Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1993, Blaðsíða 30
38
gp
:oi?r H38M3Tqi8 .?•? 3U0/aHADTJAJ
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993
Fréttir
Linda Magnúsdóttir Lenti í alvarlegu mótorhjólaslysi árið 1987:
Foturinn varv(|
græddur á hana
Barst til Eyja um ari
eftir aðbað var senl u '
Hundur með kettlinga í fóstri'. ™
Mjólkar enhefurekkjátthvolpa
KeDavíkurflugvöUur: |j
Kratafforingi " aÆ
ráðinnsem
skrifstofustjóri
^SvSuskem»«
Bl»**“SJríSSSS s»=S
Rektorsbústaður verð
‘JnnOa júni reistur í SkálhoHi
bjargarnálunurn W vnoin^a^mtlunari<itel<^e^6mill1ów^n^^^
Börnaðleik ^d/
•tss' 'Æm I
IMri >n nun>i<6lld«
•J?» •» m««n hálrtftí^ttjlcur.
J-jf/ OVunynd POK
I Fann pöddu í
brjóstsykri
*** *,r húinn að vera með háls-
Se8ú'Kári íáarfií*
bíustaðahr!
^umauth
^feistrandid
1” ,*
ísoro*”'
Aa\>oÖ^
„> <m>.% ‘ nWFm^r::
íslensk kona tengd listaverkstæði í París:
Ánthony Quinn er
íttSt ^ ^
5»' góðvinur okkar
Fréttaskot DV, sími 62-25-25:
Snjallar fréttir birtar eftir
ábendingar til fréttaskotsins
Lesendur DV hafa verið mjög
ötulir við að senda ábendingar um
fréttir til blaösins frá því að frétta-
skotið, sími 62-25-25, hóf göngu sína
29. mars 1984. Rúmlega ellefu þús-
und fréttaskot hafa verið skráð á
þessum tíma sem þýðir að þau hafa
farið í vinnslu á ritstjóm blaðsins.
Fjöldi þessara ábendinga hefur síö-
an birst sem frétt á síðum DV.
Nokkuð hefur borið á þeim mis-
skilningi þeirra sem senda inn
fréttaskot að halda að þau séu tekin
hrá og sett í blaðiö. Málið er flókn-
ara en það. Þegar fréttaskot berst
er það skráð og fer síðan til frétta-
stjóra. Hann úthlutar því til blaða-
manns sem gengur úr skugga um
sannleiksgildi þess og fær upplýs-
ingar um allar hhðar málsins. Þá
fyrst er fréttin tilbúin til birtingar
í DV.
Rétt er að taka fram aö ekki er
tekið við fréttatilkynningum, smá-
auglýsingum eða lesendabréfum í
síma fréttaskotsins. Heldur ekki
kvörtunum um að blaðið hafi ekki
borist til áskrifenda og á tímum
farsíma eru hringjendur beðnir að
slökkva á útvarpi þegar hringt er.
Eins og sjá má hafa margvíslegar
fréttir borist DV í gegnum símann
sem aldrei sefur, 62-25-25, á síðustu
vikum. Má þar nefna frétt um unga
stúlku sem lenti í bifhjólaslysi. Fót-
ur hennar hékk á einni taug en var
græddur á hana; um að skipverjar
á Selfossi björguðu vöruskemmu í
Finnlandi meö fræknu slökkvi-
starfi; um að börn aö leik fundu
blóðugar sprautunálar við sorpt-
unnur; um sextuga ömmu sem fékk
trommusett á 60 ára afmæhnu og
fær útrás á trommunum; um ís-
lenska konu í París sem gerir
bronssteypur ásamt manni sínum
fyrir leikarann heimsfræga, Ant-
hony Quinn; um tík sem mjólkar
kettlingum en hefur þó ekki átt
hvolpa sjálf. Frétt var um aö ham-
ingjubréf voru send á kostnað
sýslumannsembættisins í Kópa-
vogi og um deilur innan landhelgis-
gæslunnar. Skipherra sagt upp af
forstjóra sem hættir og um síðbúið
fermingarskeyti frá Akureyri sem
barst til Vestmannaeyja ári eftir að
það var sent.
Þá var frétt um aö skemmdar-
verk voru unnin í Fossvogskirkju-
garði; um að rektorsbústaður verð-
ur byggður í Skálholti þó þar sé
ekki skóli lengur; um að sami bíll
ók með kjöt tO neyslu og sorp þess
á milii; um mann sem fann pöddu
í bijóstsykri; um feðga sem réðust
á aldraðan hjartasjúlking; um aö
hreppsnefnd Skútustaðahrepps
gleymdi 17. júni og frétt var um að
kona í Vestmannaeyjum með þrjú
börn hefði orðið fyrir skotárás,
fengiö kúlu úr loftriffli í eyrað. Sú
frétt var raunar valin fréttaskot
vikunnar sem þýðir að sendandinn
varð 7.000 krónum ríkari.
Það er rétt að rifja aðeins upp
leikreglur. Hafi einhver ábendingu
um frétt, sem hann óskar eftir að
koma á framfæri við DV, hringir
hann í síma fréttaskotsins, 62-25-25.
Þar er tekið við fréttum allan sólar-
hringinn, aUa daga vikunnar.
Hringjandi gefur strax - í byrjun
fréttaskotsins - upp nafn og heimil-
isfang óski hann eftir að fá greiðslu
fyrir fréttaskotið. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist í blaðinu, eru
greiddar 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í viku hverri eru
greiddar 7.000 krónur.
DV heitir þeim sem senda inn
ábendingar um fréttir fullum trún-
aði og fullrar nafnleyndar er gætt.
-hsím