Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1990, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1990, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990. 23 - nýtt leikarahverfi í Skerjafirðinum Misjafnlega á sig komin standa þau tignarleg eða vesældarleg í nýju umhverfinu. Gömul hús sem hafa verið flutt úr sínu gamla umhverfi í Skerjaíjörðinn. Þar er að myndast nýtt hverfi sem samanstendur af gömlum aðfluttum húsum. Flest eru þessi hús annars staðar úr borginni; hús sem hafa orðið að víkja af sínum upprunalega stað vegna nýrra fram- Kvæmda. Og fyrir þau þurfti að finna stað. Litli Skerjafjörðurinn þótti hentugur og gömlu húsin þóttu falla vel að umhverfinu þar. En fiest önnur hús þarna eru gömul. Lóðunum í Skerjafirðinum hefur verið úthlutað í tvennu lagi. Fyrst var farið aö flytja gömul hús við Fossagötuna og voru flutt þangað sjö Hér sjást tvö hús sem bíða þess að komast á sökkla. Húsið lengst til vinstri stóð áður við Tjarnargötu 5b en verður á Skerplugötu 5 í framtíðinni. Það er Sigurður Örlygsson myndlistarmaður sem á húsið og hyggst innrétta þar vinnustofu ásamt íbúð. Þá er það Bergstaðastræti 8 sem bíður þess að verða Skerplugata 4. Og loks Skerplugata 7 sem áður var Traðarkots- sund 6. Séð út um glugga á „Bergstaðastræti 8“ og yfir á „Bergstaðastræti 6c“. Þessi hús verða áfram nágrannar en á allt öðrum stað i borginni. Það er hús Jóns Hjartarsonar leikara sem þarna sést út um gluggann. Það stend- ur nú við Skerplugötu 9. DV-myndir GVA hús. Siöan voru auglýstar lóðir fyrir 11 hús við Skerplugötu. Þar af eru þrjár lóðirnar stærri en hinar og voru þær ætlaðar undir tvíbýlishús. En breytingar hafa verið gerðar eftir lóðaúthlutunina því á einni lóðinni hefur verið komið fyrir húsi þar sem rekið er barnadagheimili, á annarri hefur myndlistarmaður fengiö leyfl til að hafa vinnustofu og enn er óljóst með þá þriðju. En eins og segir eru húsin sem stendur misjafnlega á sig komin. Sum eru orðin mjög falleg, í öðrum er verið að vinna og nokkur eru gjör- samlega óíbúðarhæf og standa enn sökkulslaus. í Skerplugötu hefur lóð- unum verið komið fyrir í hring og er gert ráð fyrir að í miöjunni verði útbúið fallegt torg. í götunni búa meðal annarra þrír leikarar ásamt íjölskyldum sínum, þeir Jón Hjartarson, Haraid G. Har- aldsson og Kristján Franklín Magn- ús. Aðspuröur hvernig stæði á því að leikarar sæktu í að flytja gömul hús og gera upp sagði Jón Hjartarson að líklega væru þeir bjartsýnni en annað fólk. En eins og kunnugt er búa margir leikarar á svokölluöu Bráðræðisholti við Framnesveg en þar er einnig hverfi gamalla aðfluttra húsa. „Það er líklega enn tímafrekara og dýrara að gera upp gamalt hús en að byggja nýtt,“ sagði Jón í samtali við DV. „En ég hef trú á að þetta komi til með að verða skemmtilegt hverfi með tímanum." Jón segist hafa verið búinn að ætla sér lengi að stækka við sig og það hafi „endað svona“. Hann er svo sem ekki að flytja í nýtt umhverfi því hann segist hafa búið áður í Skerja- firðinum. En látum svo bara myndirnar segja okkur það sem eftir er sögunnar. -RóG. Séð inn í „nýja gamla“ hverfið í litla Skerjafirðinum. Fremsta húsið, sem stendur við Fossagötu 1, er dæmi um hve fallega má gera upp gamalt timb- urhús. Þetta hús stóð áður við Ránargötu 46. Hvita húsið til vinstri er ekki aðflutt heldur stendur á sínum upprunalega stað við Fossagötu 3. Fossá- gata 5 er svo lengst til vinstri en það hús stóð áður við Hörgshlíð 2. Lengst til vinstri sést svo fyrrum Tjarnargata 11 sem varð að vikja úr miðbænum fyrir nýja ráðhúsinu eins og frægt er. Tilboó óskast Tilboð óskast í neðanskráðar flugvélar sem skemmst hafa í óhöppum: TF-REF Piper PA 23 160, árg. 1958. TF-LUL Socata TB-9, árg. 1980. Ofangreindar flugvélar verða til sýnis á Reykjavíkur- flugvelli mánudaginn 25. júní frá kl. 12 - 16. Tilboð óskast fyrir kl. 16 fimmtudaginn 28. júní. Nánari upp- lýsingar milli kl. 8 og 16 á aðalskrifstofunni, Lauga- vegi 178, sími 621110. VERNDGEONVÁ TRYGGING HF LAUGAVEG1178 SIMI621110 SANDSPYRNA verður, haldin sunnudaginn 24.6. á bökkum Ölfusár vió Eyrarbakka. Keppni hefst kl. 14.00. Keppendur mœti fyrir kl. 12.00. Skoóun hefst kl. 10.00. Kvartmíluklúbburinn / Björgunarsveitin Björg, Eyrarbakka SERIA Soft, hvttur. 4 e8a B rilllur I pakko. SERLA Soft, flulur, blelkur oa hvltur. 2 rOllur I pakko. SERLA Tollet, aulur. 6 «80 12 rúllur I pakka. •ndurunninn papptr- SERLA Nolurt Friendly, náttúruhvltur, 9 rúllur I pakka. - ÞEGAR MÝKTIN SKIPTIR MÁLI SERLA salernispappírinn er svo ondur mjúkur hann hentar jafnt litlum kvefudum nobbum vidkvœmu hörundi. SERLA salernispappírinn er tvöfaldur, silkimjúkur og einstaklega góður. Globuse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.