Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1988, Page 9
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988. 9
I
ÁTVR kynnir í sumar Dillon lávarð - þurrt íslenskt gin
Ástarsaga frá síðustu
öld ræður nafni ginsins
Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, fór gætilega með nýju gin-
flöskuna sem ríkið ætlar að setja á
markaðinn í sumar. Ginið hefur
fengið hið virðulega nafn Dillon lá-
varður - þurrt íslenskt gin og angar
af sögu ekki síður en einibeijum.
DV-menn komu til fundar við
Höskuld í Dillonshúsi í Árbæjar-
safni. Það er eitt af sögufrægum
húsum Reykjavíkur og var reist á
lóðinni Suðurgötu 2 vorið 1835 af
þeim sama Dillon og ginið hefur nú
fengið nafn sitt frá. Höskuldur sagði
að upphaflega hefði átt að kenna ís-
lenska ginið við Consul Thomsen, en
hann var danskur og ginið er að
uppruna enskara en allt enskt og því
varð það nafn sem leiddi hugann að
upprunanum.
Virt aðalsætt
Nafngiftin kom upp í samræðum
Höskuldar við Pál Líndal lögfræðing
og þótti þegar kjörið því Dillon sá
sem stóð fyrir húsbyggingunni var
af virtri enskri aðalsætt sem enn er
til. Afkomendurnir búa nú í Lundún-
um og þar situr Dillon lávarúur, sá
22. í röðinni, í skjóli móður sinnar.
Hann er flmmtán ára gamall.
Gin Dillons lávarðar er einkum
ætlað fyrir innlendan markað, enda
taldi Höskuldur vonlítið að keppa á
heimsmarkaðnum við gamalgrónar
tegundir sem Englendingar setja
saman. Hér er þó ekki kastað til
höndunum því leitin að hinni réttu
ginblöndu hefur staðið í allan vetur
og enn hefur ekki verið skorið úr
hver af fjórum útgáfum verður boðin
íslendingum til sölu.
í fyrstu voru 10 blöndur sendar til
„þekktra ginkarla“ víða um land og
þeir beðnir um að velja þrjár þær
bestu. Karlarnir voru nokkuð sam-
dóma í áliti sínu og eftir þennan
fyrsta hreinsunareld voru fjórar
blöndur eftir. Þær hafa nú veriö
sendar til um flörutíu manna sem
taldir eru manna dómbærastir um
kosti gins og er nú beðið álits þeirra.
Umbúðirnar utan um ginið eru
þegar tilbúnar og prýðir þær skjald-
armerki Dillonættarinnar. Það er
notað með leyfi frá flölskyldunni,
eins og fram kemur í viðtalinu við
lafði Dillon hér á opnunni. Ginið
kemur á markað um mitt sumar þeg-
ar sérfræðingarnir hafa komist að
niðurstöðu.
Ástarsaga úr
Reykjavík
Dillon leggur gininu ekki til nafn
af því einu að hann lét byggja hús í
Reykjavík fyrir 153 árum heldur
vegna þess að við nafn hans er tengd
ein hjartnæmasta ástarsaga sem
gerst hefur á íslandi.
Arthur Edmund Dennis Dillon lá-
varður, sá 16. með því nafni, steig
fyrst fæti á íslenska grund, í flöruna
þar sem nú er Hafnarstræti, þann 31.
ágúst árið 1834 og var í fór með Tóm-
asi Sæmundssyni Fjölnismanni.
Dillon, sem ætlaði að hafa vetursetu
í Reykjavík, kom hingað með dönsku
herskipi sem var hér að sækja Frið-
rik Danaprins. Prinsinn hafði verið
hér í hetrunarvist því það þótti ekki
sæma í Danmörku að ríkisarfinn
héldi meira upp á dansmeyjar við
Konunglega ballettinn en drottning-
arefnið. Betrunarvistin reyndist þó
gagnslítil því í Reykjavík var prins-
inn fljótlega kominn í slagtog við þá
virðulegu frú, maddömu Sire Otte-
sen. í fyrsta kuldakasti haustsins var
vinur okkar, Arthur Dillon, kominn
í hólið til hennar líka og þar hefst
ástarsagan.
Höskuldur Jónsson með Dillon lávarð - þurrt islenskt gin. Lávarðurinn kemur við íslenska sögu vegna ástarævin-
týris sem hann átti hér fyrir 153 vetrum. DV-mynd KAE
Dillon var rétt kominn á þrítugs-
aldur þegar þeta gerðist - ungur
maður að skoða heiminn. Maddama
Sire Ottesen var glæsileg kona af
ættum kaupmanna og ekki alltaf að
góðu getið í bæjarslúðrinu. Hún var
fráskilin og hafði átt tvö börn í lausa-
leik og með Dillon átti hún eina
dóttur. Hún var á þessum árum hús-
móðir í klúbbnum, helsta samkomu-
stað betri borgara í Reykjavík.
Hrollur í lávarðinum
Dillon ætlaði að vera einn vetur
í Reykjavík. Hann fékk leigt húsnæði
sem átti að duga honum til vorsins
en Sire Ottesen átti að sjá um alla
þjónustu. Vetur gekk snemma í garð
þetta haust en engin tök voru á að
kynda húsnæði lávarðarins. Því fór
það svo aö áður en nóvembermánuð-
ur var allur var Dillon kominn í
hlýjuna í klúbbnum hjá Sire Ottesen
og er ekki vitað til að hann hafi
kvartað undan kulda eftir það.
Hann hélt bréfasambandi við ætt-
ingja sína á Englandi um veturinn
og þegar tekur að vora árið 1835 seg-
ir hann bróður sínum að hann „muni
ekki eiga afturkvæmt til Englands í
langan tíma“. Þá var hann staðráð-
inn í að setjast hér að og var farinn
að huga aö landakaupum og búinn
að læra íslensku svo vel að hann gat
lesið Nýja testamentið.
Menn tóku líka eftir því aö Sire
Ottesen fékk lóð undir hús skömmu
eftir að Dillon var kominn undir
verndarvæng hennar og um vorið
var ráðist í húsbygginguna og ekkert
til sparað. Þarna reis Dillonshús.
Yfirvöld sögðu nei
Bæjarbúar tóku líka eftir því
þetta vor að Sire Ottesen var ófrísk,
Hún eignaðist dóttur 13. júni. Sú fékk
nafnið Henriette Dillon eftir móður
lávarðsins. í kirkjubókum var svo
látið heita að „reisandi enskur mað-
ur væri faðirinn". Vitað er að þau
Sire Ottesen og Dillon ætluðu að
ganga í hjónaband en svo fór þó ekki
því þeim var meinað að eigast.
Áður en dóttirin fæddist fór Dillon
fram á að fá að „mega með persónu-
legum eiði í stað svaramanna sanna
fyrir fógetaréttinum, að ekki sé um
að ræða af hans hálfu neina þá mein-
bugi, er séu þessari hjúskaparstofn-
until hindrunar". Beiöni lávarðarins
fór fyrir dönsk yfirvöld og svarið var
einfaldlega nei.
Dillon fór af landi brott skömmu
eftir að dóttir hans fæddist. Hann
kom aldrei aftur til landsins og
nefndi aldrei ævintýri sitt hér. Áður
en hann fór gerði hann þó erfðaskrá
sína þar sem hann arfleiðir Henri-
ettu að fimmtán hundruð sterlings-
pundum og barnsmóöur sína að sjö
hundruð.
Ævintýri Dillons á íslandi fór leynt
í ættinni og ekki um það annað talaö
en að lávarðurinn hefði komið til
landsins og soðið egg í goshver.
Henrietta vitjar
ættmennanna
Það var ekki fyrr en flörutíu
árum síðar að kona, á að giska fer-
tug, fríð sýnum og björt yfirlitum
barði að dyrum hjá Dillon lávarði
þeim 17. og sagöist vera hálfsystir
hans frá íslandi. Dillon faðir hennar
var þá á lífi en ekki er vitað til að
þau feðgin hafi sést en það er þó lík-
legt. í Þjóðminjasafni íslands er
geymd silfurkanna sem á er letrað
að hún sé gjöf til Henriettu frá fóður
hennar.
Henrietta átti einn son með manni
sínum sem var danskur kaupmaður.
Sonurinn fékk nafnið Pétur Arthur.
Ævi hans var stutt því hann hvarf
ungur að árum í Danmörku og er
ekkert vitað um afdrif hans. Með
honum hvarf seinasti afkomandi
Dillons sem átti einnig ættir að rekja
til íslands.
-GK
I