Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1993, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1993, Síða 13
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 13 Safnahúsiö á Egilsstöðum Guðrún Kristinsdóttir safnvörður. DV-myndir Sigrún Safnahús á Egilsstöðum: Fyrsti áfangi loks á lokastigi Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egflsstööunx Nú hillir loks undir að Minjasafn Austurlands komist í viðunandi hús- næði. Safnahús á Egilsstöðum sem verið hefur í byggingu í mörg ár verður ef til vill tekið í notkun innan árs, en húsið stendur við Skógarlönd rétt hjá Hótel Valaskjálf. Guðrún Kristinsdóttir, minjavörður á Aust- urlandi, var nýlega tekin tali og spurði um húsnæðismál og starfsemi minjasafnsins. Safnið var stofnað 1943 og var fyrstu árin á Haliormsstað, en í fyrstu stjóm þess vom Sigrún Blöndal skólastjóri þar, Gunnar Gunnarsson, skáld á Skriðuklaustri, og Þóroddur Guö- mundsson, kennari á Eiðum, og hófu þau strax söfnun muna. Síðan var safnið á Skriðuklaustri 1945-1980, en þá vora munir fluttir í Egilsstaði í geymslu, en nú síðari árin hefur hluti af safninu verið sýndur á sumrin í 40 ferm húsnæði sem það eignaðist. Skráðir munir em nú 2600. Safhið er byggt upp sem búminja og heimilis- minjasafn. Nýja húsið Bygging þess hófst árið 1983. Ef farið verður eftir áætlun og miðað við framlög ríkisins verörn: flutt í fyrsta áfanga árið 1995 en hugsanlegt er að lán verði fengið til að ljúka byggingunni fyrr og flytja strax á næsta ári. Nú er verið að ganga frá lögnum í þessum fyrsta áfanga en hann er 300 ferm að grunnfleti á þrem hæðum auk tengibyggingar og kjallara að öðrum áfanga þar sem Minjasafnið verður með geymslur. Húsið er teiknað af Teiknistofunni, Skólavörðustíg 28, Reykjavík. í húsinu verða þrjú söfn. Á efstu hæð í risi verður Bókasafn Hér- aðsbúa og ef til vill einnig skrifstofa Safnastofnunar Austurlands. Á ann- arri hæð verður Minjasafn Austur- lands með 300 ferm sýningarsal og á neðstu hæð Héraðsskjalasafn Aust- firðinga. í tengibyggingu verður mót- taka, snyrtingar, setustofa og aö- staða til minjagripasölu. Gjörbylting á starf- semi Minjasafnsins Guðrún sagði að með tilkomu þessa nýja húss yrði alger bylting í starfi Minjasafnsins. Það hefði starfað í 50 ár án þess að hafa átt frambærilegt húsnæði. Nú fengi það 300 ferm sýn- ingarsal sem yrði opinn allt árið. Starfið á veturna yrði þá væntanlega miðað við skólana að verulegu leyti en á sumrin yrði fjölbreyttari starf- semi og t.d. hægt að bjóða upp á skoð- unarferðir til athyglisverðra minja- staða. Þá yrði ráðinn sérstakur starfsmaður til safnsins en Guðrún hefur haft umsjón með því ásamt með sínu starfi hjá Safnastofnun sem minjavörður á Austurlandi. Margir athyghsverðir munir eru í eigu Minjasafns Austurlands. Guð- rún nefndi m.a. baðstofu frá Brekku í Hróarstungu og herbergi úr húsi Páls Ólafssonar, skálds á Hallfreðar- stöðum. Annað þessara húsa verður sett upp í nýja safnhúsinu. Þá á safn- ið búslóð úr búi Guttorms Pálssonar á Hallormsstað. hemstoora frá niidjum depteniber kr. á mannirm í tvíbýli í 3 ncetur og 4 daga á Hotel Sheraton Towson. ** Tilboö fyrir hópa: 2.000 kr. afsláttur I á mann ef í hópnum eru 15 manns eða j fieiri. 40.000 kr. [ spamaöur fyrir 20 manna hóp. Brottfarir á miðviku-, fimmtu- og föstudögum. Heimflug á sunnu-, mánu- og miövikudögum. Yeittur er 5% staðgreiðsluafslátiur* í Baltimore bjóöum viö gistingu á eftirtöldum gæöahótelum: Holiday Inn Inner Harbor, Sheraton Towson, Hyatt Regency, Days Inn Inner Harbor og The Latham. *M.v að greitt sé með minnst 14 daga fyrirvara. Innifalið er flug og gisting og flugvallarskattar. Börn, 2ja - 11 ára, fá 15.500 kr. í afslátt. Börn að 2ja ára aldri greiða 3.500 kr. Enginn bókunarfyrirvari. Forfallagjald, 1.200 kr., er ekki innifalið í verði. Forfallagjald er valfrjálst en Flugleiðir hvetja farþega til að greiða það til að firra sig óþarfa áhættu. **Verð miðast við gengi 6. ágúst 1993. |jS Frábært tækifæri til þess aö gera hagstæö innkaup; m.a. stærsta verslunar- miðstöð á austurströnd Bandaríkjanna, Towson Town Center. Heillandi miðbær með aragrúa veitingastaða, verslana, ieikhúsa og skemmtistaða. Einstök söfn. Örstutt til höfuðborgar Bandaríkjanna, Washington D.C. Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt land, ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300 (svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8 -18.) FLUCLEIDIR Traustur íslenskur ferðafélagi Hvað er Ritvöllur?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.