Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Síða 50

Eimreiðin - 01.05.1915, Síða 50
126 Pví skal nú sízt neita, aö svo gat virzt, sem ekki væri all- lítil ástæða til þessa frá kirkjulegu sjónarmiði. En frá almennu sjónarmiði var það þó tæplega réttlátt, ef ljóö f’orsteins voru lesin vel niður í kjölinn. Pað, sem hann eiginlega var að berjast á móti, var auðvald, harðstjórn og hervald. Og þar sem þjóð- kirkjan styddi þetta og legði blessun sína yfir það sem guði þóknanlegt, þá væri líka sjálfsagt að berjast á móti guðshugmynd hennar. Pví það væri ekki sú rétta guðshugmynd, ekki sá sanni kærleikans guð kristindómsins, sem Kristur sjálfur prédikaði og kendi um, faðirinn algóði. Nei, það væri ekki annað en skrípa- mynd af guði, falsguð, sem sjálfsagt væri að steypa af stóli >nið- ur í annaðhvort hafið« (Atlantshafið eða Kyrrahafið). Pað væri hinn grimmi og blóðþyrsti guð Gamlatestamentisins, guð harð- stjórnar og herskapar, sem notaður væri af þjónum þjóðkirkjunn- ar til að leggja blessun sína yfir auðvald og kúgun, harðstjórn og hervald, en hirti lítt um þá smælingja, fátæka og volaða, sem Kristur bar mest fyrir brjósti. Sá guð mundi og ætti að fara sömu leiðina og Júpíter, Zevs og Óðinn: »reka sinn brothætta bát á blindskér í hafdjúpi alda«. »Allra mest hans instu taugar altaf særðu þeir, er sína þræla börðu — það var eins á himni og jörðu.« »0g ef þú hatar herra þann, sem harðfjötrar þig, og kúgar til að elska ekkert annað en sig, en kaupir hrós af hræddum þrælum,. hvar sem hann fer, þá skal ég líka af heilum huga hata með þér.« »Ef antu þeim, sem heftur hlær og hristir sín bönd, og vildi ekki krjúpa og kyssa kúgarans hönd, en hugum-stór að hinsta dómi hlekkina ber, þá skal ég eins af öllu hjarta unna með þér.« »Hvar er ykkar þjóðkirkja heilög og hörð, sem hábindur óþæga sauði. og hefur um aldirnar haldið hér vörð lijá hertýgjum vorum og auði.« »í fátækt skortir bæði náð og brauð, því bendir guð þér veg með þjónum sínum: þú verður, vinur, fyrst að fá þér auð, þá færðu líka náð hjá drotni þínum,«

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.