Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1987, Qupperneq 53
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1987.
65
Fólk í fréttum
Gunngeir Pétursson
Gunngeir Pétursson skrifstofu-
stjóri hefur verið í fréttum DV
vegna fyrirhugaðrar nafnbreyting-
ar á götunni Sigtúni í Reykjavík
og kröftugra mótmæla íbúanna.
Friðrik Gunngeir er fæddur 28.
janúar 1921 og varð stúdent úr MR
1941. Hann var við nám í verkfræði
í tvo vetur og var fulltrúi hjá bygg-
ingafulltrúa Rvíkur 1945-1947.
Gunngeir var kennari við Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar í Rvík
1947-1955 og skrifstofustjóri hjá
byggingafulltrúa Rvíkur frá 1955.
Hann hefur kennt við Verslunar-
' skóla íslands frá 1956 og var einn
stofnenda Bridgefélags Rvíkur.
Gunngeir hefur verið formaður
Bridgefélags Rvíkur og verið í
landsliði íslendinga í bridge.
Gunngeir kvæntist 12. október
1946 Sigurrós Guðbjörgu Eyjólfs-
dóttur, f. 23. ágúst 1922. Foreldrar
hennar eru Eyjólfur Guðbrands-
son, verkamaður í Rvík, og kona
hans, Herdís Sigurðardóttir. Börn
Gunngeirs og Sigurrósar eru Her-
dís Björg, f. 26. september 1947, gift
Friðrik Bjömssyni, stórkaup-
manni í Rvík, og eiga þau þrjú börn,
Viðar, f. 27. september 1949, guð-
fræðingur og b. á Ásum í Gnúp-
verjahreppi, giftur Höllu
Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú
böm. Systkini Gunngeirs voru
Hildur, f. 12. október 1907, d. 1907,
Viðar, f. 24. nóvember 1908, tann-
læknir, giftur Ellen Knudsen,
Zophonias, f. 17. maí 1910, d. 1984,
deildarstjóri hjá Tryggingastofn-
uninni, giftur Stellu Sigurðardótt-
ur, Hrafnhildur, f. 5. febrúar 1912,
d. 1966, gift Sigurði Sigurðssyni,
bankaritara í Rvík, d. 1955, Áki, f.
22. september 1913, d. 1970, deildar-
stjóri á Hagstofunni, giftur Krist-
ínu Grímsdóttur, Sturla, f. 6.
september 1915, starfsmaður hjá
Rafmagnsveitu Rvíkur, giftur
Steinunni Hermannsdóttur, Jakob-
ína, f. 9. desember 1917, var gift
Hafsteini Gíslasyni, starfsmanni
Loftleiða, d. 1976, Skarphéðinn, f.
11. október 1918, d. 1974, prófastur
í Bjarnanesi, giftur Sigurlaugu
Guðjónsdóttur, Helga Guörún, f. 17.
nóvember 1925, gift Helga Thor-
valdsson, lagermanni á Reykjavík-
urflugvelli, Jarþrúður, f. 27. ágúst
1927, gift Anton Líndal Friðriks-
syni, bryta í Rvík, Jóhanna Soffia,
f. 2. nóvember 1904, sambýlismaður
hennar var Ingólfur Árnason, út-
gerðarmaður á Siglufirði, Ingólfur,
f. 21. október 1906, skrifstofumaður
hjá Vegagerð ríkisins, giftur Sæ-
björgu Jónasdóttur, Svanlaug, f. 27.
desember 1910, var gift Hannesi
Guðjónssyni, verkamanni í Rvík.
Foreldrar Gunngeirs voru Pétur
Zóphóníasson, ættfræðingur i
Rvík, og kona hans, Guðrún Jóns-
dóttir. Bróðir Péturs var Páll
búnaðarmálastjóri. Faðir Péturs
var Zóphónías, prófastur í Viðvík,
Halldórsson, b. í Brekku í Svarfað-
ardal Rögnvaldssonar. Móðir
Halldórs var Soffia Þorsteinsdóttir,
systir Hallgríms, föður Jónasar
skálds. Bróðir Soffiu var Baldvin,
langafi Jóhanns Sigurjónssonar
skálds. Móðir Péturs var Jóhanna,
systir Friðriks, föður Sturlu erföa-
fræðings. Jóhanna var dóttir Jóns
dómstjóra Péturssonar og konu
hans, Soffiu Bogadóttur, systir
Benedikts, langafa Áslaugar, móð-
ur Geirs Hallgrímssonar. Systir
Soffiu var Ragnheiður, langamma
Guðnýjar, móöur Vals Arnþórs-
sonar.
Guðrún var systir Þorbjargar,
ömmu Péturs Guðjónssonar, for-
manns Flokks mannsins. Systir
Guðrúnar var Kristveig, amma
Hafliða Vilhelmssonar rithöfund-
ar, Guðrún var dóttir Jóns, b. á
Ásmundarstöðum á Melrakka-
sléttu Árnasonar. Móðir Guðrúnar
var Hildur, systir Ingibjargar,
ömmu Jóns Hjörleifs Jónssonar
skólastjóra og langömmu Silju Að-
alsteinsdóttur bókmenntafræð-
ings. Bróðir Guðrúnar var Stefán,
Gunngeir Pétursson.
afi Björns Önundarsonar trygg-
ingayfirlæknis og langafi Vigdísar
Grímsdóttur rithöfundar. Hildur
var dóttir Jóns, b. á Skinnalóni Sig-
urðssonar og konu hans Þorbjarg-
ar Stefánsdóttur, langömmu
Hilmars bankastjóra, föður Stefáns
bankastjóra og langömmu Hildar,
móður Ólafar Pálsdóttur mynd-
höggvara.
Afmæli
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson frá Skíðsholtum,
nú búsettur að Þórunnargötu 1,
Borgarnesi, er níræður í dag. Jón
fæddist í Einholtum í Hraunhreppi
og ólst þar upp en gerðist vinnu-
maður í Skíðsholtum 1912-14.
Næstu ár stundaði hann ýmis störf
en 1923 gerðist hann bóndi að
Skíðsholtum ásamt tveimur
bræðrum sínum en bjó þar svo einn
frá 1927-44. Hann brá búi 1946,
flutti í Borgarnes og varð fastur
starfsmaður á skrifstofu Kaupfé-
lagsins, en þar vann hann til 1976
er hann lét af störfum vegna ald-
urs. Jón hefur unnið mikið að
félagsmálum og gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum um ævina. Hann
var einn af stofnendum ungmenna-
félagsins Björn Hítdælakappi, sat
lengi í stjórn félagins og er heiðurs-
félagi þess. Hann var hreppstjóri
Hraunhrepps, endurskoðandi
hreppareikninga Mýrasýslu og
Sparisjóðs Mýrasýslu. Jón sat i
skattanefnd og jarðamatsnefnd og
var markavörður Mýrasýslu í
fjörutíu ár.
Jón kvæntist 1963 Ólöfu Sig-
valdadóttur, f. 11.9.1906. Foreldrar
Ólafar voru Sigvaldi Valentínus-
son, skipstjóri í Stykkishólmi, og
kona hans, Guðlaug Halldóra Jó-
hannsdóttir.
Systkini Jóns: Davíð Valdimar,
fv. b. í Miklholti, f. 1899; Þórarinn
Herulf, f. 1901, d. 1987; Þorleifur,
sjómaður og verkamaður, f. 1903,
d. 1976; Guðrún, saumakona í
Reykjavík, f. 1905; Hjörleifur
múrarameistari, f. 1906; Oddur, b.
í Kolviðarnesi í Eyjahreppi, f. 1908;
Stefán, fv. b., sem nú býr í Borgar-
nesi, f. 1910.
Foreldrar Jóns voru Sigurður
Jósefsson, b. í Einholtum á Mýrum
Jón Sigurðsson.
og kona hans, Sesselja Davíðsdótt-
ir. Sesselja var dóttir Davíðs, b. í
Einholti Jóhannessonar, og konu
hans, Guðrúnar Sigurðardóttur, b.
á Hofsstöðum í Álftaneshreppi Ein-
arssonar.
80 ára 70 ára
Jónína Skaftadóttir, Austurbyggö 17, Akureyri, er áttræð í dag. 75 ára Margrét Guðmundsdóttir, Vestur- götu 54A, Reykjavík, er sjötug í dag. Þór Guðjónsson, Laugateigi 31, Reykjavík, er sjötugur í dag.
Jónas Hallgrímsson, Bjarnastöð- um, Dalvík, er sjötíu og fimm ára í dag. Anna Guðrún Þorkelsdóttir, Vall- argötu 18, Vestmannaeyjum, er sjötíu og flmm ára í dag. Halldór Guðmundsson, Hverahlíð 17, Hveragerði, er sjötíu og flmm ára í dag. 60 ára
Marta Sveinbjörnsdóttir, Engi- hjalla 9, Kópavogi, er sextug í dag. 50 ára
Sigríður Rósinkarsdóttir, Heiðar- bakka 3, Keflavík, er fimmtug í dag.
80 ára Rósa Halldóra Hansdóttir, Norður- brún 1, Reykjavík, verður sjötug
Sigurður Eiríksson, Norðurgötu 30, Akureyri, verður áttræður á mánudaginn, en hann tekur á móti gestum á Hótel Varðborg, sunnu- daeinn 15.11. milli kl. 3 og 6. á móti gestum á morgun, sunnu- dag, milli kl. 2 og 5 í hátíðarsal að Norðurbrún 1.
75 ára 60 ára
Eggert Th. Jónsson, Mjóuhlíð 16, Reykjavík, verður sjötíu og flmm ára á morgun. Böðvar Eggertsson, Selvogsgrunni 13, Reykjavík, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Ingigerður Hallgrímsdóttir, Gyðu- felli 2, Reykjavík, verður sextug á morgun. Eiríkur Hlöðversson, Varmahlíð 14, Hveragerði, verður sextugur á morgun. Hörður Frímannsson, Skaftahlíð 13, Reykjavík, verður sextugur á morg’un.
70 ára
Ari Benjamínsson, Svöluhrauni 17, Hafnarflrði, verður sjötugur á morgun. Guðrún Kristinsdóttir, Stóragerði 22, Reykjavík, verður sextug á morgun.
Andlát
Kristín Jóhannesdóttir, Eiðsvalla- götu 1, Akureyri, andaðist 12. nóvember. Svanur Ágústsson, Espigeröi 2, andaðist á Landspítalanum 12. nóv- ember.
Jóhanna Jóna Guðnadóttir, Kol-
tröð 21, Egilsstöðum, er fimmtug í
dag.
Kolbrún Inga Sæmundsdóttir,
Meistaravöllum 17, Reykjavík, er
fimmtug í dag.
40 ára_________________________
Gísli Már Helgason, Hátúni 10B,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Daníel G. Björnsson, Köldukinn 15,
Hafnarfirði, er fertugur í dag.
Halldóra Jenný Gísladóttir, Staðar-
seli 5, Reykjavík, er fertug í dag.
Jón Einar Árnason, Núpasíðu 10C,
Akureyri, er fertugur í dag.
Margrét Jóna Jónasdóttir, Gyðu-
felli 12, Reykjavík, verður sextug á
morgun.
50 ára_________________________
Ester Lára Sigurðardóttir, Hafnar-
stræti 86A, Akureyri, verður
fimmtug á morgun.
Guðrún Sigurðardóttir, Þiljuvöll-
um 24, Neskaupstað, verður
fimmtug á morgun
Örn Egilsson, Unufelli 16, Reykja-
vík, verður fimmtugur á morgun.
40 ára_________________________
Einar Kristbjörnsson, Ásbúð 76,
Garðabæ, verður fertugur á morg-
un.
Þorkell Guðnason, Löngubrekku
9, Kópavogi, verður fertugur á
morgun.
Ólafur Fr. Baldursson, Sólvalla-
götu 25, Reykjavík, veröur fertugur
á morgun.
Stefanía Jónsdóttir, Skriöuseli 4,
Reykjavík, verður fertug á morgun.
Reynir Ágúst Ragnarsson, Rima-
síðu 3, Akureyri, verður fertugur á
morgun.
Hans Christiansen
Hans Christiansen, Bergstaða-
stræti 20, Reykjavík, er fimmtugur
í dag. Hans fæddist í Hveragerði
og ólst þar upp en lauk stúdents-
prófi frá M.L. 1957 og BA-prófi í
ensku og dönsku 1960. Hans kenndi
um nokkurt skeið en hóf svo störf
hjá Landsbankanum og starfaði
þar í mörg ár, bæði í Reykjavík og
á Selfossi. Hans hætti í Lands-
bankanum 1980 og hefur mest
fengist við myndlist síðan
Kona hans er Dóra, dóttir Snorra "
múrarameistara frá Staðarhóli á
Akureyri, Pálssonar, og Hólmfríð-
ar Ásbjarnardóttur frá Stóra-Dal í
Eyjafirði, Árnasonar.
Hans og Dóra eiga þrjár dætur,
Bryndísi, Grétu og Þóru.
Hans á tvo bræður: Ragnar garð-
yrkjubónda í Hveragerði, f. 1940,
er giftur Ástu Jóhannsdóttur og
eiga þau fjögur börn; Ingvar, vél-
smið í Reykjavík, f. 1944, er giftur
Gíslínu Björnsdóttur frá Völlum í
Ölfusi og eiga þau tvær dætur.
Foreldrar Hans: Lauritz Christ-
iansen, garðyrkjub. í Hveragerði,
f. 1906, d. 1973, og kona hans Þóra,
f. 1908, d. 1982, Nikulásdóttir. Föð-
urforeldrar Hans voru Hans
Christiansen, garðyrkjuráðunaut-
ur á F)óni og á Jótlandi, og kona
hans Dagmar, f. Sörensen. Móður-
foreldrar Hans voru Nikulás,
kennari og b. á Kirkjulæk í Fljóts-
hlíð, Þórðarson og Ragnhildur
Pálsdóttir, systir Eggerts, prófasts
og alþingismanns á Breiðabólstað,
afa Þorsteins Thorarensen rithöf-
undar.
Finnur Jónsson
Finnur Kristinn Jónsson listmál-
ari, Kvisthaga 6, Reykjavík, verður
níutíu og fimm ára á morgun. Finn-
ur fæddist á Strýtu við Hamars-
fjörð í Suður-Múlasýslu og ólst þar
upp hjá foreldrum sínum en fór
átján ára til Reykjavíkur í gull-
smíðanám og Iðnskólann. Hann
fékk sveinsbréf í gullsmíði 1919, var
við teikni- og málaranám í Kaup-
mannahöfn 1921 og í Dresden og
Berlín 1921-24. Hann rak í allmörg
ár myndhstarskóla í Reykjavík
ásamt Jóhanni Briem og var teikni-
kennari við MR frá 1934-38 og
1939-50. Hann var í stjórn Félags
islenskra gullsmiða um skeið og sl.
vor var hann kosinn heiðursfélagi
félagsins. Finnur var formaður
Listvinafélagsins um hríð, formað-
ur Myndlistarfélagsins og í stjórn
Félags íslenskra myndlistarmanna
í nokkur ár.
Finnur giftist 19. maí 1928
Guðnýju Elísdóttur, f. 13. maí 1903.
Foreldrar Guðnýjar voru Elís,
kaupmaður í Reykjavík, Jónsson
og kona hans, Guðlaug Eiríksdótt-
ir.
Finnur Kristinn Jónsson.
Jakobs prests Jónssonar. Þórarinn
var sonur Richards Long, verslun-
arstjóra á Eskifirði, af enskum
ættum. Ólöf var dóttir Finns, b. og
söðlasmiðs á Tunguhóli í Fá-
skrúðsfirði, Guðmundssonar og
konu hans, Önnu Guðmundsdótt-
ur, b. á Brimnesi í Fáskrúðsfirði,
Magnússonar, af Sandfellsættinni.
Finnur er nú einn á lífi sex systk-
ina en syskini hans vorm Karl,
læknir í Reykjavík, giftur Guðrúnu
Möller sem einnig er látin; Georg,
b. á Reynistað, giftur Margréti
Kjartansdóttur, sem einnig er látin;
Ríkarður, myndhöggvari í Reykja-
vík, sem var giftur Maríu Olafs-
dóttur; Bjöm, sem lést ungur
maður, og Anna sem var gift Erl-
ingi Thorlacius bílstjóra.
Foreldrar Finns voru Jón, smið-
ur og b. á Strýtu, Þórarinsson og
kona hans, Ólöf Finnsdóttir. Faðir
Jóns var Þórarinn, b. á Núpi á
Berufjarðarströnd, bróðir Maríu,
langömmu Eysteins ráðherra og
Sérverslun
með blóm og
skreytingar.
Opid lil kl. 21 iV// kriild
p.pBlóm
wQcskíicytingar
Laugauegi 53, sími 20266
Sendum um land allL