Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1990, Blaðsíða 20
rs 20
' IAÚÖÁRDAGtJR 29. DRSÉMBER 1990.
Kvikmyndir
Francis Ford Coppola hefur ekki verið
mjög farsæll á undanfómum árum. Eins og
um marga aðra mikla kvikmyndagerðar-
menn hafa væntingar verið meiri en árang-
urinn. Peggy Sue Got Married og Tucker
voru að visu ágætar kvikmyndir en engin
snilldarverk.
Með gerð þriðju Godfather-myndarinnar,
Godfather III, lagði Coppola allt undir og
fengu áhorfendur að sjá árangurinn um jól-
in en myndin var frumsýnd í átján hundruð
kvikmyndahúsum á jóladag. Áður voru
búnar að vera prufusýningar fyrir almenn-
ing og gagnrýnendur og voru viðtökurnar
vægast sagt misjafnar. Áhorfendur annað-
hvort púuðu eða fögnuðu ákaft og gagnrýn-
endur skiptust einnig í tvo flokka. Sumir
hæidu myndinni mikið en aðrir voru ekki
eins ánægðir og fundu henni allt til foráttu.
Þessi nýjasta mynd um Corleone-fjölskyld-
una kostaði hvorki meira né minna en fimm-
tíu og fimm mUljónir dollara sem er nálægt
þremur milljörðum íslenskra króna og fór
kostnaðurinn langt fram úr áætlun sem eru
varla miklar fréttir þegar Francis Ford
Coppola á í hlut.
Það er víst óhætt að segja að allir sem eitt-
hvað mega sín í Hollywood bíða spenntir
eftir hver aðsóknin á myndina verður því
vitaö er af ef hún kolfellur þá mun Coppola
eiga erfitt uppdráttar í nánustu framtíð.
Á prufusýningu í New York í síöustu viku
voru viðtökurnar mjög misjafnar eins og
alls staðar annars staðar. Þótt margir hafi
fagnað og aðrir púað fóru fiestir út án þess
að láta skoðun sína í ljós, sem segir ef til
vill meira en mörg orð um óánægju þeirra.
Einn gagnrýnandi, sem var óánægöur með
þessa þriggja tíma kvikmynd, sagði að þeir
sem hefðu fagnað væru alhr vinir Coppola.
Coppola gerir sér alveg grein fyrir því aö
fyrir hann er Godfather III spuming um
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
framtíðina. Tvær fyrri Godfather-myndirn-
ar fengu stórkostlega dóma og mikla aðsókn
og hafa verið þær kvikmyndir sem hafa
haldið nafni hans á lofti. í viðtah við News-
week fyrir stuttu sagði hann aö menn biðu
eins og um mikinn íþróttaviðburð væri aö
ræða. Mundi Coppola lifa eða deyja?
Fyrstu tvær myndirnar fengu báöar mörg
óskarsverðlaun en talið er ólíklegt að sú
verði raunin nú. í heild er gróðinn af fyrri
myndunum orðinn um það bil átta hundruð
milljónir dollara og þær eru löngu orðnar
klassískar kvikmyndir.
í Godfather III lýkur sögu Michael Cor-
leone sem leikinn er sem fyrr af A1 Pacino.
Ekki er nóg meö aö Corleone hætti sem
„guðfaðir" heldur fær hann aflausn synda
sinna þrátt fyrir að vera bendlaður við
hneyksli í banka Vatikansins.
Eitt af því sem Coppola hefur verið gagn-
rýndur fyrir er að hafa látið dóttur sína,
Sofiu, leika stórt hlutverk í myndinni. í byrj-
un átti Wynona Ryder að leika dóttur Mich-
aels Corleones en hún fékk taugaáfall og
varð að hætta við. Þá réð Coppola dóttur
sína þrátt fyrir mótmæli framleiðendanna.
Hann segir svo um þessa ákvörðun sína að
hann telji að Sofia sé aö gera sér greiða með
því að leika í myndinni en ekki hann henni.
Gagnrýnendur Variety og Time eru ekki á
sama máli og segja að leikur henhar sé eitt
af meginvandamálum myndarinnar. Gagn-
rýnandi Newsweek tók ekki svo sterkt til
orða en það besta sem hann gat sagt um
Sofiu var að hún væri hrífandi stúlka. Hún
er látin deyja í myndinni og á fyrrnefndri
prufusýningu í New York vakti dauðasena
hennar hlátur hjá nokkrum áhorfendum.
Mjög skiptar skoðanir eru hjá gagnrýn-
endum um myndina. Gagnrýnandi Variety
er í heild ánægður með myndina og lokaorð
hans eru að Coppola hafi næstum tekist þaö
erfiða verka að endurtaka þá töfra sem
umluktu fyrri myndirnar tvær. Og í Premier
segir að Godfather III sé ekki meistaraverk
en þó verðugt framhald fyrri mynda um
Corleone-fjölskylduna.
-HK
MARTIN SCORSESE og Robert De Niro eru
langt frá því að vera hættir samstarfi. Þeir
eru nú sem óðast að undirbúa kvikmyndina
Cape Fear og framleiðandinn er engitrn annar
en Steven Spielberg. Nafn kvikmyndarinnar
hijómar kurmuglega, enda var gerð kvikmynd
árið 1962 með þessu sama nafni og er mynd
Scorsese endurgerð hennar. Fjallar myndin
um fyrrverandi fanga sem hefur uppi á lög-
fræðingnum sem kom honum í fangelsi. Fang-
inn fyrrverandi gætir þess að fara aldrei út
fyrir lög ogrétt þegar hann er að hrella lög-
fi-æðinginn ogfiölskyldu hans ogí iok mynd-
arinnar neyðir hann lögfræðinginn tii upp-
gjörs. Robert de Niro leikur fangann. Reynt
var aö fá Robert Redford til að leika lögfiræð-
inginn en hann afþakkaði. Var þá leitaö til
Nick Nolte sem þáði hlutverkið. Ogþað er
engin önnur en Jessica Lange sem leikur eig-
inkonu hans. Þess má geta að Robert Mitchum
og Gregory Peck, sem iéku aðalhlutverkin i
eldri myndinni, munu hafa samþykkt aö leika
smáhlutverk í myndinni.
* ★
Woody Allen er mikill vinnuþjarkur og er
hann yfirleitt byrjaöur á næstu kvikmynd
þegar nýjasta mynd hans er frumsýnd. í jan-
úaráað frumsýna nýjustu kvikmy nd hans,
Alice, sem er gamanraynd um gifta konu sem
ákveður að endurskoða líf sitt Eins og oft
áður er margt frábærra leikara í myndinnL
Má þar nefna William Hurt, Alec Baldwin,
Judy Ðavis, Cybill Shepherd, Judith Ivey,
Bernadetta Peters og aö sjálfsögðu Mia
Farrow. Ekki er minna stjömuliö í kvikmynd
sem hann er að hefja tökur á og er nafnlaus
ennþá. Þar leika meðal annars Madonna,
John Malkovich, Jodie Foster, Donald Pleas-
ence, Kate Nelligan og auövitaö Mia Farrow.
★ ★ ★
JIM SHERIÐAN, leikstjórinn ungi sem leik-
stýrði My Left Food, frumsýnír nýjustu kvik- ■
mynd sína, The Field, I janúar. Sheridan, sem
er íri og stoltur af því, lét sem vind um eyru
þjóta öll gylliboð og heldur sig við „litlar“
kvikmyndir. Og það sem meira er, hann fékk
landa sinn, Richard Harris, sem hefur ekki
verið mjög mikið í sviðsljósinu undanfarin
ár, til að leika aöalhlutverkið. Brenda Frick-
er, sem vakti. mikla athygli í My Left Food,
leikur eiginkonu Harris og Hollywoodstjarn-
an Tom Berenger leikur þriöja aðalhlutverk-
ið.
★ ★ ★
DIRK BOGARDE hefur nú leikið í kvikmynd
eftir þrettán ára hlé. Á þessum árum hefur
hann sent frá sér nokkrar skáldsögur sem
hafa yfirleitt fengið góða dóma. Bogarde er
sem sagt kominn fram fyrir myndavélina aft-
ur og leikur fóöur sem loks kynnist dóttur
sinni rétt óður en hann deyr. Kvikmyndin
heitir Daddy Nostalgia. Jane Birkin leikur
dóttur hans. Leikstjóri er enginn annar en
dag. Hann leikstýr ði meöal annars Round
Midnight.
Gagnrýnendur í New York hrifhir af Góðum gæjum
Mikla athygh vekur ávallt í kvik-
myndaheiminum þegar gagnrýn-
endur í New York afhenda sín ár-
legu verðlaun. Mörgum þykir þessi
verðlaunaafhending gefa hugmynd
um hvaöa myndir verða líklegastar
til óskarsverðlauna. Samkvæmt
mati gagnrýnendanna er enginn
vafi á að Goodfellas er besta kvik-
myndin á þessu ári. Var hún vahn
besta kvikmyndin. Robert De Niro
var vahnn besti leikarinn og Mart-
in Scorsese var valinn besti leik-
sljórinn.
Val þetta kemur fáum á óvart.
Goodfehas hefur verið mikið hælt
í Bandaríkjunum sem og annars
staðar. Svo er það aö Martin Scor-
sese og Robert De Niro eru báðir
New York-búar og ávaht þegar
þeim gengur vel hafa gagnrýnend-
ur í heimaborg þeirra hampaö
þeim.
Gagnrýnendurnir, sem mynda
þennan áhrifamikla hóp, eru tutt-
ugu og átta. Þeim fannst ekki nóg
að veita Robert De Niro verðlaun
fyrir GoodfeUas heldur tóku þeir
fram að leikur hans í Awakenings
væri einnig einn af hápunktum
ársins.
Gagnrýnendurnir völdu þýsku
kvikmyndina Illgjörn stúlka sem
bestu erlendu kvikmyndina. Fjall-
ar hún um stúlku sem fer að hrófla
við fortíðinni í smábæ, þar sem hún
á heima, til að komast að því hveij-
ir voru nasistar og hverjir ekki.
Besta leikkonan var valin Joanne
Woodward fyrir hlutverk sitt í Mr.
and Mrs. Bridge. Þar leikur hún
einmana ráðskonu.
Þaö sem kom kannski mest á
óvart var að gagnrýnendumir
leiddu alveg hjá sér hina rómuðu
kvikmynd Kevins Costner, Dances
with Wolves, og einnig Godfather
m.
-HK
Robert De Niro og Ray Liotta i Góðum gæjum (Goodfellas)