Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1990, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1990, Page 33
LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990. 45 Það er jafnan mjög gott að hafa eitthvert miðnætursnarl eftir að hið nýja ár gengur í garð. Menn hafa þá verið úti við að sprengja rakettur og flugelda og hungrið og kuldinn gera það að verkum að eitthvað heitt er vel þegið. Helgarblaðið ákvað að finna nokkra létta góða rétti handa miðnætursvöngum en gjarnan má hafa þá tilbúna áður þannig að að- eins þarf að Jjgra þá fram eða hita upp ef með þarf. Hér kemur til dæm- is ljúffengt rækjupæ sem ætti að vera hægt að matreiða fyrr um daginn og stinga síðan í ofninn rétt fyrir klukknaóminn klukkan tólf. Rækjupæ 3 plötur fryst smjördeig 1 egg Fylling 4 dl sýrður ijómi 'A fisksoðsteningiu- 1 pk. kavíar 400 g hreinsaðar rækjur Punt dill, sítróna og kavíar Aðferó Látið smjördeigið þiðna í 15-20 mínútur. Fletjið það út og klæðið með því eldfast form, t.d. pædisk, ca 24 sm. Pikkið í deigið með gaffli. Hrærið eggið og penslið yfir deigið. Sett í ofn í 15-20 mínútur við 200 gráða hita þar til deigiö fær á sig gylltan blæ. Kælið. Hitið sýrða rjómann varlega upp að suðu. Setjið fiskteninginn í og látið hann leysast upp. Blandið kavíarn- um og rækjunum saman við en geymið smávegis af hvorutveggja í puntið. Hitið - má ekki sjóða. Hellið síðan fyllingunni yflr deigið og punt- ið. Berið fram strax en rétturinn er mjög góður með köldu hvítvíni. Steiktar pylsur Gott getur verið og fljótlagað að steikja pylsur á pönnu og bera síðan góð salöt með og kartöflumús. Einnig getur góð uppskrift að kartöflusalati komið í stað kartöflumúsarinnar og þá er einnig gott að hafa hrásalat. Kartöflusalat 750 g soðnar kartöflur, skornar rten- inga 1 laukur, saxaður 2 epli, skorin smátt 2 hakkaðar asíur 2'A dl.. sýrður rjómi 4 msk. majónes 1 msk. sinnep malaður pipar Hrærið saman ijómanum, majó- nesinu, sinnepinu og piparnum. Bæt- ið rólega í salatið kartöflunum, epl- unum, lauknum og asíunum. Látið kartöflusalatið á kaldan stað. Skreyt- iö með difli eða blaðlaukshringjum. Kartöflusalatið má vel búa til daginn áður. Kínverskar pönnukökur Pönnukökudeig 3 egg 8 dl mjólk 4 dl hveiti 'A tsk. salt 2 msk. smjörlíki 1 dl rifmn ostur Fylling 2 stk. laukur 2 msk. smjörlíki Smurt brauð með ýmsu gódgæti. Margvíslegt áramóta- góðgæti 'A tsk. karrí 200 g hvítkál 2 stk. gulrætur 1 msk. hveiti 4 msk. tómatþykkni 1 dl vatn salt og pipar Lagið pönnukökudeigið. Bræðið feitina og bætið henni í. Snyrtið og saxið laukinn. Steikið hann í feitinni. Karrí sett út í. Saxið hvítkáliö smátt. Flysjið gulrætumar og rífiö þær gróft niður. Bætið öllu saman á pönnuna og hræriö því vel saman. Stráið hveitinu yfir. Bleytið í með tómatþykkninu og vatninu. Bragðbætið með salti og pipar. Látið allt sjóða um 10 mínútur. Bakið pönnukökurnar. Leggið fyll- inguna innan í og raðið þeim síðan í ofnfast form. Stráið ostinum yfir og gratínerið í 250 gráða heitum ofni í um tíu mínútur. Berið kínverska eða japanska soja- sósu fram með réttinum. Tómatsalat gæti líka farið vel með. (Úr bókinni Ódýrt og gott) Austurrískar keisarabollur 25 stk. 25 g smjör 5 dl mjólk 50 g ger 1 tsk. salt Zi msk. sykur eða hungang ca 12 dl hveiti Bræðið smjörið og setjið mjólkina út í. Hrærið gerið út í. Bætið salti, sykri og hveiti í þar til deigið verður mjúkt. Látið deigið hefa sig í minnst 15 mínútur. Skiptið því síðan niður í 25 jafn- stóra bita. Fletjið og bijótiö kantana saman. Leggið þá síðan á hvolf (uppábrotið snýr niður) á bökunar- plötu og látið hefa sig í þijátíu mínút- ur. Snúið rúnstykkjunum við og bak- ið við 250 gráða hita í 10-12 mínútur. Keisarabollurnar eru góðar smurðar og með áleggi eða sem súpubrauð. Pönnupitsa Fylling: tómatsósa nýir tómatar 250 g nýir sveppir 'A laukur 1 rauð paprika 1 tsk. oregano 1-2 dl rifmn ostur Deigið 2 dl hveiti 'A tsk. lyftiduft % tsk. salt '/2 dl olía 1 egg ca 3/4 dl vatn Gerið fyllinguna fyrst. Hakkið laukinn, hreinsið sveppina og skerið í skífur og paprikuna í teninga. Bræðið smjör á pönnunni og leyfið þessu að malla þar til laukurinn verður glær. Takið þá af pönnunni. Hnoðið öllum þurrefnum saman fyrst, síöan ofiu, egginu og vatninu. Setjið deigiö á pönnuna og steikið í 4-5 mínútur á annarri hliðinni og snúið síöan við. Smyrjið yfir með tómatsósunni og leggið tómatskíf- urnar yfir. Setjiö síðan lauk og sveppafyllinguna yfir og kryddið með oregano. Þá er rifinn ostur sett- ur yfir. Setjið lok á pönnuna og látið steikjast áfram í 8 mínútur á miðl- ungshita. Berið pitsuna á borð á pönnunni. Gott er að hafa hrásalat með. Smurbrauð Smurt brauð er alltaf vel þegið en hægt er að búa það til á margvíslegan hátt. Sumir kjósa heitt brauð og er þá mjög gott að raða steiktum beik- onskífum á fransbrauðsneið, svepp- um og eplaskífum og ostsneiðum yfir. Brauðinu er stungið í ofn og hitað þar til osturinn bráðnar. Einnig er gott að raða sveppum og blaðlauk á brauðið og ostsneiðunum ofan á. Réttast er að láta hugmyndaflugið ráða. Á kaldar brauðsneioar er gott að raða t.d. salatblaði, flskbúðingsbita, fínt skornum blaölauk, sítrónu og Rækjupæ með kaviar. Heitt brauð með beikoni og fleiru. Fyllt brauð. Pönnupitsa. majónesi... ... eða kjötbúðinssneið með tómat- skífu og agúrku... ... einnig’ má nota síldarbita eða sardínu í tómat með saltatblaði... ... eða afgang af kjúklingi á salat- blaði með paprikusneið... ... afgang af laxi eða öðrum fiski á salatblaði með sýrðum ijóma og fersku dilli... ... camembertosteðabriemeðpapr- iki, appelsínusneið eða öðrum ávöxtum... -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.