Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1988, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988.
Með tíu tíma fyrirvara til Dublin:
*veró mktast við framköllun og koperinguá 24 niynda
litfilnuiog 24 mvnda KONICA litfilmu sem jxi íærð til haka
„Iitil atriði skipta
stóru máli^
-segirGunnar
MárSigur-
finnsson sem
varblaðafull-
trúiBeathoven
íDublin
Gunnar Már er aðeins 22ja
ára en fékk vandasamt starf
með tíu klukkustunda fyrir-
vara á Eurovision.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Þaö var svolítið skondiö hvernig
vildi til aö ég fór meö hópnum til
Dublin. Ég talaði viö Steinar Berg
daginn fyrir brottför til aö semja um
plötu Greifanna. Hann var þá að böl-
sótast yfir aö komast ekki vegna
verkfallsins og ég spurði þá í gríni
hvort ég ætti ekki að fara í staðinn.
Steinar tók mig á oröinu og pantaði
flugfarið fyrir mig tíu tímum fyrir
brottför," sagöi Gunnar Már Sigurf-
innsson sem fór á Eurovision sem
blaöafulltrúi Beathoven frá hljóm-
plötuútgáfunni Steinum. Gunnar
Már er umboðsmaður hljómsveitar-
innar Greifanna.
„Ég trúöi þessu ekki fyrst en ákvaö
aö slá til og fór. Ég vissi ekkert hvaö
ég var aö taka aö mér en Steinar
reyndi að setja mig inn í hlutina
ásamt Baldvin Jónssyni auglýsinga-
stjóra. Þeir sögöu mér hvaöa fólk ég
ætti að hafa samband við er ég kæmi
út, eins og t.d. yfirmann Eurovision
við íjölmiöla og þá menn sem voru
með næturklúbbana sem viö héldum
fundi í. Þar sem þetta var mjög
skammur tími gátu þeir varla sagt
mér allt sem þeir hefðu viljað segja
mér. Ég hef starfað við aö koma
Greifunum á framfæri og ákvað frá
byrjun að haga mínum störfum á
sama hátt. Ég varö þó að vega það
og meta er ég kom út hvort þau
vinnubrögð hentuöu."
Eifitt starf
Gunnar Már sagöist fyrst er hann
kom til Dublin hafa farið í RDS, þar
sem flestallir blaðamennirnir voru,
og reynt að kynna sér hvað væri að
gerast. „Steinarlagði mestaáherslu
á að ég næði sambandi viö írsku og
bresku blöðin, einnig að ég kynnti
keppendur fyrir þeim blaðamönnum
sem voru á staðnum, auk lands og
þjóðar. Þetta starf var gífurlega erfitt
vegna þess að ég hafði aldrei unnið
svona áður. Ef maður ætlar að ná til
pressunnar og láta taka eftir sér
verður að halda til á því svæði þar
sem blaðamenn eru og ræöa við þá
meira eða minna allan daginn. Það
verður að vekja upp áhuga hjá þeim.
Ég held að blaðamannafundir okkar
hafi tekist ágætlega. Ég sá umfjöllun
um okkur í Daily Mail og í Daily
Express og ég heyrði að sænsku blöð-
in hefðu fjallað um okkur. írska
sjónvarpið var með viðtal við Jón
Pál og Beathoven. Það auðveldaði
kynninguna að hafa Jón Pál því að
hann vakti mikla athygli."
- Heldurðuað JónPállhafi vakið
of mikla athygli og stolið senunni frá
Beathoven?
Ahuginn minnkaði
„Jón Páll var sérstaða okkar því
að af skiljanlegum ástæðum var eng-
inn annar með sterkasta mann í
heimi. Beathoven var bara einn
keppandi af tuttugu og einum. Síðan
kom upp þessi leiðindastaða þegar
Stefán veiktist og gat ekki mætt á
blaðamannafundi. Ósjálfrátt minnk-
aði áhuginn á Beathoven og það voru
eðlileg viðbrögð sem ekkert var við
að gera.“
- Varstu ánægður með þá athygli
sem við fengum?
„Að sjálfsögðu vill maður alltaf
gera betur. Ég hefði auðvitað kosið
að Stefán hefði ekki veikst og að við
hefðum getað haldinn hópinn betur
saman. Við hefðum með því móti
áreiðanlega fengið meira út úr okkar
blaðamannafundum. Ég var alger-
lega óreyndur og vissi ekkert út í
hvað ég var að fara. Ég hef ekki held-
ur samanburð frá fyrri árum.“
Vantaðiplötur
- Myndirþúgerahlutinaöðru-
vísi eftir þá reynslu sem þú hefur
núna?
„Ég hefði undirbúið mig.miklu bet-
ur og reynt að ná sambandi við þá
blaöamenn sem ég vildi ná tali af
áður en haldið var á staðinn. Þá
fannst mér mjög slæmt að hafa kass-
ettur í stað platna. Þetta eru atriði
sem eru kannski ekki stór en skipta
gríðarlega miklu máli. Það er nauð-
synlegt að senda góðan blaðafulltrúa
með íslenska hópnum því að keppnin
snýst um hver nær mestri athygli.
Það þarf að senda sérstakt fólk með
keppendunum til að skipuleggja og
sjá um kynningarmál. Við höfum
kannski meiri þörf en margar aðrar
þjóðir fyrir að kynna okkur. Tveir
menn komast yfir meira en einn
maður en alltaf er spurning hversu
miklu á að kosta til. Steinar borgaöi
fyrir mig og Jón Pál og ég er ekki
viss um að hann hefði veriö tilbúinn
aö borga undir fleiri. En keppnin er
á milli sjónvarpsstöðva og mér finnst
að ríkissjónvarpið heföi átt að standa
fyrir eigin kynningum á sínu fólki.
Aðrar sjónvarpsstöðvar senda fólk
sem sér um kynningarmál og mér
finnst eölilegt að við gerum það líka.
Gunnar Már sagði ennfremur að
íslendingar væru fáfróðir um keppn-
ina og vissu í raun ekki út á hvaö
hún gengi. „Ég gerði mér grein fyrir
því straxog við komum til Dublin
að fáir þekktu okkur. Það er mikið
atriði fyrir okkur að halda áfram aö
vera með í keppninni. Ef við dettum
út í eitt eða tvö ár þá missum við
strax þau sambönd sem við höfum
þó komiö okkur upp. Ég tók eftir því
að hjá öðrum sjónvarpsstöðvum er
það mikiö til sama fólkið sem vinnur
við keppnina. Sumir blaðamenn
voru að koma á sjöttu Eurovision-
keppnina og þeir þekktu allt og alla. “
Langar aftur
Gunnar Már er 22ja ára úr Vest-
mannaeyjum og hefur starfað
undanfarin ár sem umboðsmaður
Greifanna. Annar „greifi“ var með í
Eurovison í ár en það var Kristján
Viðar Haraldsson hljómborðsleikari.
Gunnar sagöi að plata þeirra félaga
væri að koma út í júní og vel gæti
komið til greina að hljómsveitin
sendi inn lag í næstu söngvakeppni.
„Eurovision gefur mikla möguleika
og reynslu. Keppnin er skemmtileg
og ég gæti vel hugsað mér að fara
aftur - með örlítið meiri fyrirvara."
-ELA