Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1987, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1987, Page 14
14 LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGOLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr. Verð i lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr. Leyndarstefnan hefnir sín Bezt er, að fólk rasi ekki um ráð fram í mati á fregn- um af lausagangi fyrrverandi leyndarskjala, þar sem fjallað er útlendum augum um samskipti íslands við umheiminn. Hins vegar er upphlaupið út af Stefáni Jó- hanni gagnlegt, því að það bendir á, hvað gera þarf. Umræður á Alþingi í fyrradag um leyniskjalamálið beindust í stórum dráttum í réttan farveg. Margir þing- menn og ráðherrar bentu á, hve nauðsynlegt er, að íslenzk trúnaðarskjöl séu birt þjóðinni eftir föstum regl- um að ákveðnum tíma liðnum. Það er kjarni málsins. Því miður er upplýsingaskylda íslenzkra stjórnvalda miklu minni en í flestum nágrannalöndunum, til dæmis Norðurlöndunum og Bandaríkjunum. Verra er, að kerf- iskarlar ráðuneytanna hafa látið semja frumvarpsdrög, sem staðfesta, að allt skuli alltaf fara leynt. ; Þegar menn kerfisins festa ekki viðkvæm mál á blað eða gæta þess, að þau fréttist ekki út, eru þeir að magna vanþekkingu og grunsemdir þjóðarinnar. Auk þess eru þeir óbeint að sverta minningu látinna manna, í þessu tilviki Stefáns Jóhanns Stefánssonar forsætisráðherra. Afleiðing leyndaráráttunnar hér á landi er, að utan- ríkissaga íslands er skoðuð með útlendum augum. Sagnfræðingar fara í erlend söfn til að skoða skjöl, þeg- ar leyndinni hefur verið létt af þeim. Þessi skjöl varpa dýrmætu ljósi á íslandssöguna, en segja hana ekki alla. Sérstaklega er varhugavert að horfa á söguna augum bandarískra embættismanna. Saga utanríkisþjónustu Bandaríkjanna er stráð stórslysum, sem stafa af, að fulltrúar þeirra hafa átt furðulega erfitt með að skilja hugarfar, venjur og stjórnmál í öðrum ríkjum. Hugsanlegt er/ að bandarískir embættismenn hafi á tímum kalda stríðsins talið, að sumir ráðamenn íslands væru þeim sammála um, að. Rússarnir væru að koma. Sú skoðun mundi þó ekkert segja um, hvort hinir ís- lenzku ráðamenn voru í raun sammála þeim eða ekki. Hið gagnlega við bandarísku skjölin er, að fjölmiðlar geta sagt frá þeim og þar með þrýst á ráðamenn heima fyrir um, að settar verði traustar reglur um upplýsinga- skyldu stjórnvalda og þar á meðal um birtingu leyndar- skjala að liðnum aldarfjórðungi frá atburðum. Sem betur fer er enn á lífi einn ráðherranna þriggja, sem fóru á sínum tíma vestur um haf til að ræða örygg- ismál við Bandaríkjastjórn. Brýnt er, að Eysteinn Jónsson verði nú fenginn til að gera opinbera grein og ítarlegri en áður fyrir rás hinna umtöluðu atburða. Meirihluti þjóðarinnar mun frekar treysta því, sem gamli fjármálaráðherrann segir um mál þetta, en því, sem norskan sagnfræðing minnir að hafa séð í banda- rísku safni. Einnig betur en því, sem stendur í skáldsög- unni Atómstöðinni um sama efni eftir Halldór Laxness. Liðinn er sá tími, að umtalsverður hluti þjóðarinnar sé reiðubúinn að stimpla flölda manna sem landráða- menn fyrir að stýra utanríkisstefnu íslands í þann farveg, sem að fjórum áratugum liðnum hefur í helztu dráttum reynzt vera farsæll og verður fram haldið. Þjóðin var fyrir löngu undir það búin, að kerfið opn- aði skjöl sín til skoðunar og birtingar, jafnt í hinum \iðkvæmu varnarmálum sem 1 öðrum málum. Nú er komið tækifæri til að ítreka, að brýnt er að setja lög um nánast skilyrðislausa upplýsingaskyldu stjórnvalda. Ógæfulegt er, að stjórnvöld komist áratugum saman upp með’að telja þjóðina óhæfa um að draga ályktanir af upplýsingum um mikilvægustu þætti þjóðmálanna. Jónas Kristjánsson Úti að aka í kvikmynd Ridleys Scott, Blade Runner, fer umferð í borgum fram- tíðarinnar ekki aðeins fram á láði heldur einnig í lofti. Stjómendur hinna tæknivæddu ökutækja þurfa þar ekki aðeins að líta fram á við, til hægri og vinstri, heldur einnig upp og niður fyrir sig. Satt best að segja fmnst mér ég upplifa þessa framtíðarsýn Scotts í Reykjavík nútíðar, bæði kvölds og morgna. Að minnsta kosti er aldrei að vita hvaðan bílamir koma. Samferðamennimir í umferðinni gera sig líklega til að fara inn um bílhurðina hjá manni, bæði frá hægri og vinstri, stundum undir því yfirskyni að þeir séu að taka fram úr. Þeir koma öfugir upp ein- stefnugötur, spóla sig yfir umferð- areyjur, gangstéttir, jafnvel garðskika. Gengisfall dollarans hefur líklega haft bein áhrif á aksturslag Reyk- víkinga því að það hefur gert ótal óábyrgum aðilum kleift að eignast laglegar jeppabifreiðar sem em mest notaðar til torfæruaksturs innanbæjar. Það er engu líkara en að íslend- ingar séu nýbúnir að uppgötva bíhnn, séu á stöðugu ökufylhríi og það alveg bláedrú. Flestir. í fyrragær horfði ég upp á árekst- ur nálægt miðbænum, þar sem í blíðskaparveðri skullu saman fuh- trúar þriggja mikiUa bílaþjóða, Þýskalands, ítaUu og Japan. .. . hræðileg fegurð Út úr þessum bifreiðum stigu all- ir bílstjórar og farþegar ómeiddir en dáldið óstyrkir á fótunum. Þetta var ungt fólk og vel til haft, það sem einn kunningi minn kailar „hressir uppar“ í eilítið niðrandi tón, nema hvað þessi ungmenni voru frekar óhress akkúrat þá stundina. Nú get ég fuUyrt að enginn þess- ara bíla var á þess konar hraða sem með fyrirsagnaletri er nefndur „ofsahraði“. Þeir skuUu einfaldlega saman eins og þrír tarfar, hægt og mark- visst sem væm þeir atriði í mekanískum ballett, já, það var meira að segja þokkafull súrreaUsk póesía í þessum óvænta samfundi. Bílarnir komu sinn úr hvorri átt- inni, eins og regnhlíf og saumavél, fuUkomlega óafvitandi hver af öðr- um. FerU þeirra skarst síðan í þremur parabólum á skurðarboröi götunnar er þeir skuUu saman. Þar með var fædd ný og hræðileg fegurð svo að snúið sé eUítið út úr orðum stórskáldsins Yeats. Ég er ekki með bUadeUu, fremur en aðrar vélfræðUegar dellur. En það hryggir mig ævinlega að sjá fallega hannaða hluti, hvort sem um er að ræða stól eða bU, lagða í rúst. Særðir stórgripir Þar sem ég virti fyrir mér sund- urtætt grilhð á strandaða Benzan- Aðalsteinn Ingólfsson í talfæri um, sem teiknað er eins og fordyr að Paradís, og leifarnar af einu stefnuljósi Fíatsins, sem eitt sinn sat á sínum stað með sínum sér- staka ítalska stæl, eins og stoltlegur plastskúlptúr, fann ég meira tU með dauöum hlutunum en Guðisé- lof sprellifandi fólkinu, sem stuðlað hafði að þessari viðurstyggð eyði- leggingarinnar. Ég hef náttúrlega ekki einhUta skýringu á því hvers vegna þrír ökumenn með öll skilningarvit og bUa í lagi standa fyrir svona uppá- komu um hábjartan daginn. í nokkrar mínútur sniglaðist ég í kringum bUana sem stundu lágt og skulfu eins og særðir stórgripir meðan þeir útheUtu vessum sínum yfir brotum stráð malbikið. Er ég leit inn í þá fékk ég sterklega á til- finninguna að lögð heíðu verið drög að þessum árekstri endur fyr- ir löngu, jafnvel í góðærinu á árunum eftir stríð. Þar sem bílamir særðu voru of ungir/nýir gátu þeir ekki borið umhirðu eigendanna vitni. Ég geri samt ráð fyrir að eigendunum hetði ekki staðið á sama um útht bUa sinna sem er svo stór hluti af ímynd nútíma einstaklings. En hversu annt sem þeim var um útht bílanna var það þeim augljós- lega sem hismi utan um kjamann, þá lokuðu plussveröld sem þeir höíðu skapað sér inni í þeim. Símaviðtöl út af milljónum Allir vora þeir með hátalara á strategískum stöðum, vönduð út- vörp, kassettutæki og samansafn af spólum. Einn þeirra var þar að auki með risavaxið ferðaútvarpstæki í bak- sæti, sem gleymst hafði að skrúfa fyrir. „Money, money“ með BiUy Idol var þar spilað fullum dampi. Tveir bUstjóranna höfðu komið sér upp ferðasíma, þótt ekki virtust þeir líklegir til að standa í við- kvæmum og áríðandi símavið- tölum út af mUljónaviðskiptum, svona rétt meðan þeir væra að skjótast út í sjoppu. Annar þeirra hafði einnig fjárfest í hraðavara (offara?) sem kúrði upp við brákaða bílrúðu og blikkaði kaldhæðnislega sínu staka rauða auga. Sérhver umræddra bíla og sjálf- sagt helftin af bílunum, sem renndu sér varfærnis- og forvitni- lega framhjá árekstrinum, var eins og smækkuð útgáfa þeirrar hluta- veraldar sem við íslendingar eram að byggja upp í kringum okkur og höldum dauðahaldi í. En það er eins og við hlutadýrk- endur höfum ekki gert okkur ljóst að það er aUt annað að umgangast þessi appíröt heima við, þar sem maðurinn getur venjulega ekki skaðað neinn nema sjálfan sig og sína nánustu, heldur en á fuUri ferð úfi á götum borgarinnar. í lögregluskýrslu vegna þess áreksturs sem hér er til umræðu stendur sjálfsagt að ökumennimir hafi „ekki séð“ hver annan. Það læðist að mér sú hugsun að þeir hafi verið aUtof önnum kafnir við að hlusta og tala tU að sjá, hvað þá tU að aka bíl. -ai

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.