Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1993, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1993, Side 17
I LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 >v________Meiming Áskorun Stundum getur veriö gaman að gramsa. Gagnlegt líka. Ég var til dæmis að gramsa niðri í Austurstræti í gær, á Listmunasölunni Fold nánar til tekið. Þar er þá kynning á olíumálverkum listakonunnar Sossu, Margrétar SoíHu Bjömsdóttur. Varð þá til eftirfarandi og endar í áskoran. Sossa Hún Sossa er tæplega fertug og með góða menntun í myndlist; mastersgráðu frá Boston í júessei. Hún er ættuð úr Keflavíkinni en býr norður á Sauðárkróki og fremur list sína þar en hefur verið að sýna dulítið í útlandinu upp á síðkastið. TU þessa tíma hef ég einvörðungu séð grafíkmyndir eftir Sossu. Þær voru ýmist eintóna eða tvítóna sem ég man eftir og báru merki góðrar teiknikunnáttu og Myndlist Úlfar Þormóðsson nokkurrar kímni. Ég man einnig að þær voru orðnar dulítið misjafnar undir það síðasta þegar þær urðu á vegi minum; eins og Sossa væri orðin eilítið leið á gerð þeirra. Um það veit ég náttúrlega ekki nokkum skapaðan hlut. Og allt er þetta aðeins í minningunni. Með fólk í bandi Fold listmunasala er ekki að þykjast vera neitt ann- að en listmunasala. Þar ægir saman einu og öðru; graf- ík, olíumyndum, vatnslit, styttum og pastel, svona rétt til að nefna það. Og er hæfileg regla á hlutunum. Fold starfar í litlu húsnæði, tvískiptu. í öörum hlutan- um er kynning á verkum Sossu. Þar hefði mátt taka dulítið til en ekkert endilega. Enda kannski erfitt því ég held að Fold hafi engar geymslur. Á kynningunni eru allmargar olíumyndir. Vondar voru þær þar sem verið var að mála vætti í landslagi, fjárans vondar - betri þar sem verið var að fást við hús eða mannvirki eða kindur í landi og við sjó. En. Eitt af verkum Margrétar Björnsdóttur. Góðar Vel unnar spaðamyndir, gáskafullar, litsterkar, kraftmiklar og hæfilega formfastar eða formlausar að hætti þess sem kann og getur teiknað og málað. Þetta voru myndir eins og Ættarmót, Álög og Hundur með fólk í bandi. Auk þess ein sem var á flökti í hinum fremri sal Foldar, nafnlaus til mín, gæti verið maður og kona, strákur og stelpa eða bara eitthvað allt annað. Áskorun Sum sé. Upp úr þessu gramsi sprettur þessi áskor- un. Frú Margrét Soffía Björnsdóttir á Sauðárkróki: Taktu þig til og málaðu og málaðu aftur og aftur fólk - gerir meira að segja ekkert til þó að það sé ættað af Króknum, og settu upp 15-25 mynda sýningu. Það yrði ótrúlega gaman. Er ég viss um. Sviðsljós Hallfríður Hallsdóttir, Margrét Björgvinsdóttir og Jóna Björk Jóhannsdóttir frá Siglufirði voru við berjatínslu á Almenningum í yndislegu haustveðri fyrir skömmu. DV-mynd örn í berjamó í Fljótum Öm Þórarinsson, DV, Fljótum: Fremur léleg berjaspretta var hér í sumar en lagaðist þó talsvert í september. Þá nokkuð var um ber og einkum náðu krækiber þokka- legum þroska. Bestu berjasvæðin í Fljótum eru í Stífluhólum og í Almenningum og hefur oft mátt sjá þar fjölda fólks við beijatínslu á undanfórnum árum, færri í sumar en nokkra þó. KVÍÐASTJÓRNUN Námskeið um stjórnun streitu, kvíða og spennu í mannlegum samskiptum. Kenndar eru og æfðar aðferðir til að fyrirbyggja og takast á við þessi ein- kenni. Upplýsingar um helgar og öll kvöld ísíma 39109. Oddi Erlingsson, sálfræðingur. ttu í vandræðum með að velja afmælls- eða jólagjöfína í ár f Komdu á óvart og gefðu persónulega gjöf sem slær í gegn. Eg teikna og mála skop- og andlitsmyndir e. Ijósmyndum. Vertu tímanlega og pantaðu mynd! Nánarí upplýsingar fást í síma 91-12491 cða símboda 984-53441 Gunnar Júlíusson grafískur hönnuður og myndskrcytir EINKATÍMAR DÁLEIÐSLA Núna er síðasta tækifæri til að fá dáleiðslumeðferð hjá fagmanni á íslandi. Ég mun hætta alfarið með dáleiðslumeðferð hér á landi 8. október n.k. ÞAÐ ER MEIRA HÆGT AÐ GERA MEÐ DÁLEIÐSLU EN ÞIG GRUNAR Viðurkenndur af virtum fagfélögum dáleiðslumeðferðaraðila eins og t.d. International Medical and Dental Hypnotherapy Association Hringdu strax og fáðu nánari upplýsingar. Friðrile Páll Ágústsson R.P.H., C.Ht. Vesturgötu 16, 101 Reykjavík. Sími: 91-625717 Skeifunni 8 - sími 81 35 00 Vikan 25/10 - 1/11 Margir litir - 387 kr. Itr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.