Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Side 70

Eimreiðin - 01.05.1915, Side 70
146 rýni í því formi getur oft gert meira gagn, heldur en þrumandi vand- lætingarræður. Slík ádeilukvæði særa engan, menn geta ekki annað en brosað að þeim, en geta þó um leið fundið til háðsins. Sú gagn- rýnisaðferð, að gera menn og verk þeirra hlægileg, hefir því oft meiri og víðtækari áhrif en nokkur önnur. Sum af tækifæriskvæðunum eru og dágóð, en helzt til mikið aí þeim í ekki stærri bók. f’annig eru þar ekki færri en 11 íslands- minni, 8 brúðkaupskvæði, 7 eftirmæli, 4 jólakvæði, 4 sumarvísur, 3 nýjárskvæði og 3 kveðjur. Aðalgallinn er þó sá, að í bókina hafa verið tekin talsvert mörg óþroskuð kvæði, sem auðsjáanlega stafa frá æskuárum höfundarins, og sem eru lítið annað en eintómt bergmál af kvæðum annarra skálda. f'annig er t. d. »Alfasöngur« (9) ekki annað en uppsuða úr »Álfa- söngum* Jóns Ólafssonar og »Jólnasumbli« Gríms Thomsens, »Foss- inn minn« bergmál af »Litli fossinn« eftir Pál Ólafsson, »Reiðvísur« stæling af »Sprettur« og öðrum ferðakvæðum eftir Hannes Hafstein og »Svo fjær og þó svo nær« aðeins breytt útgáfa af »Ástin í fjar- lægð« eftir Stgr. Thorsteinsson. Bæði þessi síðasttöldu kvæði eru að vísu falleg (»Reiðvísur« meira að segja ljómandi), en svo lík kvæðum hinna skáldanna, að maður kannast undir eins við, að það eru þau í nýjum búningi. Hver, sem vill hafa fyrir að bera þetta saman, mun fljótt sjá, að alt er sama tóbakið. En vel getur verið, að þetta sé alveg óafvitandi hjá höf.; áhrifin frá hinum kvæðunum hafi aðeins legið blundandi í huga hans, og komið þar upp úr kafinu, þegar hann tók að yrkja, og hann þá haldið, að þetta væru hans eigin frumsköpuðu hugsanir. Slíkt hefir fleiri hent fyr, en ætti jafnan að varast. En þó að kvæði þessi séu þannig ekki sérlega frumleg, þá getur maður samt vel skilið vinsældir þeirra. Eplið fellur sjaldan langt frá eikinni, og þar sem höf. er hvers tnanns hugljúfi, þá er ekki ónáttúr- legt, að þessum »börnuni« hans bregði beint í ættina og vinni hylli lesenda sinna eins og faðirinn. V G. JAKOB THORARENSEN: SNÆLJÓS. Kvæði. Rvík 1914. Hún er ekki stór þessi kvæðabók, 96 bls. í litlu broti, en maður les hvert kvæði í henni með ánægju. Þar er svo fátt af göllum, en mikið af kostum. Rímið er alstaðar lipurt og létt og orðaskipun svo náttúrleg, sem bezt verður á kosið. Og hér víð bætist, að efnið er furðulega margbreytt, og að öllum jafnaði einkar laglega með það farið. Að vísu má segja, að þar séu engin stórkostleg tilþrif, enginn djúpsettur, stórfeldur skáldskapur; en maður saknar þess ekki svo mjög, þar sem hinsvegar ekkert kvæði er algerlega ónýtt, og mörg eða jafnvel flest góð. Og þó er þar ekkert bergmál frá öðrum skáld- um, sem annars er svo algengt hjá byrjendum, heldur alt auðsjáan- lega frumhugsað frá eigin brjósti, kryddað með svo þægilegri gletni, að hún minnir mann á Jón Thoroddsen; enda bendir það á, að hann muni höf. kærri en flest önnur skáld, að hann hefir ort um hann fallegt lofkvæði. Sem dæmi upp á góð ádeilu- og gletniskvæði

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.