Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1993, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1993, Síða 9
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 9 Reykingar aukast medal ungmenna: Viljnm meiri áróður - segja reyklausu unglingamir og vilja banna reykingar alfarið á skólalóðum Svo viröist vera sem í kjölfar hippa- tískunnar, sem unglingar aöhyllast mjög um þessar mundir, hafi reyk- ingar færst í vöxt. Það er reyndar mjög á skjön við þá almennu þróun sem átt hefur stað á vinnustöðum landsins sem keppast hver um annan þveran að vera reyklausir. Nýjasta dæmið er reykingabann á flugleiðum innan Evrópu og á aðalskrifstofu Flugleiða. Þá má benda á að blaða- og fréttamenn, sem lengi vel töldust hið mesta reykingafólk, hafa kvatt reykmettað vinnuloftíð. Á flestum fjölmiðlum er nú bannað að reykja nema í litlum reykherbergjum. Ekki er langt síðan mikil umræða skapaðist um reykleysi á sjúkrahús- um en flestum þykir nú sjálfsagt að þær stofnanir séu reyklausar. Þá voru biðstofur oft hinar mestu reyk- holur en hafa nú breyst í reyklaust og heilsusamlegt umhverfi. Búast má við að reykingamenn eigi enn færri íverustaði í framtíðinni. Það er því heldur skrítið aö sjá hópa unghnga samankomna og alla reykjandi, jafnt fyrir utan grunn- skólana sem sjoppur og skyndibita- staði. Ekki er langt síðan skólamir státuðu sig af reyklausum bekkjum, jafnvel heilu skólarnir voru reyk- lausir. Reyklausu hðin voru áber- andi og voru þau jafnt íþróttahð sem fegurðardrottningar. Misjafnt eftir skólum DV fór í nokkra grunnskóla og spuröi nemendur áttundu, níundu og tíundu bekkja hvort þeir hafi orö- ið varir við meiri reykingar á skóla- lóðum en áður hefur tíðkast. Mjög misjafnt var eftir skólum hversu mikið er reykt og virðist vera mikið í sumum en lítíð í öðrum. Unghngar eru áhrifagjamir og í einhveijum skólum em heilu bekkimir reykj- andi. í Réttarholtsskóla er mikið reykt. „Það er miklu meira reykt en var og má kannski segja að það sé í tísku,“ sagði Vigdís Oskarsdóttir í tíunda bekk sem sjálf reykir. „Við erum að reyna að gera skólann reyklausan enda vom svo margir sem reyktu. Það hefur gengið ágætlega og margir hafa þegar hætt. Eg er að spá í að hætta líka,“ sagði hún. Vigdis taldi ekki þörf á frekari áróðri varðandi reykingar. Nokkrir nemendur sem DV ræddi við í Fellaskóla vora á einu máh um að ekki væri mikið reykt í þeirra skóla. „Það er helst í tíunda bekk,“ sögðu þeir. „Okkur finnst ahs ekki í tísku að reykja núna en það var það á tímabili. DV ræddi við þrjá nem- endur í áttunda og níunda bekk en enginn þeirra reykir. Þeir sögðu að reykingar ykjust mjög þegar komið væri í tíunda bekk. „Aðaláróðurinn gegn reykingum er í áttunda bekk.“ Krakkarnir sögðust þekkja nokkra sem reykja og vilja hætta en það reynist oft erfitt. í Fehaskóla er leyfi- legt að reykja á skólalóðinni en ekki við inngang skólans. Reyklausir krakkar vilja sumir banna reykingar alfarið á skólalóðum, öðrum stendur á sama um þær. Margir neyta áfengis í Vogaskóla er aðeins einn tíundi bekkur með 27 nemendum. Lítih hluti þeirra reykir. Hins vegar mun vera mikið reykt í næsta skólahúsi, Langholtsskóla. „Það er ekki mikiU áróður hér gegn reykingum. Hann mættí vera miklu meiri," sagði Bene- dikt Ármannsson, nemandi í tíunda bekk Vogaskóla. „Áróðurinn hefur áhrif á unghngana. Hins vegar er mjög mismunandi hvort krökkum finnst flott að reykja. Sumum finnst það öðrum alls ekki. Sjálfur er ég á mótí reykingum. Ég veit til þess að sumir unglingar reykja ekki venju- lega en gera það á fylliríum,“ sagði Benedikt. „Þaö er nú ekki síður al- varlegur hlutur hversu margir krakkar í tíunda bekk drekka áfengi en þeir eru mjög margir." Jenný Arnardóttír er bekkjarsystir Benedikts. Hún reykir og er búin að gera það í eitt ár. „Ég ætla ekki að hætta," segir hún. Jenný segist hafa byijað að reykja vegna þess að hana langaöi tíl að prófa það. Hún er farin að reykja heima og fer því ekki í fel- ur með reykingar sínar. Jenný finnst áróður gegn reykingum nægUegur. Annar bekkjarbróðir, Hjalti Þór Heiðarsson, reykir hvorki né drekk- ur og hefur engan áhuga á slíku. „Mér finnst ekki nógu gott að ungl- ingar skuli byija að reykja," segir hann. „Mér er ekki vel við reykingar og að mínum dómi mættí áróður vera miklu meiri. Aðilar frá Krabba- meinsfélaginu komu hingað einu sinni í fyrra og mér finnst að þeir ættu að koma oftar.“ Átak í gangi í Garðaskóla í Garðabæ, sem í em aðeins unghngadeildir eins og í Rétt- arholtsskóla, er mikið reykt. Að sögn Lísa Ólafsdóttir, Sigrún Karlsdóttir, nemandi í niunda nemandi í áttunda bekk f Fellaskóla. bekk í Fellaskóla. HAFRAMJOL Meiri kraftur - minna verð! • • n «':3r » > • vl+’' . ••* ** v . Vlgdís Óskarsdóttlr, nemandi i tíunda bekk i Rettó. Óskar Rúdolf Kettl- er, nemandi í niunda bekk i Fella- skóla. Hjalti Þór Heióars- son, nemandi i ti- unda bekk Voga- skóla. DV-myndir Brynjar Gauti Svo virðist vera sem reykingar meðal unglinga séu öllu meiri nú en fyrir nokkrum árum þegar skólar státuðu af reyklausum liðum. DV-mynd GVA nemanda þar var ákveðið á síðasta skólaári að banna reykingar í skól- anum og hann vonaðist til að þeirri reglu yrði framfylgt. Enn sem komið væri gengi þó erfiðlega að gera skól- ann reyklausan. í Hafnarfirði er mis- jafnt eftír skólum hversu mikið er reykt. Þó mun Setbergsskóh sem var reyklaus í fyrra ekki getað státað af því lengur. -ELA HAFRAGRÍN Benedikt Ármanns- son, nemandi i ti- unda bekk Voga- skóia. Jenný Arnardóttir nemandi i tiunda bekk i Vogaskóla. „Pabbi segir að AXA haframjölið sé algjört hafragrín. Þegar hann var búinn að sannfœrast um gœðin gerði hann nefnilega verðsamanburð og þótti verðið á AXA haframjölinu svo hlœgilega lágt. Hollur matur þarf greinilega ekki að vera dýr, segir hann glaður í bragði og fœr sér aftur í skálina.“ 1 kg finvalsede ristede havregryn YDDA F45.1 0/SlA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.