Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1990, Blaðsíða 26
LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1990.
26
Elísabet II Bretadrottning:
Mikilhæfur
Elísabet II Bretadrottning og eigin-
maöur hennar, Filippus prins, her-
toginn af Edinborg, koma til íslands
á hádegi á mánudag meö einkaþotu
sinni. Hjónin munu dvelja hér á landi
í þrjá daga. Þetta er í fyrsta skipti
sem drottningin kemur til íslands.
Hertoginn hefur komiö nokkuð oft
hingað til lands í einkaerindum og á
leiö sinni yfir hafið en einnig í þriggja
daga opinbera heimsókn 30. júní
1964.
Elísabet er voldugasti og ríkasti
þjóöhöföingi heims. Þegar hún fædd-
ist 21. apríl 1926 var hún þó ekki erf-
ingi krúnunnar. Drottningin er dótt-
ir Georgs VI og Elísabetar drottning-
ar sem veröur níræö í ágúst nk. Ge-
org VI var sonur Georgs V konungs
og Maríu drottningar. Elsti bróöir
hans var Játvarður VIII sem afsalaði
sér krúnunni áriö 1936 til aö kvæn-
ast Wallis Simpson og gekk krúnan
þá til Georgs VI, fóöur Elísabetar.
Konungurinn átti fimm systkini sem
öll eru látin en börn þeirra og barna-
börn tilheyra konungsíjölskyldunni.
Hjónin sömu ættar
Filippus prins gekk að eiga Elísa-
betu II, þá prinsessu, í nóvember 1947
og var þá gerður af hertoganum af
Edinborg. Brúökaupiö fór fram í
Westminster Abbey viö mikla viö-
höfn. Filippus er fæddur 10. júní 1921,
sonur Andrews, prins af Grikklandi.
Prins Andrew var yngri sonur Ge-
orgs I, konungs Grikklands, en hann
var sonur Kristjáns IX Danakon-
ungs. Þegar Filippus prins ákvað aö
afsala sér öllum rétti til grísku krún-
unnar og gerast breskur þegn tók
hann sér fjölskyldunafn móöur
sinnar, Mountbatten. Móðir hans var
Alice prinsessa af Battenberg, elsta
dóttir Lúövíks prins af Battenberg
sem breytti nafni sínu í Mountbatten
í upphafi fyrri heimsstyrjaldarinnar,
afsalaöi sér konunglegum titlum og
gerðist fyrsti markgreifi af Milford
Haven (staöur í S-Wales). Kona Lúð-
víks var Viktoría prinsessa af Hesse,
barnabam Viktoríu drottningar
þannig að Filippus prins eins og El-
ísabet drottning eru bæöi barna-
barnabarnabörn Viktoríu drottning-
ar.
Ekki fædd drottning
Elísabet II heitir fullu nafni Elísa-
bet Alexandra María. Elísabet á aö-
eins eina systur, Margréti prinsessu,
sem er Qórum árum yngri. Hún gift-
ist Snowdon lávarði en þau skildu
áriö 1978. Þegar faöir Elísabetar tók
viö krúnunni af bróöur sínum áriö
1936 og dóttirin orðin líklegur eríingi
krúnunnar, þá tíu ára, var námi
hennar breytt og meiri áhersla lögö
á sögu og lögfræði. Auk þess lagði
hún stund á tónlistarnám og lista-
sögu. Áhugamál Elísabetar, allt frá
því hún var smábarn, er hesta-
mennska og hún fékk aukna leiðsögn
í aö sitja hest og annast um hrossin.
Þá var sund eitt af hennar áhugamál-
um og vann hún til verðlauna í þeirri
grein þrettán ára.
Þegar prinsessan var íjórtán ára
byrjaði hún aö taka þátt í opinberu
- sem nýtur mikils trausts þegna sinna
Konungsfjölskyldan á svölum Buckinghamhallar þegar Elisabet hélt upp á sextugsafmæli sitt áriö 1986.
systir hans, Anna, kom í heiminn
áriö 1950, þriöja barnið, Andrew,
fæddist 1960 og sá yngsti, Edward,
1964. Konungshjónin héldu upp á
silfurbrúðkaup sitt með mikilli við-
höfn í London áriö 1972.
Eftir brúðkaup þeirra áriö 1947
héldu þau í heimsóknir til Frakk-
lands og Grikklands. Áriö 1951 heim-
sóttu þau Kanada. Drottningin fór
fjórum sinnum til Möltu og heirn-
sótti éiginmanninn sem þá var laut-
inant í sjóhernum.
Áriö 1952 komu veikindi Georgs
VI í veg fyrir að hann gæti farið í
opinberar heimsóknir til Ástralíu og
Nýja Sjálands. Elísabet fór í hans
staö ásamt eiginmanni sínum, her-
toganum af Edinborg, og þaö var á
fyrsta viðkomustað þeirra í ferðinni,
í Kenýa, sem hjónin fengu fregnina
um að konungurinn væri látinn og
Elísabet oröin drottning, þá tæplega
26 ára gömul.
Elisabet ásamt elstu börnunum tveimur, Karli ríkisarfa og Önnu prinsessu.
Næstyngsti sonur Elísabetar, Andrew, og eiginkona hans, Fergie, ásamt
tveimur dætrum sínum.
lífi. Hún var fjórtán ára þegar hún
kom fyrst fram í útvarpi. Fyrstu
embættisverk hennar voru öll tengd
barnahjálp og hún var meðal annars
yfirmaður barnasjúkrahúsa. Elísa-
bet fór með foreldrum sínum í heim-
sóknir um Bretland sextán ára göm-
ul og áður en langt um leið fór hún
einnig til annarra landa í embætt-
isferðir. Eftir síöari heimsstyrjöldina
fór hún í feröalög til eyja sem til-
heyra Bretlandi. Ariö 1947 fór hún í
sína fyrstu opinberu heimsókn með
foreldrum sínum og systur til S-
Afríku. í þeirri ferð hélt hún upp á
21 árs afmælið. Stuttu eftir heim-
komu konungsfjölskyldunnar til
Englands var tilkynnt um brúðkaup
Elísabet drottning lætur það ekki
hafa áhrif á sig þótt hún lendi yfir-
leitt á blaði meðal tíu verst klæddu
kvenna heims. Hún klæðir sig eftir
veðri og vindum.
Elísabetar og Filippusar prins sem
hún haföi þekkt í mörg ár.
Fjögurbörn,
sex barnabörn
Fyrsta barn þeirra, Karl prins, erf-
ingi krúnunnar, fæddist áriö 1948,
Sorgarfrétt til Kenýa
Ungu hjónin höfðu flogið frá Lon-
don þann 31. janúar með millilend-
ingu í Kenýa í A-Afríku. Þar dvöldu
þau í nokkra daga í fallegu húsi sem
fólkið í Kenýa hafði gefið þeim í brúð-
argjöf. Húsið var í fíkjutré í skógin-
um og hjónin gátu fylgst með þegar
villt skógardýrin komu að nærliggj-
andi vatni til að fá sér að drekka.
Menn héldu að prinsessan vildi
ganga til náða eftir erfið ferðalög en
hún sat uppi hálfa nóttina með sjón-
auka og fylgdist hugfangin með dýr-
unum, þar á meðal 46 fílum sem
gengu í hóp. Einhvern tíma þessa
nótt varð prinsessan drottning Eng-
lands. Það var þó ekki fyrr en prins-
essan og hertoginn komu til nær-
liggjandi þorps, þar sem var lítið
hótel, aö sannindin komu í ljós.
Blaðamenn, sem fylgdu prinsessunni
og eiginmanni hennar í þessari för,
dvöldu á þessu hóteli. Einn þeirra
kallaði til einkaritara prinsessunnar
að það væri síminn til hans. Þegar
hann kom í símaklefa var enginn í
símanum heldur stóð blaðamaður
frá East African Standard skjálfandi
á beinunum og sagöi: Kóngurinn er
látinn.
Fréttin var mikið áfall en einkarit-
aranum fannst hún þó ekki ótrúverð-
ug þar sem kóngurinn hafði verið
veikur. Dagblaöið East African
Standard haföi fengiö fréttina á Reut-
erskeyti og ritstjórinn hafði strax
sagt útsendara sínum á staðnum, þar
sem prinsessan var, fréttina. Hinn
konunglegi hópur hafði þá ekki feng-
ið neina opinbera tilkynningu um
látið. Einkaritari prinsessunar sagði
einkaritara hertogans fréttina og í
sameiningu reyndu þeir að fá til-
kynninguna staðfesta og það tókst
loks. Fréttin var rétt. Einkaritari
hertogans flutti honum tíðindin og
það var Filippus sem sagði eiginkonu
sinni tíðindin um lát föður hennar
kl. 14.45 að staðartíma þann 7. febrú-
ar 1952. Hún tók tíðindunum eins og
drottningu sæmir. Hún settist niður
við skrifborð og skrifaði bréf til
þeirra sem áttu von á henni í heim-
sókn.