Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1993, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993
5
Fréttir
Akranes:
Fomleifarannsókn í hringunum við Nesstofu:
spellvirki
Siguröui Sverrisson, DV, Akranesi:
ftrekuö skemmdarverk hafa
verið framin í kirkjugarðinum á
Akranesi undanfarnar vikur og
20 leiði hafa orðiö iyrir barðinu á
spelivirkjum.
Að sögnlögreglu hefur legstein-
um verið velt um koll, krossar
rifnir upp, blóm tröðkuð niður
og aðrar skemmdir unnar á leíð-
um.
Máliö er i rannsókn hjá lög-
reglu sem stendur ráöþrota
frammi fyrir þessari áráttu.
Akranes:
Hundar
drepastúr
smáveiru-
sótt
Signrðui Svexrisson, DV, Hkranesi:
Smáveirusótt í hundum hefur
stungið sér niður á Akranesi.
Dagmar Vala Hjörleifsdóttir
dýralæknir segir dæmi um að
hundar hafi drepist af völdum
hennar hér í bænum.
Dagmar Vala sagðist í samtali
við DV áhyggjufull yfir sinnu-
leysi hundaeigenda í bænum þvi
allt og mikil brögð væru að því
að hundar væru óbólusettir fyrir
þessari veiki.
Skurðurinn getur gef ið
skýringar um hringina
- niðurstöður liggj a fyrir á sunnudag
„Grassvörðurinn og laus jarðvegur
var tekinn ofan af á fimmtudag en
við byrjum rannsóknina ekki fyrr en
á laugardag. Tilgangur rannsóknar-
innar er að finna út hvort hringimir
hér við Nesstofu séu mannvistarleif-
ar eða náttúrulegar myndanir. Þetta
eru mjög sérkennilegar myndanir og
það er einstætt hversu margir hring-
irnir eru,“ segir Kristinn Magnús-
son, forstöðumaður Nesstofusafns.
Fornleifauppgröftur hefst í dag í
hringunum við Nesstofusafn á Sel-
tjarnarnesi og stendur uppgröftur-
inn fram á sunnudag. Það eru þeir
Kristinn Magnússon, forstöðumaður
Nesstofusafns, og Þorvaldur Frið-
riksson fomleifafræðingur sem
standa að uppgreftrinum.
Traktorsgrafa frá áhaldahúsi Sel-
tjarnarness gróf 18 metra langan
skurð frá miðjum hring út í gegnum
vegg hringsins á fimmtudag. Krist-
inn Magnússon segir að í miðjum
skurðinum hafi komið í ljós steinar
sem verði kannaðir nánar um helg-
ina. Hann segir að niðurstöður rann-
sóknarinnar eigi að liggja fyrir strax
á sunnudag og verði gengið frá
skurðinum fljótlega eftir það.
Átta hringir eru í túninu fyrir neð-
an Nesstofu á Seltjarnarnesi. Hring-
irnir eru mjög misstórir, sá stærsti
Uppgröftur hefst í einum hringanna í túninu við Nesstofu á Seltjarnarnesi í dag en Kristinn Magnússon, forstöðu-
maður Nesstofusafns, stjórnar uppgreftrinum. Búist er við að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir á sunnudag.
DV-mynd GVA
er nærri 50 metrar í þvermál en metrar. Ýmsar getgátur eru uppi um en slíkir hringir eru á nokkrum stöð-
hringurinn sem fornleifafræðing- gildi þeirra en hugsanlegt er talið að um á landinu.
arnir rannsaka um helgina er um 35 um svokallaða dómhringi sé að ræða -GHS
Breytingar á Litla-Hrauni 1 kjölfar tíðra stroka og fangauppþota:
Það vita allir hvað blankir þjðf ar gera
- segir fangi og telur peningunum betur varið í launahækkanir
Iðnaðarmenn vinna nú baki brotnu
að breytingum sem verið er að gera
á vinnuhælinu á Litla-Hrauni í kjöl-
far tíðra stroka þar í sumar og fanga-
uppreisnar. í kjölfar strokanna sam-
þykkti ríkisstjórnin að veita tíu millj-
ónir til nauðsynlegra úrbóta í fang-
elsismálum og segir Gústaf Lilli-
endahl, fangelsisstjóri á Litla-
Hrauni, að um fjórar milljónir hafi
falliö Litla-Hrauni í skaut. Hann seg-
ir að þær framkvæmdir sem nú sé
verið að vinna að séu liður í því að
gera fangelsið öruggara en það verði
seint alveg öruggt. Einnig verður
þarna bætt aðstaða fyrir þá fanga
sem eru þægilegir í umgengni því
taka þurfti nýjustu álmuna á Hraun-
inu frá fyrir mestu vandræðageml- -
ingana.
í breytingunum felst að fangelsinu
verður skipt upp í fimm hluta. Eftir
breytingu verður pláss fyrir 50 fanga
en áður var hægt að vista 52 fanga.
Nýjasta byggingin, sem hingað til
hefur hýst „betri“ fanga, verður lok-
uð deild og fyrst og fremst ætluð fyr-
ir fanga sem einhverra hluta vegna
eru til vandræða í fangahópnum, svo
sem vegna sífelldra árekstra við sam-
fanga eða starfsmenn, fíkniefna-
neyslu og/eða annarra agabrota. Úti-
vist.fanga í þessum hluta verður að
mestu bundin við afgirtan garð.
Dyr verða settar á milli annarra
ganga fangelsisins til að takmarka
samgang þar á milli ef ástæða þykir.
Loks verður sérdeild, ætluð fyrir
tólf fanga sem líklegir eru til að vilja
taka þátt í að skapa jákvætt and-
rúmsloft og sem þægilegasta fangels-
isvist í sátt við samfanga og starfs-
menn. Fangar sem fá inni á þeirri
deild munu ekki hafa samneyti við
aðra fanga nema við nám eða vinnu.
Nokkrar endurbætur munu einnig
fara fram á húsnæðinu. Má þar t.d.
nefna að setustofa verður stækkuð
með því að leggja niður tvo klefa og
auk þess verður hreinlætisaðstaða
bætt.
Fangar eru ekki á eitt sáttir um
forgangsröð verkefna í fangelsinu.
T.d. hafði einn fangi samband við
DV og sagði að ef menn ættu „pen-
inga fyrir svona fíflagang þá hlytu
þeir að eiga peninga til að hækka
laun okkar vistmanna. Þau eru 75
kr. á tímann og þykir það mann-
skemmandi. Þegar þeir losna héðan
fara þeir með tómar hendur og það
vita allir hvað blankir þjófar gera.“
Gústaf segir ljóst að það verði aldr-
ei allir sáttir við þessar breytingar
þar sem einungis sé pláss fyrir alla
fangana á sérdeildinni. „Menn hafa
misjöfn laun og það er verið að reyna
að hafa hvetjandi launakerfi. Þeir
sem koma sér vel veljast í betri störf-
in, og þeir hafa nú bara töluverða
launamöguleika, eh þeir sem eru
lægstir hafa náttúrlega lítið. Þeir eru
ekkert ofhaldnir af því,“ segir Gústaf
-PP
ruefbúánHeimiliskortið!
FISKPAKKI
8 kg af lausfrystum ýsuflökum
2 kg af ýsuhakki
10 KC Á AÐEIIUS KR 3-300,-
Frí heimsending
Þetta er dæmi um einn af 120 afsláttaraðilum Heimiliskortsins
VERÐKÖNNUN 31. ÁGÚST
Bónus 4.098.- 24% DÝRARA
Fjarðarkaup 4.574.- 38% DÝRARA
Hagkaup 4.710.- 42% DÝRARA
Hólmgarður 4.896.- 48% DÝRARA
Eyjakaup 5.142.- 55% DÝRARA
Þú eignast þriggja mánaða
Heimiliskort fyrir aðeins 1.000 krónur
4á>
Heimilisklúbburinn Bolholti 6 Rvk.