Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1993, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1993, Page 30
38 gp :oi?r H38M3Tqi8 .?•? 3U0/aHADTJAJ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 Fréttir Linda Magnúsdóttir Lenti í alvarlegu mótorhjólaslysi árið 1987: Foturinn varv(| græddur á hana Barst til Eyja um ari eftir aðbað var senl u ' Hundur með kettlinga í fóstri'. ™ Mjólkar enhefurekkjátthvolpa KeDavíkurflugvöUur: |j Kratafforingi " aÆ ráðinnsem skrifstofustjóri ^SvSuskem»« Bl»**“SJríSSSS s»=S Rektorsbústaður verð ‘JnnOa júni reistur í SkálhoHi bjargarnálunurn W vnoin^a^mtlunari<itel<^e^6mill1ów^n^^^ Börnaðleik ^d/ •tss' 'Æm I IMri >n nun>i<6lld« •J?» •» m««n hálrtftí^ttjlcur. J-jf/ OVunynd POK I Fann pöddu í brjóstsykri *** *,r húinn að vera með háls- Se8ú'Kári íáarfií* bíustaðahr! ^umauth ^feistrandid 1” ,* ísoro*”' Aa\>oÖ^ „> <m>.% ‘ nWFm^r:: íslensk kona tengd listaverkstæði í París: Ánthony Quinn er íttSt ^ ^ 5»' góðvinur okkar Fréttaskot DV, sími 62-25-25: Snjallar fréttir birtar eftir ábendingar til fréttaskotsins Lesendur DV hafa verið mjög ötulir við að senda ábendingar um fréttir til blaösins frá því að frétta- skotið, sími 62-25-25, hóf göngu sína 29. mars 1984. Rúmlega ellefu þús- und fréttaskot hafa verið skráð á þessum tíma sem þýðir að þau hafa farið í vinnslu á ritstjóm blaðsins. Fjöldi þessara ábendinga hefur síö- an birst sem frétt á síðum DV. Nokkuð hefur borið á þeim mis- skilningi þeirra sem senda inn fréttaskot að halda að þau séu tekin hrá og sett í blaðiö. Málið er flókn- ara en það. Þegar fréttaskot berst er það skráð og fer síðan til frétta- stjóra. Hann úthlutar því til blaða- manns sem gengur úr skugga um sannleiksgildi þess og fær upplýs- ingar um allar hhðar málsins. Þá fyrst er fréttin tilbúin til birtingar í DV. Rétt er að taka fram aö ekki er tekið við fréttatilkynningum, smá- auglýsingum eða lesendabréfum í síma fréttaskotsins. Heldur ekki kvörtunum um að blaðið hafi ekki borist til áskrifenda og á tímum farsíma eru hringjendur beðnir að slökkva á útvarpi þegar hringt er. Eins og sjá má hafa margvíslegar fréttir borist DV í gegnum símann sem aldrei sefur, 62-25-25, á síðustu vikum. Má þar nefna frétt um unga stúlku sem lenti í bifhjólaslysi. Fót- ur hennar hékk á einni taug en var græddur á hana; um að skipverjar á Selfossi björguðu vöruskemmu í Finnlandi meö fræknu slökkvi- starfi; um að börn aö leik fundu blóðugar sprautunálar við sorpt- unnur; um sextuga ömmu sem fékk trommusett á 60 ára afmæhnu og fær útrás á trommunum; um ís- lenska konu í París sem gerir bronssteypur ásamt manni sínum fyrir leikarann heimsfræga, Ant- hony Quinn; um tík sem mjólkar kettlingum en hefur þó ekki átt hvolpa sjálf. Frétt var um aö ham- ingjubréf voru send á kostnað sýslumannsembættisins í Kópa- vogi og um deilur innan landhelgis- gæslunnar. Skipherra sagt upp af forstjóra sem hættir og um síðbúið fermingarskeyti frá Akureyri sem barst til Vestmannaeyja ári eftir að það var sent. Þá var frétt um aö skemmdar- verk voru unnin í Fossvogskirkju- garði; um að rektorsbústaður verð- ur byggður í Skálholti þó þar sé ekki skóli lengur; um að sami bíll ók með kjöt tO neyslu og sorp þess á milii; um mann sem fann pöddu í bijóstsykri; um feðga sem réðust á aldraðan hjartasjúlking; um aö hreppsnefnd Skútustaðahrepps gleymdi 17. júni og frétt var um að kona í Vestmannaeyjum með þrjú börn hefði orðið fyrir skotárás, fengiö kúlu úr loftriffli í eyrað. Sú frétt var raunar valin fréttaskot vikunnar sem þýðir að sendandinn varð 7.000 krónum ríkari. Það er rétt að rifja aðeins upp leikreglur. Hafi einhver ábendingu um frétt, sem hann óskar eftir að koma á framfæri við DV, hringir hann í síma fréttaskotsins, 62-25-25. Þar er tekið við fréttum allan sólar- hringinn, aUa daga vikunnar. Hringjandi gefur strax - í byrjun fréttaskotsins - upp nafn og heimil- isfang óski hann eftir að fá greiðslu fyrir fréttaskotið. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist í blaðinu, eru greiddar 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í viku hverri eru greiddar 7.000 krónur. DV heitir þeim sem senda inn ábendingar um fréttir fullum trún- aði og fullrar nafnleyndar er gætt. -hsím

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.