Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Síða 60

Eimreiðin - 01.05.1915, Síða 60
136 lausir við fégræðgi og undirferli — einmitt af því það er alt brezkt, eins og það leggur sig.« Pá verður og skáldinu skrafdrjúgt um hið »heilaga hatur«, og má sem dæmi þess nefna, að hann í svo nefndri therbœn*. ákallar guð þannig: »Þú, sem býr í himni þínum hátt uppi yfir kerúbum, seröfum og zeppelínum, þú, sem situr sem þrumuguð í hásæti, er ljómar af eldingum frá skýjum, eldingum frá sverðum og skotvopnum, sendu þrumur og eldingar, hagl og hreggviðri ótæpt niður yfir fjandmenn vora, gefðu oss fána þeirra og steyptu þeim niður í myrkur og múgakasir.« í öðru kvæði um hið »heilaga hatur« segir svo: »Við vor- um alveg búnir að gleyma því, þessu brennandi hatri, við Pjóð- verjar, sem er svo gjarnt til að glápa með aðdáun á valska tízku og útlend þjóðkyn, eins og það væru þau, sem gæfu okk- ur alt gott. Við réttum Japönum þýzk hervopn og hinum brezku kramarasálum þýzk vísindi, og glöddumst yfir því, að efla andstæðinga vora að orku með því, sem sköpunarandi vor hafði framleitt. Pað stendur ekki lengur. Nú hefir augum vor- um gefist að líta óþrjótandi níðingsskap. Peir, sem við gerðum sæla, þeir öfundast nú í sameiningu yfir hinni sólfáðu sælubraut vorri, þeir, sem við hervæddum, beina nú vanþakklátir eitruðum örvum að hjarta voru; þá, sem neytt hafa af brauði anda vors, sjáum við nú í fúlmensku sinni vinna að glötun vorri. Ó, guð, þú, sem hefir stækustu óbeit á rögum launmorðingjum og ert grimmilegur andstæðingur gráðugs vanþakklætis, við þökkum þér, að svikagrímunni hefir nú verið svift af höfði hræsnaranna. Hjálpa þú oss til þess, að dæma það með þínu heilaga hatri, sem með ósvífni er að seilast eftir kórónu þinni, svo að við aldrei hættum að eyðileggja, fyr en dauðinn hefir látið ávöxtinn ná fullum þroska.« Pað var leitt, að honum Porsteini Erlingssyni skyldi ekki endast aldur til að sjá þessi þýzku kvæði og önnur svipuð um- mæli og ávörp til guðs hjá hernaðarþjóðunum, síðan þetta mikla heimsstríð hófst. Pau hefðu getað gefið honum yrkisefni í mergjað kvæði, þó það hefði sjálfsagt orðið nokkuð á annan veg en sigursöngvar þýzka prestsins. En svo má líka segja, að hann hafi ekki þurft þess með; hann hafi með sínu glögga skáldauga verið búinn að sjá þetta fyrir og farið nærri um, hvað prestum herskaparþjóðanna væri innanbrjósts. Eví er ekki

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.