Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Side 51

Eimreiðin - 01.05.1915, Side 51
127 hafi þér ei hepnast »stöðu« að ná, og heldur ekki lánast vel að biía, þá mun þér veröld verða gæðafá og vinir drottins að þér baki snúa.« d rottin sjálfan þekkir ekki þú, þá þekkjast allir bezt af vinum sínum; °R gáðu að, hverjum hlotnast virðing stí, að hafa sæti næstir presti þínum.« »Og eins er drottinn auði vorum hjá og allar vorar syndaflækjur greiðir, og börnin okkar verða voldug þá, þó vitið skorti, — náðin guðs þau 1eiðir.« »Og eins er það, að þá. sem eiga gull, frá þjófnað verndar náðarherrann blíði, en þtísund svarthol á hér fjandinn full af flökkuþjóð og öðrum sultarlýði.« »1*11 félaus maður mátt hér líða nauð, og munt í Víti síðar kenna á hörðu; en takist þér að eiga nógan auð, þig englar geyma bæði á himni og jörðu.« Eins og menn munu sjá, ef menn lesa þetta með athygli, þá er það hinn herfilegasti misskilningur, að hér sé í raun og veru verið að ráðast á guð eða guðstrú. Nei, það er aðeins sá falsguð, sú skrípamynd af guði, er þjónar kirkjunnar hafi með framferði sínu og kenningum skapað í augum almennings, sem verið er að ráðast á. Pað er verið að sýna fram á, hve afskap- lega menn hafi misbrúkað guðs nafn, og hve mikil þörf sé á, að hreinsa guðshugmyndina af þeim sora, sem búið sé að hlaða utan á hana, svo hinn s a n n i guð, guð kærleika og miskunnar, guð fátækra og volaðra, Krists guð, sjáist ekki lengur. Hann sé eins og horfinn úr sögunni, en í hans stað kominn auðvaldsguð, harðstjórnarguð og herskaparguð. Auðvitað má búast við, að prestunum veiti örðugt, að átta sig á, að þessu sé þannig varið, því þeim hættir nú jafnan við, að álíta árásir á sig og kenningar sínar sem árásir á guð. Og þeim er nokkur vorkunn; því þeir eru breyskir menn, eins og við hinir, og veitir því erfiðara, að sjá bjálkann í sínu eigin auga, en flísina í auga bróður síns. Enda eiga og árásir t\ E. miklu fremur við presta í öðrum lönd- 9'

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.