Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1990, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1990, Page 25
LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990. 25 Sviðsljós Mark Phillips fjarri fjölskyldunni Mark Phillips, eiginmaður Önnu prinsessu, eyðir jólunum ekki með flölskyldu sinni. Prinsinn flaug til Washington fyrir jólin í leynilega Mark Phillips. heimsókn eins og bresku blöðin orða það. Peter, 13 ára, og Zara, 9 ára, verða því ekki með föður sínum yfir hátíðirnar. Það hefur lengi verið al- talað í Englandi að samband Önnu prinsessu og Marks Phillips væri skrítið en Elísabet drottning hefur þó ekki viljað viðurkenna hjóna- skilnað. Mark Phillips var einnig í Bandaríkjunum um síðustu jól og áramót. Hjónabandsörðugleikar Önnu prinsessu hafa veriö viðkvæmt mál hjá konungsfjölskyldunni en sem kunnugt er skildu þau Margrét, systir Elísabetar, og Snowdon lá- varður fyrir allnokkrum árum. Michelle Pfeiffer komin með nýjan Þrátt fyrir góðar tilraunir tókst Michelle Pfeiffer ekki að lauma sér fram hjá fréttaljósmyndurum þegar hún kom til flugvallarins í Los Ang- eles. Pfeiffer var í þeim erindagjörð- um að vera viðstödd frumsýningu á nýjustu mynd sinni, The Russia House, sem Sviðsljós hefur reyndar greint frá. Til upprifjunar skal þess getið að mótleikari hennar í þeirri mynd er enginn annar en skoski sjarmörinn og fyrrum njósnari hennar hátignar (007), Sean Conn- ery. Við komuna til Los Angeles var Pfeiffer klædd síðum frakka, með hatt á höfði og sólgleraugu á nefinu en fréttahaukarnir þar vestra létu ekki blekkjast og sáu strax hver var þar á ferð. Það bar vel í veiði því að með henni var Fisher nokkur Ste- vens en sagt er aö þau séu saman öllum stundum. Skötuhjúin fara þó varlega í sakirnar og ekki er gert ráð fyrir að kirkjuklukkurnar hljómi, a.m.k. ekki alveg strax. Pfeiffer, sem þykir’ bæði góð leikkona og myndar- leg í þokkabót, er 32 ára en Stevens er aðeins yngri, eða 26 ára. STAÐGREIÐSLA Skatthlutfall og persónuafsláttur árið 1991 r Aríðandi er að launagreiðendur kynni sér rétt skatthlutfall og skattafslátt 1991 Þrátt fyrir breytingar á almennu skatt- hlutfalli og persónuafslætti verða ný skattkort ekki gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið skattkort. Frá og með 1. janúar 1991 ber launa- greiðanda því að reikna staðgreiðslu af launum miðað við auglýst skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar og taka tillit til þess hlutfalls persónuafsláttar sem tilgreint er á skattkorti launamanns. Ný skattkort sem gilda fyrir árið 1991 verða einungis gefin út til þeirra sem öðlast rétttil þeirra í fyrsta sinn. Á þeim verður aðeins tilgreint hlutfall persónu- afsláttar auk persónubundinna upplýs- inga um launamanninn en skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar kemur þar ekki fram. Frá og með 1. janúar 1991 eru fallin úr gildi eftirfarandi skattkort: Skattkort með uppsöfnuðum persónuafslætti og námsmannaskattkort útgefin 1988-1990. Skatthlutfall staðgreiðslu er 39,79% Á árinu 1991 verður skatthlutfall staðgreiðslu 39.79%. Skatthlutfall barna, þ.e. sem fædd eru 1976 eða síðar, verður 6%. Persónuafsláttur er22.831 kr. Persónuafsláttur ársins 1991 hefurverið ákveðinn 273.969 kr. Mánaðarlegur persónuafsláttur verður þá 22.831 kr. Sjómannaafsláttur er 630 kr. Sjómannaafsláttur ársins 1991 verður 630 kr. fyrir hvern dag sém maður telst stunda sjómannsstörf. Breytingar síðar á árinu Breytingar sem kunna að verða á upp- hæð persónu- og sjómannaafsláttar síðar á þessu ári verða auglýstar sér- staklega. Auk þess fá allir launagreið- endur sem hafa tilkynnt sig til launa- greiðendaskrár RSK orðsendingu um breytingar á fjárhæðum. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Pfeitfer og Stevens við komuna til Los Angeles.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.