Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Síða 63

Eimreiðin - 01.05.1915, Síða 63
139 Mót eftirlaunum æst ég fer — það alþýðuna lokkar, um embættlinga ég úteys mér, ef ybba sig þeir hnokkar, kjördæmið er mér annast um, öllum verð ég mót bitlingum, nema því, sem þarf til okkar. Eg rausa’ eitthvað um útlent vald og auðvald hinu megin, um andstæðinga afturhald verða orð mín lítið þvegin, svo þetta gamla um þjóðræði og þingræði og sjálfstæði — þeir gleypa þetta, greyin. Eg veit að þetta’ er bara bull og bannsett orðagjálfur, af þessu’ er nú samt þjóðin full, það sér hver meðalkálfur, á flestu vinnur vaninn svig — ég veit það kemur fyrir mig, ég trúi sumu sjálfur. Flokkurinn, það er þjóðarsalt, þjóðfrelsis, sannleiks vígi, hans skoðun rétt um eitt og alt á öllu málsins stigi; en alt það sama, auðvitað, ef andstæðingur segir það, er bölvað bull og lygi. Og ef ég, karl minn, kemst á þing að kosningunum loknum, þá sver ég, þó ég sveimi í kring með samvizku í skrokknum, að hvítt sé svart, og svart sé hvítt, og satt sé logið, gamalt nýtt — ég verð að fylgja flokknum. Svo eining flokksins ei sé raup, sem enginn nokkurs metur, verður að hafa hrossakaup, þá hrifsar hver sem getur; ég fæ mér svona sannfæring um sitt og hvað, sem dugar þing — nema’ einhver bjóði betur. það er þægilegra í þingsalnum, en þrauka’ í for og sudda; og þörf er mér á þinglaunum, því þarna er tóm mín budda. Ráðherra' á endanum — eða hvað ? Ekki er ég verri en... Nóg um það! Gefðu’ okkur kaffi, Gudda! SIGFÚS BLÖNDAL.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.