bætt á fleirum en einum stað. — Þessi blessuð hé- gómagirni! þaö virtist ekki vera neinn hægðarleikur, að ríða hana á slig. í sömu andrá kom hún auga á móður sína, sem beið henn- ar fyrir utan nýtízkubúðina. »Parna er hún mamma,« sagði hún, og fann reglulega til sín af því, að þessi fallega og skrautbúna kona skyldi vera móð- ir sín. »þá er bezt, ég fari; ég þarf líka að flýta mér í vinn- una.« »Ert þú í vinnu?« »Já, en ekki nema helminginn af deginum. Við verðum öll að hjálpast að, að vinna okkur dálítið inn.« »Vertu sæl!« sagði Ella, »ég ætla að bjóða þér heim til okkar einhvern daginn.« — Og svo skildu þær. »Var þetta fermingarsystirr« spurði móðirin, »hún var svo fátæklega til fara.« »Já, hún er líka fátæk. Hún verður að vera í vitinu hjá óviðkomandi fólki.« »það er fallegt af þér, að taka hana ögn að þér og liðsinna henni.« »Og öllu má nú nafn gefa,< svaraði Ella og roðnaði aftur; því henni datt þá í hug, hvernig fór, þegar hún mætti honum Sveinbirni Gunnarssyni. Pær mæðgurnar fóru nú að skoða hvíta silkistranga og rekja þá sundur. Ella þuklaði á silkinu og vöðlaði því milli handanna. Henni fanst svo gaman, að þukla á þessum mjúku og gljáandi fataefnum. En alt í einu rankaði hún við sér og sagði: »Ætli það væri nú ekki betra, að við tækjum dökkan kjól? Mundi ég ekki hafa meira gagn af honum?* Hún fyrirvarð sig jafnharðan og hún var búin að ljúka spurningunni; því henni fanst, að hún væri nú ekki fyllilega hreinskilin. Móðir hennar leit á hana forviða: »Til hvers ættirðu svo

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.