Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Qupperneq 42

Eimreiðin - 01.05.1915, Qupperneq 42
118 sem að brúka hann? I’að er nú ekki siður, að ungar stúlkur gangi í dökkum fötum.« »Stúlkan, sem þú sást áðan, sagðist eiga að vera í dökkum kjól; og hún var svo hrædd um, að hún yrði sú eina.c »Nú, svo að skiljaU — Móðir hennar brosti og klappaði henni á vangann og sagði: »En við tökum nú hvítan kjól.c Ellu fanst eins og steini væri létt af sér, þegar hún heyrði, að móðir hennar skar sona úr. »En þú verður sannarlega að leggja orð í belg um valið á efninu, Ella mín. Mér liggur við að óska, að þú værir ofurlítið meira hégómagjörn, en þú ert.« Ella leit dálítið hissa á móður sína. Pað var ekki henni líkt, að vera að fara með neina léttúð. Svo sátu þær heima um kvöldið og dáðust að öllu skraut- inu, sem þær höfðu keypt. Ella var altaf dálítið utan við sig; hún yrði að komast eftir því, hvort það væri nú í raun og veru meining mömmu sinnar, að það væri engin synd, að vera hégómagjörn. — Og á endanum spurði hún hana að því. »Pað er nú eins og það er tekið,« svaraði móðir hennar. »Mér finst nú, að ofurlítið af hégómagirni eigi að sjálfsögðu að vera hverri ungri stúlku meðfætt.c »Pví þá það?« »Af því að það er skylda okkar, að líta svo vel og laglega út, sem við getum, og þessvegna megum við ekki láta okkur á sama standa, hvernig við göngum til fara.« — »Er þá ekki karlmönnunum slík hégómagirni meðfædd?« »Hégómagirni karlmannanna er af öðru sauðahúsi. Hún er kölluð metnaðargirni, og hún er helzta framkvæmdaraflið í lífi fjölmargra karlmanna.« »Hefir hann pabbi þá verið metnaðargjarn?« »Hann byrjaði sem fátækur unglingur með tvær hendur tóm- ar. En nú er hann búinn að koma á fót stórri verksmiðjuverzlun, græða sér allmikið fé og eignast fallegt heimili.« »Er það þá alt saman ávöxtur af hégómagirni ?« »Metnaðargirni eða hégómagirni, hvort sem þú vilt nú held- ur kalla það. Án hennar mundi ekkert verða framkvæmt hér í heiminum.« »En það er þó altaf ljótt, að láta mikið á sér bera, með því
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.